Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 52
6 FERÐALÖG
HINSEGIN
BRÚÐKAUPSFERÐ
YNDISLEGT AÐ VERA Á LESBOS
„Hér er alveg gott að vera í sól og
sumaryl,“ segir Sigríður Birna Vals-
dóttir leiklistarmeðferðarfræðingur,
sem er ásamt kærustunni Faye Rigg-
et, stödd í fríi á grísku eynni Lesbos.
Eyjan hefur að sögn Sigríðar Birnu
verið vinsæll dvalarstaður meðal
lesbía um nokkra hríð, meðal
annars vegna þess að þar fædd-
ist skáldkonan Saffó sem sumir
halda fram að sé fyrsta lesbían sem vitað sé um. „Lesbíur sækja
einkum Skala Ersou, fæðingarstað Saffó, og þar eru konur áberandi,
bæði á tilteknum hluta strandarinnar, auk þess sem konur eiga og
reka marga staði, veitingahús, hótel og gistiheimili,“ segir Sigríður
Birna en tekur fram að gagnkynhneigðir sæki eyjuna sömuleiðis í stórum
stíl. „Og meirihluta íbúanna er auðvitað gagnkynhneigður.“ Sjálf hefur hún
komið nokkrum sinnum áður til Lesbos og var svo lánsöm að kynnast þar
Faye í sumarfríi árið 2007. „Síðan þá höfum við komið hingað í sumarfrí
og njótum þess að vera í samvistum við áhugavert fólk.“
París Varla er hægt að ímynda sér rómantískari stað fyrir nýgift pör en höfuðborg
Frakklands, þar sem hægt er að sigla niður Signu eða heimsækja Louvre-safnið. Þar er líka
að finna hótel, bari og næturklúbba stílaða á samkynhneigða, einkum í Le Marais-hverfinu.
Sydney Mardi Gras, karnival samkynhneigðra, fer fram í Syndey í
Ástralíu snemma á ári hverju og er tilvalið að sækja heim fyrir þá
sem vilja skipuleggja brúðkaupsferð langt fram í tímann. Hommabar-
ir eru við Oxford Street og lesbíustaðir í Leichart og Erskinville.
Höfðaborg Í Suður Afríku er hægt að upplifa alls kyns ævintýri með ástinni sinni, fara í
safaríferð, flatmaga á ströndinni eða njóta góðrar matseldar, auk þess sem De Waterkant er
aðalsvæði samkynhneigðra. Hjónabönd samkynhneigðra hafa verið lögleg þar síðan 2006.
Keye West Samkynhneigðir hafa um langt skeið lagt leið sína til Keye West á Flórída í
Bandaríkjunum, enda margt hægt að sjá og gera; skella sér á leiksýningu, skoða sögulegar
byggingar, kafa í kóralrifi eða gista í uppgerðu setri frá Viktoríu-tímabilinu.
Barcelona Þeir sem una góðum mat, hressilegu næturlífi, menningu
og listum ættu ekki að vera sviknir af heimsókn til Barcelona á
Spáni. Ramblan, Park Guell og Sagrada Família eru á meðal þess
sem laðar til sín ferðamenn og margt í boði fyrir samkynhneigða.
Efl aust munu mörg sam-
kynhneigð pör íhuga að
ganga í hnapphelduna
á næstunni eftir að ein
hjúskaparlög voru sam-
þykkt á Íslandi. Brúð-
kaup krefst mikils undir-
búnings og að því loknu
því kjörið að skella sér í
ferðalag til að slappa af.
Er þá úr mörgum spenn-
andi stöðum að velja.
Faye og Sigríður Birna.
NO
RD
IP
HO
TO
S/
GE
TT
Y
17.–22.08.2010
HELSINKI OG TALLINN
Verð á mann frá: 140.840,-
Innifalið í verði er fl ug, fl ugvalla-
skattar, gisting í tveggjamanna
herbergjum, morgunverður, skoðun-
arferð um Helskinki, sigling til og
frá Tallinn og skoðunarferð þar,
skoðunarferð til Porvoo og íslenzk
fararstjórn.
Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson
Verð miðast við gengi og forsendur
23. marz 2010 og 30 manna hóp.
Leitið nánari upplýsinga og kynnið
ykkur fl eiri ferðir á okkar vegum á
heimasíðu okkar www.ferdir.is
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf.
Sími 511 1515
www.ferdir.is outgoing@gjtravel.is
ERTU AÐ FARA
Í SUMARFRÍ?
Pósthúsið ehf. annast dreifingu Fréttablaðsins,
nánari upplýsingar á www.visir.is/dreifing
Þú getur afpantað Fréttablaðið á meðan þú ert að heiman.
Hafðu samband í grænt númer 800-1177 eða sendu póst
á netfangið dreifing@posthusid.is