Fréttablaðið - 06.10.2010, Blaðsíða 46
26 6. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
FÉSBÓKIN
„Er að bilast yfir því að fá að
vera með Madonnu-mæk á Sirk-
us Sóley-sýningunni á Akureyri.“
Margrét Erla Maack um sýningar Sirkus
Sóley sem hefjast í menningarhúsinu
Hofi á Akureyri í lok október.
„Það á eftir að bætast hellingur við.
Við búumst við að þetta verði 200
manna mót og það er allt útlit fyrir
að það gangi upp,“ segir Valur Heiðar
Sævarsson, formaður mótanefndar
Pókersambands Íslands.
Yfir eitt hundrað keppendur eru
skráðir til leiks á Íslandsmótið í póker
sem fer fram á Hótel Örk í Hvera-
gerði dagana 15. til 17. október. 60.000
krónur kostar að skrá sig á mótið, en
einnig er hægt að komast inn með því
að vinna smærri mót víða um land
og á vefsíðu Betsson. Heildarvinn-
ingsfé er því komið yfir sex milljónir.
Valur og félagar búast við um 200
keppendum og ef það rætist fer vinn-
ingsfé yfir tíu milljónir króna.
„Á síðasta Íslandsmóti fjölgaði
skráningum mikið þegar tíu dagar
voru í mót. Þá gerðist alveg svakalega
mikið. Það var mikið af liði sem hafði
verið að draga þetta – maður er að
festa 60.000 kall þannig að fólk bíður
með það,“ segir Valur.
Valur segist hafa heyrt gagnrýni á
þátttökugjald mótsins, sem er 20.000
krónum hærra en á síðasta Íslands-
móti. „Mönnum finnst þetta hátt, en
þetta er mjög lágt miðað við sam-
bærileg mót úti um allan heim,“ segir
Valur og bendir á að hægt sé að vinna
sig inn á netinu fyrir afar
lágar upphæðir. Hann
segir pókerheiminn taka
vel í mótið, sem stefnir í að
vera það stærsta sem hald-
ið hefur verið hér á landi.
„Maður er að heyra að menn
séu orðnir gríðarlega spennt-
ir.“ - afb
Hundrað skráðir á milljónapókermót
MILLJÓNAMÓT Valur Heiðar,
mótsstjóri Pókersam-
bandsins, segir Íslands-
mótið stefna í að verða
það stærsta sem haldið
hefur verið hér á landi.
„Þeir sem hafa lesið bókina segj-
ast þekkja hluti úr fari ákveðinna
manna í ákveðnum persónum. Ég
get svo sem ekki neitað því að þeir
sem hafa verið í framlínu sveitar
svokallaðra útrásarvíkinga gætu
kannast við sig í þessari bók,“
segir Óskar Hrafn Þorvaldsson
fréttastjóri.
Fyrsta bók Óskars kemur út í
lok október á vegum Forlagsins,
spennusaga sem hlotið hefur nafnið
Martröð millanna. Óskar segir það
ekki hafa verið sérstakt metnaðar-
mál að persónurnar væru byggð-
ar á þjóðþekktum fyrir myndum,
en bætir við að efni viðurinn hafi
verið fyrir framan hann og per-
sónurnar dragi dám af því.
„Þetta er bók um athafnir og
örlög nokkurra útrásarvíkinga.
Einn þeirra er myrtur og inn í
söguna fléttast lesblindur útrásar-
víkingur, siðblindur bankamað-
ur, belgískir demantakaupmenn,
rússneska mafían, súlustaðakóng-
ur sem stígur ekki í vitið og sein-
heppinn leigumorðingi frá Lithá-
en,“ segir Óskar þegar hann er
beðinn að lýsa bók sinni. Óskar
hefur starfað sem blaðamaður
í um áratug og hefur oft vakið
athygli fyrir störf sín. Hann hætti
sem fréttastjóri Stöðvar 2 síðasta
vor og sneri sér þá að skrifum.
