Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 8
8 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR Slitastjórn Glitnis telur lík- legt að Jón Ásgeir Jóhann- esson hafi átt 38 milljarða króna bankainnistæður í óþekktum bönkum hálfum mánuði fyrir bankahrun. Dómari í Bretlandi hafn- aði í gær kröfu Jóns Ásgeirs um að kyrrsetningu á öllum eigum hans, hvar í heimin- um sem þær væri að finna, yrði hnekkt. Hinn 22. september 2008, viku fyrir þjóðnýtingu Glitnis sendi Jón Ásgeir Jóhannesson tölvupóst til Lárusar Welding, forstjóra Glitn- is, með afriti á Jón Sigurðsson, forstjóra FL Group, með textan- um „FOR YOUR EYES ONLY“, til að árétta að upplýsingarnar væru háleynilegar og viðkvæmar. Tölvuskeytið bar titilinn „Sterl- ing deposits“, sem þýðir innistæð- ur í sterlingspundum, og með honum fylgdi skjámynd af nokkr- um bankareikningum sem sam- kvæmt þeim upplýsingum höfðu að geyma yfir 200 milljónir sterlings- punda, jafnvirði um 38 milljarða króna, í hreinum innistæðum. Líklega innistæður Jóns Ásgeirs Framangreindar upplýsingar koma fram í eiðsvarinni yfirlýsingu sem Steinunn Guðbjartsdóttir gaf fyrir dómi í London í maí síðastliðnum, til að rökstyðja beiðni slitastjórn- arinnar um kyrrsetningu á öllum eigum Jóns Ásgeirs, hvar sem þær væri að finna í veröldinni. Vitnis- burður Steinunnar hefur verið lagð- ur fram sem sönnunargagn fyrir dómstólnum í New York, þar sem málið á hendur sjömenningunum í „klíku Jóns Ásgeirs“ er rekið. Í yfirlýsingu Steinunnar segist hún ekki vita hver átti þessa miklu fjármuni sem sýndir eru í tölvu- skeytinu en að hún telji líklegt að þeir hafi verið í eigu Jóns Ásgeirs eða einhvers tengds honum. Rann- sóknarfyrirtækið Kroll, sem vann undirbúningsvinnuna fyrir stefnu slitastjórnarinnar, telji afar ólík- legt að fjármunirnir hafi tilheyrt Glitni, og þá sé hæpið að Baugur hafi ráðið yfir svo miklu lausfé á þessum tímapunkti. Steinunn segir jafnframt líklegt að upplýsingarnar hafi verið send- ar í myndarformi, en ekki í texta, í því skyni að fela þær, svo ekki væri hægt að leita í þeim sjálfvirkt með leitarvélum. Segir Iceland Foods eiga féð Jón Ásgeir Jóhannesson sagðist í skriflegu svari til Stöðvar 2 í gær ekki vera eigandi fjárins. Þetta hafi verið innistæður í eigu breska fyrirtækisins Iceland Foods, sem á sínum tíma var í eigu Baugs en er nú að mestu í eigu skilanefndar Landsbankans. Fjármunirnir væru enn í eigu Iceland. Ekki hefur náðst í Jón Ásgeir til að spyrja hvers vegna hann hafi sent upplýsingar um bankainni- stæður Iceland Foods til þeirra Lárusar og Jóns með þeim fyrir- vara að þær væru háleynilegar. Fundu hvergi neitt um farartækin Fleira athyglisvert kemur fram í yfirlýsingu Steinunnar. Þar segir til dæmis að rannsókn Kroll hafi leitt í ljós að Gaumur, eignarhalds- félag Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans, eigi eignir í Hollandi, á Kýpur, og á Bresku Jómfrúreyjum. Þá hafi minnst tvær millifærslur verið gerðar frá hruni af persónu- legum reikningum Jóns Ásgeirs yfir á bankareikning í Lúxemborg í eigu eignarhaldsfélags í Panama sem engar upplýsingar fást um. Þá segir Steinunn einnig í yfir- lýsingu sinni að ákaflega erfitt hafi verið fyrir rannsakendurna að afla sér upplýsinga um meintar eignir Jóns Ásgeirs. Kroll hafi til dæmis hvergi tekist að finna, í opinberum gögnum, staðfestingu á því að Jón Ásgeir eigi eða hafi nokkru sinni átt snekkju, þyrlu, tvær einkaþot- ur og fjölda lúxusbíla, sem fjallað hefur verið um opinberlega. Lítið vitað um heimilin Enn fremur hafi verið ákaflega erfitt að finna heimilisfang hans. Kroll hafi tekist að finna tengsl á milli Jóns Ásgeirs og tveggja íbúða í London, við