Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 66
38 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is Jónas Sigurðsson, fyrrver- andi Sólstrandagæi, send- ir frá sér sína aðra plötu í byrjun október og kemur hún út á vegum Cod Music. „Ég er búinn að vinna í henni lengi, eða síðan ég kláraði þá síð- ustu,“ segir Jónas um nýju plötuna sem nefnist Allt er eitthvað. „Hún skiptist í hlið 0 og hlið 1 eins og gömlu plöturnar. Ég skipti henni í tvennt og þarna eru tvö þema sem eru að kallast á. Ann- ars vegar þrá og hins vegar ein- lægni,“ segir hann og bætir við að mikill kraftur sé í fyrri hlut- anum á meðan hinn sé öllu mýkri. „Ég er að reyna að búa til and- stæður, sem er svolítið vandmeð- farið á plötu. Hún þarf að stand- ast sem ein heild og þess vegna er gaman að búa til mótsögn á plötu. Ég ætla að sjá hvort það virkar en maður veit það ekki fyrr en þetta er komið út.“ Síðasta plata Jónasar, Þar sem malbikið svífur mun ég dansa, kom út fyrir jólin 2006 og hlaut mjög góðar viðtökur. Titillag plöt- unnar og lögin Ofskynjunarkonan og Baráttusöngur uppreisnarklans- ins á skítadreifurum fengu mikla útvarpsspilun. Þar söng hann um að bylting væri í vændum og gagn- rýndi græðgisvæðinguna og kom það á daginn að hann hafði sitthvað til síns máls. Síðastnefnda lagið hefur til að mynda verið mikið spil- að í tengslum við mótmælin hér á landi undanfarin misseri. Spurður hvort einhvern „spá- dóm“ um framtíð Íslands megi finna á nýju plötunni eins og á þeirri fyrri segir hann svo ekki vera. „Ég er ekkert voða mikið fyrir predikunarmúsík. Mér finnst bara gaman að nota músíkina sem form til að koma á framfæri hug- myndum og pælingum.“ Á síðustu plötu vann Jónas með dönskum tónlistarmönnum, enda bjó hann þar í landi í fimm ár. Núna vann hann með íslenskum tónlist- armönnum og hefur sett saman hljómsveitina Ritvélar framtíðar- innar sem spilar á sínum fyrstu tónleikum á Bræðslunni seinna í mánuðinum. Fyrsta lagið af plöt- unni, Hamingjan er hér, er komið út og er það fáanlegt ókeypis á síð- unni Tónlist.is næstu vikuna. Einn- ig má hlusta á lagið á síðunni Jon- assigurdsson.com. freyr@frettabladid.is SYNGUR UM ÞRÁ OG EINLÆGNI Mér finnst bara gam- an að nota músíkina sem form til að koma á framfæri hugmyndum og pælingum. JÓNAS SIGURÐSSON TÓNLISTARMAÐUR JÓNAS SIGURÐSSON Sólstrandagæinn fyrrverandi sendir frá sér sína aðra sólóplötu í byrjun október. Leikkonan Angelina Jolie, sem sést næst á hvíta tjaldinu í mynd- inni Salt, segir að ástæðan fyrir góðu sambandi hennar og leikarans Brad Pitt sé sú að þau séu aldrei lengi í burtu hvort frá öðru og eyði miklum tíma með fjölskyldunni. „Ég og Brad erum aldrei í sundur í langan tíma. Við erum aldrei lengur en í þrjá daga án hvors annars. Við erum stöðugt í sambandi,“ sagði Jolie. „Við förum ekki mikið út á lífið. Við erum mjög heimakær og erum bara í náttfötunum í mömmu- og pabba-hlutverkunum.“ Aldrei meira en þrír dagar Leikkonan Katie Holmes hefur nú staðfest að hún muni heiðra vin- sælu þáttaröðina Glee með nær- veru sinni í næstu seríu. Holmes, sem er hvað frægust fyrir að vera gift leikaranum Tom Cruise, mun leika gestahlutverk í fimm þátt- um í þessaru sjónvarpsþáttaseríu sem sýndir eru á Stöð 2 hér á landi. Þættirnir eru með söngleikjasniði og mun leikkonan vera byrjuð að æfa sig af krafti til að geta látið ljós sitt skína í söng og dansi. Vinsældir Glee hafa verið gríð- arlegar í Bandaríkjunum og keppast stjörnurnar um að fá hlut- verk. Þar á meðal hefur söngkonan Katy Perry beðið aðdáendur sína um að stofna Facebook-síðu til að koma henni í þáttinn. Holmes