Fréttablaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 26
18 25. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Stóra tunglgabbið var röð greina sem
birtust í dagblaðinu New York Sun.
Fyrsta greinin af sex birtist 25. ágúst
1835 en þær fjölluðu um meintan
fund lífs og jafnvel siðmenningar á
tunglinu. Uppgötvanirnar voru rang-
lega eignaðar John Herschel sem var
frægasti stjörnufræðingur síns tíma.
Herschel fannst gabbið fyndið í upp-
hafi og haft var eftir honum að hans
eigin uppgötvanir gætu aldrei orðið jafn spennandi. Hann varð þó seinna
pirraður á að svara endalausum spurningum fólks sem trúði gabbinu.
Talið er að Richard A. Locke sem vann hjá blaðinu á þessum tíma sé höf-
undur greinanna. Hann viðurkenndi það þó aldrei opinberlega og seinna
voru fleiri bendlaðir við skrifin. Sagan segir að sala blaðsins hafi aukist
gríðarlega vegna greinanna.
ÞETTA GERÐIST: 25. ÁGÚST 1835
Stóra tunglgabbið
„Það verður hátíðarsamkoma til að
minnast þessa atburðar sem mark-
aði mikil tímamót í náttúruvernd hér
á landi,“ segir Hjördís Finnbogadótt-
ir, einn meðlima í undirbúningsnefnd
fyrir hátíð sem haldin verður í dag í
tilefni þess að fjörutíu ár eru liðin frá
sprengingu Miðkvíslarstíflu í Laxá
sem fellur úr Mývatni. Sprengingin var
fréttnæmasti og afdrifaríkasti atburð-
ur Laxárdeilunnar.
„Með sprengingunni var verið að
mótmæla áformum um þrjár stórvirkj-
anir,“ útskýrir Hjördís og telur þær
upp: „Virkjuninni í Laxárárglúfrum við
Brúar sem framkvæmdir voru hafn-
ar við. Og svo tveimur stórvirkjunum
sem voru á teikniborðinu, Laxárvirkj-
un efri með tilheyrandi stíflu og lóni og
Krák árvirkjun sem átti að vera neðan-
jarðar sunnan við bæinn Gautland.“
Laxárdeilan markaði að sögn Hjör-
dísar þáttaskil í átökum um sjónarmið
náttúruverndar og virkjana hér á landi.
Hún stóð á árunum frá 1968 til 1974 og
réttarhöld yfir sprengjumönnum stóðu
vikum saman.
„Miðkvíslarstífla var ólögleg og
það voru ekki fullnægjandi leyfi fyrir
henni. Það kemur fram í dómsskjölun-
um. Hún var líka reist í andstöðu við
heimamenn,“ segir Hjördís og bætir
við að ekki hafi heldur verið gert eign-
arnám í jörðunum. „Virkjunaraðilan-
um tókst aldrei að sýna fram á að hann
hefði haft verulegt fjárhagstjón af þess-
ari sprengingu. Það var óverulegt.“
Hjördís segir sprenginguna hluta
af baráttu heimamanna sem byrjaði
sem hagsmunagæsla til að gæta eigna
og atvinnuréttinda. „Það var ekkert
hlustað á þá fyrr en þeir drógu fram
dýn amítið. Þetta var náttúrulega fólk
sem bjó á bökkum Laxár og Mývatns
og lifði af landbúnaði aðallega. Laxár-
dalur hefði farið undir vatn og lífríki
Mývatns og Laxár hefði eyðilagst ef öll
þessi virkjunaráform hefðu náð fram
að ganga.“
Boðun um sprenginguna var leyni-
leg. „Það hefði verið auðvelt með einu
handtaki að loka aðgangi út í Helgey
sem þarf að fara í til að komast að stífl-
unni og þá hefðu menn ekki getað gert
þetta,“ upplýsir Hjördís. Boðað var til
aðgerðanna í erfidrykkju eftir jarðaför
á Skútustöðum. „Það var bara hnippt í
þá sem menn vissu að studdu þennan
málstað.“ Ekki er vitað nákvæmlega
hversu margir tóku þátt í sprenging-
unni en 88 lýstu verkinu á hendur sér
skriflega.