Trevor Square og Oxford Street. Ekki hafi hins vegar tekist að grafast fyrir um eignar- haldið. Veselka Investments Ltd., félag í Máritíus, eignaðist leigu- rétt að húsinu við Trevor Square af Baugi í maí 2009 fyrir 4,9 milljónir punda. Ekkert er vitað um félag- ið, en talið er líklegt að þetta hafi verið ráðstöfun stjórnenda Baugs. „Í ljósi þess hvað Jón Ásgeir er þekktur fyrir að skipuleggja eignir sínar og öll málefni á flókinn máta er ég ekki hissa á að Kroll hafi ekki getað staðfest beint eignar- hald hans á neinum eignum í Bret- landi,“ segir Steinunn í yfirlýsingu sinni. Helgi Sigurðsson, fyrrverandi yfirlögfræðingur Kaupþings, vinnur greinargerð með frávísunarkröfu fimm sakborninga: þeirra Jóns Ásgeirs og Ingibjargar, Jóns Sigurðssonar, Þorsteins M. Jónssonar og Lárusar Welding. Í greinargerðinni er mestu púðri eytt í að rökstyðja hvers vegna ómögulegt sé að höfða málið í New York, en einnig er sjónum beint að því mati slitastjórnar að sumir stefndu í málinu hafi verið eins konar skugga- stjórnendur bankans og Ingibjörg hliðarsjálf Jóns Ásgeirs. Helgi segir skilgreiningar á þessum hugtökum ekki fyrir hendi í íslenskum lögum og því vandséð að unnt yrði að framfylgja hér á landi dómi sem byggir á þeim. Líkt og í eiðsvarinni yfirlýsingu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem fjallað var um í blað- inu í gær, nafngreinir Helgi í greinargerð sinni fjölda vitna sem hann telur að gætu þurft að mæta fyrir réttinn í New York verði málinu ekki vísað frá. Jón Ásgeir nefndi ellefu manns í yfirlýsingu sinni, eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær, en Helgi bætir um betur, nefnir þá ellefu og 29 til viðbótar; alls 40 manns, sem hafa tengsl við Glitni, hafa starfað þar, setið í stjórn, átt viðskipti við bankann eða tengjast á einhvern annan hátt þeim gjörningum sem fjallað er um í stefnu slitastjórnarinnar. Meðal þeirra sem finna má á lista Helga en ekki Jóns Ásgeirs eru: ■ Bjarni Ármannsson – var forstjóri Glitnis (6) ■ Björn Ingi Sveinsson – var stjórnarmaður í Glitni ■ Pétur Guðmundarson – var stjórnarmaður í Glitni ■ Rósant Már Torfason – var yfirmaður í Glitni ■ Alexander Guðmundsson – var yfirmaður í Glitni ■ Magnús Bjarnason – var yfirmaður í Glitni ■ Kristín Edwald – var stjórnarmaður í Glitni ■ Jónas Fr. Jónsson – var forstjóri FME (5) ■ Þórarinn V. Þórarinsson – var stjórnarmaður í Glitni (3) ■ Magnús Ármann – átti í miklum viðskiptum við Glitni (2) ■ Þorsteinn Már Baldvinsson – varð síðar stjórnarformaður Glitnis (1) ■ Guðbjörg Matthíasdóttir – átti stóran hlut í Glitni (4) Helgi, líkt og Jón Ásgeir, telur að það muni hamla málarekstri í New York mjög að þurfa að kalla til svo stóran hóp Íslendinga, sem hugsanlega séu alls ekki tilbúnir til að mæta fyrir réttinn sjálfviljugir. Því beri að höfða málið á Íslandi, ef einhvers staðar. Helgi vill fá 40 vitni til New York 1 2 3 4 5 6 Dómari í London hafnaði í gær þeirri kröfu Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar að fallið yrði frá kyrrsetningu á eigum hans hvar sem þær kunni að vera að finna í veröldinni. Tók dómarinn undir það með formanni slitastjórnar Glitnis, Steinunni Guðbjartsdótt- ur, að ólíklegt væri að Jón Ásgeir hefði gert fullnægjandi grein fyrir eigum sínum. Það var fréttaritari Ríkisútvarpsins í London sem greindi frá því sem fram kom fyrir dómi í gær. Að því er fram kom í umfjöllun útvarpsins skilaði Jón Ásgeir inn lista yfir eignir sínar, og sagði þær virði 1,2 milljóna punda, sem jafngildir um 230 milljónum íslenskra króna. Dómarinn kvað það fara illa saman að segjast einungis eiga eignir upp á ríflega 200 milljónir króna, að stórum hluta bundnar í bílum, en