Fréttablaðið - 10.07.2010, Page 64
36 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
OKKUR
LANGAR Í
…
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
SARA MCMAHON
Naglalakk í öllum
regnbogans litum.
Vor- og sumarlínan 2010 frá
Chanel þótti einstaklega fal-
leg. Litapallíettan var bein-
hvít og ljós í bland við svart
og voru flíkurnar úr léttum
efnum á borð við blúndur.
Línan var meistaraleg blanda
af klassískri rómantík og
nútíma hátísku.
> ILMURINN ER SVO LOKKANDI
„Kona sem ekki notar ilmvatn á sér
enga framtíð.“ Þessi fleygu orð
komu frá tískudrottningunni
Coco Chanel sem vildi meina
að kona væri ekki kona
með konum nema kona
ilmaði vel. Mikið úrval af
sumarlegum ilmi hefur komið á
markað undanfarið en sé maður ekki
sérlega hrifinn af ilmvatni er hægt
að nota „body spray“ í staðinn.
Geggjaðan hlébarða-
mynstraðan samfesting
fyrir sumarfríið. Fæst í
Warehouse í Kringlunni.
Skemmtilegan blúndubol
sem hressir upp á hvaða
klæðnað sem er. Fæst í
versluninni Sautján.
Ég rakst á heldur athyglisverða grein á netinu um daginn sem bar
yfirskriftina „How to become a model“ og er stuttur leiðarvísir fyrir
ungar stúlkur sem vilja gerast fyrirsætur. Í upphafi greinarinnar er
tekið fram að erfitt sé að gerast fyrirsæta því maður sé annaðhvort
fæddur með rétta útlitið eða ekki. Sértu á annað borð fædd með útlit
fyrirsætu eru miklar líkur á því að þú hafir þegar verið uppgötvuð.
Samkvæmt fyrrnefndri grein skulu fyrirsætur vera um 180 senti-
metrar á hæð, nota stærð sex og vera á aldrinum fjórtán til tut-
tugu ára. Fáar stúlkur uppfylla þessar útlitskröfur iðnaðarins en
samkvæmt greininni er ekki aðeins nóg að uppfylla
kröfurnar um hæð og aldur heldur þurfa stúlkurn-
ar einnig að vera sterkar, ákveðnar og sjálfsörugg-
ar ætli þær að ná langt í hinum harða heimi tísk-
unnar.
Stúlkurnar þurfa einnig að flytja búferlum og koma
sér fyrir í New York, París eða Mílanó ætli þær sér
að starfa sem fyrirsætur. „Þú þarft að hafa sterkan
karakter. Margar stúlkur finna fyrir miklu óöryggi í
fyrstu. Þær eru langt frá fjölskyldu sinni og vinum og
fá fá verkefni til að byrja með. Við reynum að styðja
þær í gegnum þennan erfiða tíma, en við komum auð-
vitað ekki í stað fjölskyldunnar,“ sagði einn umboðs-
maður á vegum Elite-skrifstofunnar í París.
Auk þess þurfa stúlkurnar að hafa aðlaðandi
persónuleika og myndast vel eigi þær að geta bókað
verkefni. Af þessari grein að dæma er það ekki á allra
færi að verða fyrirsæta, þó maður hafi útlitið með
sér þarf margt annað að fylgja með. Því má gera ráð
fyrir að ofurfyrirsæturnar í dag hafi alla þessa kosti
til að bera; þær eru hávaxnar, grannvaxnar, náttúru-
lega fallegar, ákveðnar, sjálfstæðar en samt einstak-
lega viðkunnanlegar og fótógenískar … sem gerir
þær bara enn meira óþolandi en áður.
Öflugar fyrirsætur
KARL LAGERFELD SLÆR Í GEGN ENN OG AFTUR MEÐ CHANEL:
LÉTT OG FALLEG HÁTÍSKA
SLAUFUR
OG PÍFUR
Fallegur gólfsíður
kjóll skreyttur með
pífum og slaufum.
1 BLÚNDUR OG RÓMANTÍK Fyrirsæta klæðist fallegri
blúnduflík frá Chanel. 2 SYKURSÆTT Fallegur svartur
blúndukjóll frá Chanel. 3 BARNSLEGA SÆTT Fallegur
ljósbleikur dúkkukjóll frá meistara Lagerfeld.
NORDICPHOTOS/GETTY
HEKLAÐAR DÚLLUR
Heklaður kjóll og
blómleg handtaska
úr vorlínu Chanel.
BLEIK OG
FRAMANDI
Fyrirsæta klæðist
nokkuð sérstakri
yfirhöfn sem
virðist búin til
úr blómum.
1 2 3
Allir helstu HM leikirnir í beinni á
karoeke sportbar Frakkastíg 8.
Skemmtilegar uppákomur á milli
leikja og Stór á 450 kr.
Egils gull og Kareoke sportbar
- alvöru HM stemmning !
Egils Gull og Kareoke Sportbar kynna: