Fréttablaðið - 10.07.2010, Síða 68

Fréttablaðið - 10.07.2010, Síða 68
40 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR SÍMI 564 0000 12 12 12 L 12 L SÍMI 462 3500 12 12 L KNIGHT AND DAY kl. 6 - 8 - 10.10 KILLERS kl. 8 - 10 GROWN UPS kl. 6 SÍMI 530 1919 12 12 L 12 KNIGHT AND DAY kl. 5.30 - 8 - 10.30 KNIGHT AND DAY LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30 KILLERS kl. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.20 GROWN UPS kl. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.20 THE A-TEAM kl. 5.20 - 8 - 10.30 HÚGÓ 3 kl. 4 KNIGHT AND DAY kl. 5.30 - 8 - 10.30 KILLERS kl. 5.45 - 8 - 10.15 GROWN UPS kl. 5.45 - 8 - 10.15 GET HIM TO THE GREEK kl. 5.40 - 8 -10.20 NÝTT Í BÍÓ! .com/smarabio MISSIÐ EKKI MISSIÐ EKKI AF HASAR GAMANMYND SUMARSINS! "Hraðskreið og hlaðin fjöri. Tom Cruise hefur sjaldan verið hressari!" -T.V, Kvikmyndir.is „Fullkomlega óhætt að mæla með Knight and Day sem laufléttu sumarsprelli“ -S.V., MBL HEIMSFRUMSÝNING Á EINNI VINSÆLUSTU MYND SUMARSINS „Besta Twilight myndin til þessa“ – Entertainment Weekly  - hollywood reporter  - p.d. variety  S.V. - Mbl   Fbl VIDDI, BÓSI LJÓSÁR OG HIN LEIKFÖNGIN ERU KOMIN AFTUR Í STÆRSTU OG BESTU TOY STORY MYND TIL ÞESSA. EIN FERSKASTA ÍSLENSKA KVIKMYND Í LANGAN TÍMA! ÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI SELFOSSI 12 12 12 12 16 16 12 12 10 10 L L L L L L L L 14 14 14 14 SPARBÍÓ KR 600 Á SÝNINGAR MERKTAR MEÐ APPELSÍNUGULU OG KR. 950 Á 3D MERKT GRÆNU BOÐBERI kl. 6 - 8 - 10 LEIKFANGASAGA 3 - 3D ísl tal kl. 1.20 - 3:30 TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 5:30 - 8 - 10:35 PRINCE OF PERSIA : SANDS OF TIME kl. 1:20 SEX AND THE CITY 2 kl. 3 BOÐBERI kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20 LEIKFANGASAGA 3 M/ ísl. Tali kl. 3:30 - 5:50 THE A TEAM kl. 8 NIGHTMARE ON ELM STREET kl. 10:20 BOÐBERI kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 TWILIGHT SAGA 1 - 3:30 - 6 - 8 - 8:30 - 10:40 - 11 TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 1 - 3:30 - 6 - 9:20 NIGHTMARE ON ELM STREET kl. 10:50 LEIKFANGASAGA 3-3D ísl 1(3D) - 3:20(3D) - 5:40(3D) LEIKFANGASAGA 3 M/ ísl. Tali kl. 1 - 3:20 - 5:40 TOY STORY 3 M/ ensku Tali kl. 10:20 SEX AND THE CITY 2 kl. 8 PRINCE OF PERSIA : SANDS OF TIME kl. 5:40 - 8 AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D M/ ísl. Tali kl. 1:30 - 3:40 BOÐBERI kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 TWILIGHT SAGA kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:20 - 10:40 LEIKFANGASAGA 3-3D ísl. 1(3D) - 3:20(3D) - 5:40(3D) TOY STORY 3 M/ ensku Tali kl. 1(3D) - 3:20(3D) - 8(3D) - bara lúxus Sími: 553 2075 KNIGHT AND DAY 1.50, 3.40, 5.50, 8 og 10.10 P 12 KILLERS 1.50, 4, 6, 8 og 10 12 GROWN UPS 5.50 og 8 10 A - TEAM 10.10 12 SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 2 og 4 L 600 kr í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu! POWERSÝNING KL. 10.10 Bíó ★ Boðberi Leikstjóri: Hjálmar Einarsson Aðalhlutverk: Darri Ingólfsson,Jón Páll Eyjólfsson, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Pétur Einarsson Ísland er í tómu tjóni. Drungi djúprar kreppu svífur yfir vötn- um og af samhengi myndarinnar og því hvernig hún kallast á við samtíma sinn má ætla að ástand- ið megi skrifa á sóðalegan reikn- ing siðspilltra auðmanna, spilltra stjórnmálamanna og seðlabanka- stjóra sem sleit barnsskónum í hel- víti við fótskör sjálfs Kölska. Í svona ástandi hlýtur eitthvað að bresta og því látum við okkur nú ekkert bregða við það að grímu- klæddur gaur taki sig til og fari að freta á peningamógúla og