Fréttablaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 13. október 2010 –einfalt og ódýrt TILBOÐ MÁNAÐARINS 15% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM NICOTINELL 204 STK PÖKKUM VERÐ FRÁ 3.941 KR. (2MG FRUIT) TILBOÐ GILDIR ÚT OKTÓBER Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri • www.apotekid.is Nefnd um vist- og meðferðarheimili Viðtöl við einstaklinga sem dvöldu á Upptökuheimili ríkisins 1945-1978 og Unglingaheimili ríkisins 1978-1994 Með erindisbré i, dags. 2. apríl 2007, skipaði forsætisráðherra nefnd á grundvelli laga nr. 26/2007 um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn (vistheimilanefnd). Hlutverk hennar er að kanna hver tildrög þess ha i verið að börn voru þar vistuð, hvernig opinberu eftirliti ha i verið háttað með starfsemi viðkomandi stofnunar og hvort börn sem þar voru vistuð ha i sætt illri meðferð eða o beldi á meðan á dvöl þeirra stóð. Um þessar mundir er vistheimilanefnd að kanna starfsemi Upptökuheimilis ríkisins 1945-1978 og Unglingaheimilis ríkisins 1978-1994. Á starfstíma Upptökuheimilis ríkisins fór starfsemi þess fram að Elliðahvammi í Kópavogi, í starfs- mannabústað við Kópavogshæli og á Kópavogsbraut 17 og Kópavogsbraut 9 í Kópavogi. Á starfstíma Unglingaheimilis ríkisins fór starfsemi þess fram að Kópavogsbraut 17 og Kópavogsbraut 9 í Kópavogi, Sólheimum 7, Sólheimum 17 og Efstasundi 86 í Reykjavík, Smáratúni í Fljótshlíð og Torfastöðum í Biskupstungum. Auk þess var starfrækt á vegum Unglingaheimilis ríkisins meðferðarstöð fyrir unga vímuefnaneytendur á Tindum á Kjalarnesi. Vistheimilanefnd óskar vinsamlegast eftir því að þeir sem dvöldu sem börn eða unglingar á ofangreind- um stofnunum á einhverjum tíma á árunum 1945-1994, og hafa áhuga á því að veita nefndinni viðtal og upplýsa hana um reynslu sína af dvölinni, ha i samband við nefndina fyrir 1. desember n.k. í síma 563 7016 eða á netfangið vistheimili@for.stjr.is. Síðastliðinn laugardag birtist á sama vettvangi grein þar sem ég færði rök fyrir því að lýðræði snerist um að gera upp á milli ólíkrar stefnu (flokka) og manna. Þannig væri þeim refsað sem ekki stæðu sig en hinir verðlaunaðir og með því skapaður hvati til að gera betur. Bent var á að þegar allir væru settir undir sama hatt hætti lýðræðið að virka. Það sama á við þegar afstaða til manna og flokka er tekin fyrst og fremst út frá ímynd og spuna. Það er því afar óheppilegt að ríkisstjórn landsins skuli hafa tekist að taka hina nauð- synlegu drifkrafta lýðræðisins úr sambandi með því að láta umræð- una snúast um að stjórnmálin séu öll ómöguleg og setja alla stjórn- málamenn og flokka í einn flokk sem svo er kallaður stjórnmála- stéttin eða fjórflokkurinn. Því var haldið fram að þessi skilgrein- ing væri skaðleg og einnig ósann- gjörn. Að undanförnu hafa þau stefnu- mál sem framsóknarmenn hafa barist fyrir, með öllum tiltækum ráðum, sannað gildi sitt. Öll þau atriði sem nú eru hvað háværastar kröfur um, og rökin sem menn sjá nú fyrir réttmæti krafnanna, eru nákvæmlega þau sömu og fram- sóknarmenn hafa haldið fram und- anfarin tvö ár. Hér að neðan og í framhaldsgrein mun ég fara yfir þá sögu: I. Endurnýjun Framsóknarflokkurinn réðist fyrst- ur flokka í raunverulega endurnýj- un. Það var talið óþarft að bíða eftir því að nefndir skrifuðu skýrslur. Strax eftir efnahagshrunið ákvað flokkurinn að flýta flokksþingi. Strax í janúar 2009 var haldið stærsta flokksþing í sögu Fram- sóknar. Fyrri formenn ákváðu að víkja og fram fór róttækasta endur- nýjun í sögu íslenskra stjórnmála- flokka. Sú endurnýjun kom alfar- ið frá grasrót flokksins. Almennir flokksmenn sem vildu sjá breyting- ar í stjórnmálum tóku völdin. Þeir sýndu líka með afgerandi hætti að tal um klíkur og flokksræði ætti ekki við í Framsókn. Manni sem hafði aldrei starfað í stjórnmálum og hafði gengið í flokkinn tveimur vikum áður var treyst til forystu. [Svo er sagt að allir stjórnmála- flokkar séu lokaðar klíkur þar sem þeir sem ekki hafi starfað í stjórn- málum í áratugi eigi ekki séns.] II. Uppgjör Síðan þá hefur flokkurinn gert allt það sem nú er hvað háværust krafa um í stjórnmálum. Við