Hátíðarhöldin hefjast með athöfn
í Helgey við Miðkvísl klukkan sex í
kvöld. Þar verður afhjúpaður minn-
isvarði um stíflurofið, einn sprengju-
manna ávarpar samkomuna og kirkju-
kór syngur. Hátíðin heldur svo áfram í
félagsheimilinu Skjólbrekku þar sem
ungir og gamlir hittast, rifja atburði
upp í myndum og máli og gleðjast
saman. martaf@frettabladid.is
MIÐKVÍSLARSTÍFLA: SPRENGD FYRIR FJÖRUTÍU ÁRUM
Voru tímamót í náttúruvernd
VIÐ SPRENGJUSTAÐINN Hjördís Finnbogadóttir segir boð um sprenginguna hafa gengið út leynilega í erfidrykkju. MYND/ÚR EINKASAFNI
BLAKE LIVELY ER 23 ÁRA Í DAG
„Það eru kvikindisleg-
ar, óöruggar og slúðrandi
stelpur alls staðar en ég
held að þær séu ekki illa
innrættar. Ég held kannski
að mismunandi uppeldi
geri þær óöruggar.“
Blake Lively er bandarísk
leikkona. Hún er best þekkt
fyrir hlutverk sitt í þáttunum
Gossip Girl.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
séra Ágúst Sigurðsson
sem lést sunnudaginn 22. ágúst sl.
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 27. ágúst kl. 13.
Guðrún L. Ásgeirsdóttir
Lárus Ágústsson Signe Gjerlufsen
María Ágústsdóttir Bjarni Þór Bjarnason
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Boga Ingimarssonar
Hæstaréttarlögmanns,
Sigtúni 57, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Droplaugastaða fyrir
góða umönnun.
Sigrún Sigurþórsdóttir
Sigurþór Bogason
Benedikt Bogason Úlla Káradóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
Sævar E. Guðlaugsson
Byggðarenda 4, Reykjavík,
lést mánudaginn 16. ágúst á Landspítala við
Hringbraut. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 27. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar vinsam-
legast afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Karitas hjúkrunarþjónustu í síma 770 6050 og
karitas@karitas.is.
Karen Ólafsdóttir
Sigrún Sævarsdóttir Bouius
Sólrún Sævarsdóttir Guðmundur Sigurðsson
Anton P. Gunnarsson Elsa I. Konráðsdóttir
Ólafur S. Ólafsson Mari Sampu
og afabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda Þorsteinsdóttir
Laugateig 11, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn
14. ágúst verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtu-
daginn 26. ágúst klukkan 15.00. Jarðsett verður í
Gufuneskirkjugarði.
Berglind Bragadóttir
Hjálmar Jónsson Ingibjörg Klemenzdóttir
Brynjar Jónsson Steinunn Steinarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær dóttir mín og systir,
Jóhanna Silja
Vilhjálmsdóttir
Hjallabraut 19, Hafnarfirði,
lést föstudaginn 20. ágúst. Útförin fer fram frá
Víðistaðakirkju mánudaginn 30. ágúst kl. 15.
Birna Ósk Eðvarðsdóttir
Óskar Jóhann Birnuson
Minningarathöfn um móður mína,
Sigrúnu Sveinsdóttur
Balí
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 26. ágúst
kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar skal bent
á ABC barnahjálp.
Jón Alexander Mír
og aðrir aðstandendur.
Okkar ástkæri,
Hannes Þór Helgason,
Háabergi 23, 221 Hafnarfirði
sem lést sunnudaginn 15. ágúst, verður jarðsunginn frá
Víðistaðakirkju fimmtudaginn 26. ágúst kl. 13.00.
Jóna Conway Helgi Vilhjálmsson
Kristín Helgadóttir Gísli Jón Gíslason
Ingunn Helgadóttir Atli Einarsson
Rut Helgadóttir Jóhann Ögri Elvarsson
Helgi Már Gíslason Ása Karen Jónsdóttir
Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir
Patrik Snær Atlason, Nadía Atladóttir, Sunneva Gísladóttir
og Ísak Atli Atlason.