spill- ingargemsa úr haglabyssu. Og þar sem kvikmyndin Boðberi er öll svo ofsalega djúp og útpæld þá eru þessar árásir vægast sagt tákn- rænar þannig að refsivöndurinn sjálfskipaði hefur fjarlægt högl- in úr skotunum sem hann notar og dælir frekar blöndu glerbrota og mannaskíts í fórnarlömb sín. Þeir sem verða fyrir þessum voða- skotum geispa því ekki golunni á staðnum heldur hanga milli heims og helju af völdum blóðeitrunar á sjúkrahúsi. Á meðan grímumaðurinn geng- ur óhreint til verks fáum við að kynnast pípulagningarmanninum Páli Baldvini sem dreymir um að verða listmálari. Daglegt líf hans fer aðeins úr skorðum þegar borg- aralega klæddir guðs englar í líki Móeiðar Júníusdóttur og Péturs Einarssonar taka að birtast honum í tíma og ótíma og troða ofan í hann með teskeiðum einhverjum þeim súrasta bræðingi nýaldarbulls og biblíukjaftæðis sem maður hefur nokkru sinni þurft að bragða á. Í kreditlista myndarinnar í lokin kemst maður svo að því að þessi klisjusúpa sem myndin byggist á er sótt í heimspekivaðal Gunn- ars Dal og þá prísar maður sig svo sem sælan fyrir að þetta teygði sig þó ekki yfir nema tvo tíma (sem virtust að vísu vera fjórir meðan á því stóð). Boðberi er greinilega gerður af nokkrum vanefnum sem sést best á því að tæknilega fer hún með mann svona um það bil 20 ár aftur í tím- ann í íslenskri kvikmyndagerð og án þess að á nokkra íslenska mynd sé hallað þá er þessi án efa sú verst leikna hingað til. Þetta þarf þó alls ekki að skrifast alfarið á nóboddí- ana sem eru í forgrunni þar sem handritið minnir helst á eitthvað sem gæti hafa verið talað tungum á samkomu hjá Krossinum að því gefnu að allir væru á sýru. Sam- tölin eru svo hryllilega skrifuð að maður tekur á köflum út líkamleg- ar þjáningar í hreinni meðvirkni. Og þetta er svo slæmt að þunga- vigtarmaður og alvöru leikari eins og Gunnar Eyjólfsson er eins og illa gerður hlutur þegar hann þarf að koma þvælunni frá sér. Í raun er minn góði kunningi Þráinn Bertels- son eini maðurinn sem heldur hér haus í örsmáu hlutverki ráðherra í ríkisstjórn. Leikur hans ber svo af að maður á þá ósk heitasta að hann vippi sér bak við myndavél- ina og reddi þessu. Þá hefði Boð- beri kannski getað orðið gaman- myndin Nýaldarlíf en maður er einhvern veginn alltaf að bíða eftir því að það komi á daginn að menn séu hér að grínast með þessa skelfi- legu trúboðsþvælu sem gengur út á að hér gangi djöflar lausir, rétt eins og Móa og Pétur, og þeir hafi eitr- að sálir okkar allra með flatskjáa- fíkninni sem setti Björgólf Guð- mundsson og heila þjóð á hausinn. Því miður virðist fólki hér vera fúl- asta alvara og fyrir utan tvo til þrjá meðvitaða brandara virðist myndin aðallega vera fyndin alveg óvart. Þórarinn Þórarinsson Niðurstaða: Það hlýtur að þurfa of stóran skammt af barnslegri bjartsýni til þess að reyna að koma þessari þvælu á hvíta tjaldið þannig að maður kann eiginlega ekki við að vera leiðin- legur. En Boðberi er því miður drasl. Fólk ætti samt endilega að sjá hana til þess að hlæja að henni þótt það hafi varla verið ætlun höfundanna. Hroðberi ÍSLAND Í TÓMU TJÓNI Drungi djúprar kreppu svífur yfir vötnum í kvikmyndinni Boð- bera sem var frumsýnd í vikunni. TILBOÐS- VERÐ Í BÍÓ KL.1 SMÁRABÍÓ KL.1 SMÁRABÍÓ KL.4 BORGARBÍÓKL.3.30 HÁSKÓLABÍÓ KL.4 BORGARBÍÓ SP AR BÍ Ó ÁLF. KL. 1 Í 3D, KL 1 Í 2D ÁLFABAKKI KL. 1 SELFOSS KL. 3 KRINGLAN KL. 3 KEFLAVÍK KL. 3 KRINGLAN KL. 1 Í 3D ÍSL OG ENSKU AKUREYRI KL. 1.20 Í 3D OG 2D SELF KL. 3.30 2D KEFL. KL. 3 2D TILBOÐ KR. 600 Í 2D KR. 950 Í 3D  S.V. - Mbl   Fbl

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.