Fréttablaðið - 27.09.2010, Qupperneq 17
FASTEIGNIR.IS
27. SEPTEMBER 201039. TBL.
Fasteignasalan Miklaborg er með á skrá íbúð í
litlu fjölbýli við Skálagerði 13 í Reykjavík.
F asteignin er þriggja herbergja endaíbúð á ann-arri hæð, 63 fermetrar ásamt 4,7 fermetra sér-geymslu, alls birt stærð 67,7 fermetrar.
Sameiginlegur inngangur er í húsið, en íbúðin
sjálf skiptist niður með eftirfarandi hætti: Parket-
lögð forstofa, parketlagt hjónaherbergi með skápum
og flísalagt baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu
og glugga. Þá er eldhús með innréttingu, litlum borð-
króki og gluggum á tvo vegu og stofa er parketlögð og
með útgangi á svalir. Þá er óupptalið lítið parketlagt
herbergi, sameiginlegt þvottahús í kjallara, hjóla- og
vagnageymsla og sérgeymsla.
Íbúðinni fylgir ekki fatahengi í forstofu og hill-
ur í geymslu. Ytra byrði hússins fer að þarfnast við-
gerða.
Þess má geta að fasteignina er hægt að skoða betur
inni á vefsíðu Mikluborgar, www.miklaborg.is, í Inn-
liti, þar sem eru grunnteikningar og myndir af hverju
rými fyrir sig.
Endaíbúð í litlu fjölbýli
Íbúðin er þriggja herbergja og henni fylgja sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla og sérgeymsla. MYND/ÚR EINKASAFNI
heimili@heimili.is
Sími 530 6500
www.landmark.is - sími: 512 4900 - Bolholti 4
Löggiltir fasteignasalar Magnús Einarsson og Sigurður Samúelsson
Hjallahlíð - 270 Mosfellsbær
Opið hús mánudaginn 27. september frá 18:00 til 18:30
· 272 fm einbýli með 4
svefnherbergjum
· 2600 fm lóð með
möguleikum
· Frábær staðsetning –
sveit í borg
Upplýsingar veitir Þórarinn Thorarensen
í síma 770 0309
Verð 54,9 milljónir