höfum ekki hikað við að viðurkenna mistök og verið svo ákveðin í því að draga ekkert undan að stundum hafa menn jafnvel verið tilbúnir að taka meira á sig en tilefni var til (eins og kom í ljós með skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis þar sem minna fór fyrir flokknum en ætla hefði mátt af áróðri pólitískra and- stæðinga). Ástæðan er sú að fram- sóknarmenn voru ekki ánægðir með hvernig samfélagið hafði þróast og þess vegna vildu þeir taka ábyrgð, gera upp málin og yfirfara stefn- una. Þegar maður sér hversu vel sumir aðrir flokkar komast upp með afneitun hvarflar stundum að manni að þeir stjórnmálaflokk- ar sem gera upp fortíðina séu bara að draga athygli að sér og frá vand- ræðum annarra. [Svo er sagt að allir stjórnmála- flokkar séu eins og hafi ekkert gert í sínum málum.] III. Lýðræði Flokkurinn samþykkti fjölmarg- ar tillögur um lýðræðisumbætur. Þessar tillögur komu frá almennum flokksmönnum, hugsjónafólki með hugmyndir um hvernig bæta mætti samfélagið. Meðal þess sem kom út úr því voru áform um stjórnlaga- þing, persónukjör og ítrekun þeirr- ar stefnu að aðskilja þyrfti fram- kvæmdarvald og löggjafarvald og styrkja þingið með því að ráðherrar sætu ekki á Alþingi. [Svo er sagt að stjórnmálamenn vilji bara verja óbreytt kerfi.] IV. Ný vinnubrögð og samvinna Aðeins höfðu liðið nokkrir dagar frá flokksþinginu þegar þingflokkur framsóknarmanna sýndi í verki að hann væri reiðubúinn að innleiða ný vinnubrögð í stjórnmálum. Glund- roði ríkti í samfélaginu og brýn þörf var fyrir róttækar aðgerðir í skuldamálum og atvinnumálum. Við töldum að við þær aðstæður hlytu allir að taka höndum saman um að leysa þennan bráða vanda, aðalat- riðið væri að koma á starfhæfri ríkisstjórn. Við buðumst því til að verja minnihlutastjórn, án þess að gera nokkra kröfu um ráðuneyti eða aðrar stöður, gegn því að sú stjórn tæki að sér að hrinda í framkvæmd nauðsynlegum bráðaaðgerðum í skuldamálum heimila og atvinnu- málum. [Svo segja menn að pólitíkin snú- ist bara um að ná völdum og emb- ættum fyrir sína flokka og það vanti allt traust og samstarfsvilja.] V. Traust og ábyrgð Minnihlutastjórn var mynduð án þess að henni hefði tekist að sýna hvernig hún hygðist taka á skulda- og atvinnumálunum. Við ákváðum að sýna stjórninni traust en sömd- um um að ef ríkisstjórninni tækist ekki að setja saman tillögur í tíma mundum við leggja henni til lausn- ir. Þetta var í febrúar 2009 og við töldum ástandið þá þegar svo alvar- legt að kynna þyrfti aðgerðir strax á fyrstu dögum stjórnarinnar, þannig að þegar þrjár vikur voru liðnar án aðgerða virtist það heil eilífð. Það var ekki hægt að bíða lengur. Við kynntum því heildar- tillögur að bráðaaðgerðum í efna- hagsmálum. [Svo segja menn að í stjórnmál- um ríki ekkert traust, engin ábyrgð, ekkert frumkvæði.] VI. Lausnir Þrátt fyrir fyrirheit um samráð og samstarf var tillögum okkar tekið með áróðursherferð sem gekk út á að kveða þær í kútinn, sérstak- lega átti það við um tillöguna um almenna skuldaleiðréttingu. Við héldum þó áfram að berjast fyrir tillögum okkar á móti straumn- um vegna þess að við sáum að þær væru framkvæmanlegar og nauð- synlegar. Fáeinir þingmenn ann- arra flokka tóku undir og Hags- munasamtök heimilanna hófu baráttu fyrir sams konar lausn- um. Smátt og smátt hafa menn áttað sig á gildi tillagnanna og nú er umræða um þær í hámarki með sömu rökum og við höfum beitt. Það sýndi sig enda að það sem við héldum fram sem forsendum til- lagnanna, t.d. um flutning lána úr gömlu bönkunum í nýju, reyndist rétt. Í kjölfarið fylgdu fjölmargar aðrar tillögur að lausnum, aðvar- anir og ábendingar um hvað betur mætti fara og ráð um hvernig best væri að standa að því. Margt af því hefur þegar sannað gildi sitt og er nú ofarlega í umræðunni eins og rakið verður í næstu grein. Hvað getum við gert? II Efnahagsmál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins Öll þau atriði sem nú eru hvað hávær- astar kröfur um, og rökin sem menn sjá nú fyrir réttmæti krafnanna, eru nákvæmlega þau sömu og framsókn- armenn hafa haldið fram undanfarin tvö ár.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.