hafa jafnframt efni á lögfræðingum bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Í ljós kom í lok málflutningsins að málskostnaður Jóns Ásgeirs í Bretlandi hefur þegar numið 110 milljónum króna. Dómarinn sagði Jón Ásgeir hafa lifað hátt að undanförnu og eytt miklu, og benti á að í gögnum slitastjórnar Glitnis kæmi fram að 11 milljónir punda, um 2,2 milljarðar, hefðu farið um reikninga hans haustið 2008. Að öllu þessu virtu hlyti að mega gera ráð fyrir að eignir hans væru meiri en hann gæfi upp. Þá tók hann einnig undir það að ferill Jóns Ásgeirs, meðal annars fangelsisdómurinn skilorðsbundni sem hann hlaut hér á landi í Baugsmálinu, gæfi tilefni til að ætla að hann myndi reyna að koma eigum sínum undan. Kyrrsetningin stendur því og þar að auki var beiðni lögmanna Jóns Ásgeirs um áfrýjun hafnað. Takist slitastjórn Glitnis að færa sönnur á það að Jón Ásgeir hafi ekki gefið eignir sínar upp með fullnægjandi hætti á hann yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsisvist. Alheimskyrrsetningin stendur þrátt fyrir mótbárur Jóns Ásgeirs Hvar eru milljarðarnir hans Jóns Ásgeirs? EKKI MÍNIR PENINGAR Jón Ásgeir fullyrðir að hann hafi aldrei átt milljarðana 38 sem sjást í tölvuskeytinu frá því rétt fyrir hrun. Þeir hafi verið, og séu enn, eign bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lárus Welding, Pálmi Haraldsson, Hannes Smárason, Þorsteinn M. Jónsson og Jón Sigurðsson, sem er stefnt í málinu í New York ásamt Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu Pálma- dóttur til greiðslu 260 milljarða króna, hafa allir gefið eiðsvarna yfirlýsingu fyrir réttinum þar ytra. Allir furða fimmmenningarnir sig á því að vera tengdir við málið og fullyrða að fráleitt sé að höfða málið í New York. ■ Hannes upplýsir í yfirlýsingu sinni að hann starfi nú sem fjárfestir í Lúxemborg og sé þar búsettur. Mjög einkennilegt sé að stefna honum þar sem hann hafi verið hættur í stjórn Glitnis þegar allar ákvarðanir sem vikið er að í stefnunni hafi verið teknar. Enn fremur hafi hann engin tengsl við New York, fyrir utan að hafa komið þangað nokkrum sinnum í frí, hlaupið þar maraþon og komið við á leið sinni á Formúlu 1 kappakstur í Sao Paulo. ■ Í yfirlýsingu Lárusar víkur hann að þeirri skoðun slitastjórnarinnar að hann hafi lotið í einu og öllu vilja Jóns Ásgeirs. Slitastjórnin vitnar til ýmissa tölvuskeyta þeirra í millum því til stuðnings. Þessu vísar Lárus á bug. „Jón Ásgeir hegðaði sér að engu leyti öðru vísi en hver annar maður sem er of hrifinn af tölvupósti og lætur það fara í taugarnar á sér að sá sem hann á í viðskiptum við geri ekki það sem hann vill,“ segir Lárus. ■ Þorsteinn M. Jónsson segist forviða á stefnunni, ekki síst því að málið sé höfðað í New York. Það valdi honum margvíslegum vandræðum. ■ Jón segist í sinni yfirlýsingu engan hag hafa haft af því að Glitnir félli, enda hafi hann stýrt FL Group sem átti stóran hlut í bankan- um. Þá segist hann ekki skilja af hverju málið sé höfðað í New York. Þá er upplýst í yfirlýsingu hans að þrátt fyrir að Jóni hafi verið vikið úr starfi forstjóra Stoða þegar honum var stefnt, þá sitji hann enn sem fulltrúi Stoða í í stjórn Refresco, langverðmætustu eign félagsins. ■ Pálmi Haraldsson hafnar ásökununum með öllu og bendir meðal annars á að stefnan í New York skarist við stefnu slitastjórn- ar Glitnis á hendur honum og fleirum hér á landi til greiðslu sex milljarða vegna viðskipta Fons. Það er sé óeðlilegt. Jón Sigurðsson enn í stjórn Refresco FRÉTTASKÝRING: Slitastjórn Glitnis og dómari í London telja Jón Ásgeir Jóhannesson fela peninga Stígur Helgason stigur@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.