Fréttablaðið - 11.10.2010, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 11.10.2010, Blaðsíða 17
FASTEIGNIR.IS 11. OKTÓBER 201041. TBL. Fasteignamarkaðurinn ehf. hefur til sölu 263,6 fm einbýlishús á tveimur hæðum með inn- byggðum 42,9 fm bílskúr í Erluási í Hafnarfirði. Ásett verð er 69 milljónir en skipti á minni eign á svipuðum slóðum möguleg. Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum og úr henni er innangengt í bílskúr. Hol er flísalagt með föstum skápum á vegg. Gestasalerni er flísalagt með glugga og góðum innréttingum og flísalögðum sturtu- klefa. Hjónaherbergi er parkettlagt og með fataskáp- um. Stofan er stór og flísalögð, með aukinni lofthæð og arni. Fallegt útsýni er úr stofu. Eldhúsið er einnig flísalagt, opið við stofu, með vönduðum innréttingum úr kirsuberjaviði. Flísalagt milli skápa. Stór eyja er í eldhúsi með helluborði, háfi og skápum yfir. Granít er á borðum og fylgja ísskápur og uppþvottavél. Úr eld- húsi er gengið út á stórar svalir til suðurs og vesturs og þaðan á lóð. Á neðri hæð hússins er gengið um flísalagðan stiga með næturlýsingu. Komið er í stórt parketlagt alrými með föstum hillum og útgangi á verönd til vesturs. Þrjú rúmgóð parketlögð barnaherbergi eru á neðri hæð, öll með fataskápum. Gengið út á lóð úr tveimur herbergj- anna. Stórt flísalagt baðherbergi er einnig á neðri hæð með glugga, baðkari og flísalögðum sturtuklefa. Þvottaherbergi er flísalagt og með innréttingum. Bílskúrinn er lagður epoxy á gólfi, mótor er á bíl- skúrshurð, rennandi vatn, rafmagn og hiti. Einnig er geymsla inn af bílskúr. Byggingarár hússins er 2002. Húsið er staðsteypt og múrhúðað að utan. Múrverk hússins þarfnast lagfæringa, þak er í góðu lagi. Einbýli á útsýnisstað heimili@heimili.is Sími 530 6500DaníelBjörnsson lögg. leigumiðlari Bogi Pétursson lögg. fasteignasali Finnbogi Hilmarsson lögg. fasteignasali Einar Guðmundsson lögg. fasteignasali Daníel Björnsson lö g. leigumiðlari Bogi Pétursson lögg. fasteignasali Finnbogi Hilmarsson lögg. fasteignasali Einar Guðmundsson lögg. fasteignasali Bogi Pétursson lögg. fasteignasali Finnbogi Hilmarsson lögg. fasteignasali Andri Sigurðsson lögg. leigumiðlari „Fasteigna kóngurinn“ auglýsir: Þægilega há sölulaun!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.