til Glee FRÚ TOM CRUISE Katie Holmes hefur tekið að sér að leika gestahlutverk í næstu seríu af Glee-sjónvarpsþáttunum. FRÉTTABLAÐIÐ/WIREIMAGES BRANGELINA „Ég gæti ekki verið hamingjusamari með þessa skiptingu,“ segir tónlistarmaður- inn Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Hann leik- ur krypplinginn Riff Raff í stað hins full- komna karlmanns Rocky í söngleiknum Rocky Horror sem verður frumsýndur hjá Leikfélagi Akureyrar 10. september. Eyþór Ingi var upphaflega ráðinn til að leika Rocky en þótti ekki henta í hlut- verkið. „Ég var búinn að furða mig á því og grínast með að leikstjórinn væri greinilega ekki með á hreinu í hvaða formi ég væri. Þegar hann hefur loks- ins séð mig hefur honum fundist eitt- hvað bogið við þetta,“ segir Eyþór Ingi og bætir við að hann sé miklu frekar í krypplingaformi. „Ég er miklu sáttari við þetta hlutverk. Ég held að ég sé miklu meiri krypplingur en hinn fullkomni karlmaður. Þetta er líka meiri týpa og það eru skemmtilegri lög sem ég syng.“ Eyþór hefur legið yfir upp- færslum af Rocky Horror á hinum ýmsu tungumálum að undanförnu til að undirbúa sig fyrir nýja hlutverkið. „Ég ætla að leggja allt í þetta og gera þennan kryppling eins full- kominn og hinn fullkomni karlmaður ætti að vera.“ Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri verksins, fagn- ar þessu breytta hlutverki Eyþórs. „Söngröddin hans Riff Raffs er ótrúleg og þetta er flottur karakter. Þetta er stærra hlutverk sem hann fékk núna. Svo er það líka líkamsburðurinn. Hann er ekki alveg nógu stæltur í hlutverk Rocky. Við fáum vöðvabúnt í stað- inn fyrir hann,“ segir hann og á þar við Hjalta Rúnar Jónsson. „Helsta vinnan hans er að lyfta þangað til við frumsýn- um.“ - fb Úr vöðvabúnti í kryppling RIFF RAFF Eyþór Ingi í hlutverki krypplingsins Riff Raff. Leikarinn Michael C. Hall sem fer með aðalhlutverkið í sjón- varpsþáttunum Dexter er á meðal þeirra sem tilnefndir eru til Emmy-verðlaunanna í ár og telja margir hann sigurstrangleg- an ekki síst eftir að hafa glímt við eitlakrabbamein. Sjónvarpsþátturinn er tilnefnd- ur til nítján verðlauna í ár, þar á meðal sem besti dramatíski sjón- varpsþátturinn. „Þetta venst með árunum og þetta verður minna sjokk, þá á ég við flassið í augun og lætin á rauða dreglinum. Það er auð- veldara að njóta þess ef maður hefur gert þetta áður,“ sagði leik- arinn um Emmy- verðlaunahátíð- ina. Tilnefndur fyrir Dexter SIGURSTRANGLEG- UR Michael C. Hall þykir sigurstrang- legur á Emmy verðlaunahátíð- inni í ár. Leikarinn Eddie Cibrian, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum CSI Miami, vill ekki kvænast kær- ustu sinni, söng- konunni LeAnn Rimes, því hann óttast að það komi óorði á hann. „LeAnn hélt að Eddie mundi kvænast henni, en hann er ekki hrifinn af hugmyndinni. Mann- orð hans hefur beðið hnekki eftir framhjáhaldið. Hann óttast að fólk dæmi hann ef hann kvænist LeAnn,“ var haft eftir vini. Vill ekki kvænast > BLÖNK SYSTIR Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian er orðin blönk því hún og kærasti henn- ar eyða um efni fram. „Hún er alltaf að biðja móður sína um peningalán, en samt er hún að skoða íbúð í miðri Manhattan. Hún eyðir allt of miklu og nú er hún komin í vandræði. Hún er nánast komin á hausinn,“ var haft eftir nafnlausum heimildarmanni. Aukatónleikar Basil kórsins frá Moskvu í Langholtskirkju laugardaginn 24. júlí kl. 20.00 Forsala á midi.is Leiksýning í Borgarnesi á sunnudaginn kl 14:00 Leikbrúðusafn - Brúðuleikhús Veitingar - Gjafavara www.bruduheimar.is Sími 530 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.