„Ég var búinn að ganga með þetta
í maganum lengi, sagan hafði að
einhverju leyti mótast í hausnum
í langan tíma. Eftir að ég hætti á
Stöð 2 hafði ég allt í einu fullt af
tíma sem ég hafði ekki áður og
byrjaði að skrifa. Laufey konan
mín hjálpaði mér mikið og barði
mig áfram. Án hennar hefði þessi
bók aldrei komið út.“
Óskar hefur í gegnum tíð-
ina fjallað talsvert um íslenskt
viðskiptalíf og útrásarvíkinga.
Honum þótti því liggja beint við
að nýta sér þá þekkingu sem hann
býr yfir við bókarskrifin. „Þetta
er það svið sem ég hef sinnt mest
og fylgst hvað best með. Í bókinni
er reynt að varpa ljósi á yfirgengi-
legan lífsstíl, óhóf og munað. Þetta
er heimur sem fólk hefur fengið
að gægjast inn í en þegar kafað er
aðeins dýpra held ég að öllum verði
ljóst að í þessum heimi er fólginn
ákveðinn sjúkleiki.“
Aðspurður segir Óskar að hann
væri alveg til í að skrifa fleiri
bækur, hann sé þegar með tvær
aðrar sögur í kollinum. „En maður
verður að hlusta á fólkið. Ef það
skapast áhugi hjá fólki þá koma
ábyggilega fleiri bækur, ef það
þarf að brenna óselt upplagið þá
pirra ég íslenska bókaunnendur
líklega ekki meira,“ segir rithöf-
undurinn, sem tekur sjálfan sig
ekki mjög hátíðlega: „Ég lít ekki
á þessa bók sem epískt stórvirki.
Stefnan var að búa til bók sem fólk
gæti skemmt sér yfir og ég vona að
það hafi tekist.“
hdm@frettabladid.is
ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON: SUMIR MUNU KANNAST VIÐ SIG Í BÓKINNI
Gefur út spennusögu um
sjúkan heim útrásarvíkinga
SKRIFAR UM ÚTRÁSARVÍKINGA Fyrsta bók Óskars Hrafns Þorvaldssonar, Martröð
millanna, kemur út í lok mánaðarins. Höfundurinn segir að einhverjar persónur í
bókinni séu byggðar á kynnum hans af útrásarvíkingum og fjölmiðlafólki.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Aðalmeðferð í máli Ríkislögreglustjóra gegn ástr-
alska hönnuðinum Sruli Recht fór fram í sal 202 í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Sruli er gefið að sök
að hafa haft undir höndum vopn sem hann hafi ekki
haft leyfi fyrir en um er að ræða regnhlífar með
hnúajárni fyrir handfang. Leikhús fáranleikans,
segir lögmaður Sruli, Vilhjálmur Hans Vilhjálms-
son.
Að sögn Sruli voru hnúajárnin sérframleidd í
Kína. Þegar hann hugðist vitja þeirra var hann
stoppaður af tollinum og tilkynnt að hann þyrfti
sérstakt leyfi fyrir framleiðslunni. „Þannig að
ég varð mér úti um slíkt og fékk hnúajárnin.“
Vilhjálmur Hans bætir því við að Sruli hafi
skrifað bréfið til Ríkislögreglustjóra á ensku
en fengið svar á íslensku. „Og hann skilur ekki
íslensku nema að takmörkuðu leyti,“ segir Vil-
hjálmur. Þegar regnhlífarnar voru hins vegar
komnar upp mættu lögreglumenn á staðinn og
gerðu þau upptæk, þar sem leyfi Sruli hljómaði
bara upp á eitt hnúajárn, ekki fjögur. „Lögreglan
sagði að þetta væri mér að kenna, ég hefði átt að
lesa leyfisbréfið betur.“
Vilhjálmur segir hnúajárnin margfalt léttari en
venjuleg hnúajárn, þeim fylgi því engin högg-
þyngd. „Það fylgir þeim því minni hætta en
stafar af venjulegum hamri. Svo eru líka til
verk þar sem hnúajárn eru notuð, svo sem
blómapottar, kaffibollar og svona mætti
lengi telja,“ segir Vilhjálmur. - fgg
Hönnuður sakaður um vopnaburð
Í DÓMSSALNUM Sruli Recht er gefið að sök að hafa
flutt inn ólögleg vopn en um er að ræða regnhlífar með
hnúajárni í stað handfangs. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM