Fréttablaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 19
Stórar , þykkar, síðar og jafnvel pínulítið
munstraðar peysur eiga upp á pallborðið í vetur
ef marka má tískutímaritið www.vogue.com.
Sannarlega notaleg tíska þar á ferð.
Farmers Market hefur sett
á markað haust- og
vetrarlínu.
„Þetta er í raun eðli-
legt framhald á því
sem við höfum verið
að gera; við byrjuð-
um á að vinna peys-
ur upp úr íslenskri
ull og höfum smám
saman verið að
bæta við þær kjól-
um, buxum og yfir-
höfnum og erum
að verða komin
með alklæðnað,“
segir Jóel Páls-
son, annar eig-
enda Farmers
Market sem hefur sent
frá sér haust- og vetrar-
línu. Hún samanstend-
ur meðal annars af
peysum, yfirhöfnum
og nærfötum fyrir
dömur og herra og
á Bergþóra Guðna-
dóttir sem endra-
nær heiðurinn að
öllum fötum vöru-
merksins.
„Við lögðum
upp með þá hug-
mynd að hanna
hvort tveggja í
senn fallegar og hlý-
legar yfirhafnir, á
meðan nærfötin eru
okkar útfærsla á sígildum ull-
arnærfötum sem Íslending-
ar hafa klæðst gegnum
tíðina.“ Þá er óupp-
talinn sérstak-
ur barnagalli.
„Við höfum
áður hann-
að á börn
en þetta er
fyrsta flík-
in sem við
hönnum
sérstak-
lega með
ungabörn í
huga,“ segir
Jóel.
Hann getur þess að
erlendis hafi viðtökurn-
ar við Farmers Market
farið fram úr björtustu
vonum þar sem hópur söluað-
ila stækkar stöðugt. „Fötin
fást nú í Nörgaard á
Strikinu í Kaupmanna-
höfn og Japanar eru
mjög spenntir fyrir
okkar vörum, þar
hafa Nephent-
ers, Mitshukoshi og
Beams bæst í hóp
söluaðila,“ nefnir
hann sem dæmi.
- rve
Heitir kroppar
Ný útfærsla á anorakkspon-
sjóinu HOF. Alpaka og ull
með viskósfóðri og tölu úr
lambshorni.
Viktor & Rolf vilja að konur
klæðist karlmannsskyrtum og
jafnvel að þær séu hver ofan á
annarri.
Að sjá konur í karlmannsskyrtu er
ekki endilega nýtt af nálinni. Að
sjá konur í hverri skyrtunni yfir
annarri er þó eitthvað sem ætti að
vekja athygli og jafnvel undrun.
Á tískusýningu tvíeyk-
isins Viktor & Rolf mátti
þó sjá hið síðarnefnda á
lögulegum fyrirsætum,
sem þrömmuðu
eftir tískupöll-
unum í París á
grófum, litríkum
skóm í anda sjö-
unda áratugarins.
Hvort sem þær
voru í buxum
eða pilsi, brúð-
arkjól eða þunn-
um sumarkjól
minnti lína
tvímenning-
anna á að karlmanns-
skyrtur hæfðu hinum
fínustu tískudrósum.
Litirnir voru léttir og
leikandi með hvítum
og svörtum undirtóni
og einstaka bleikum og
bláum lit.
- jáb
Konur í
karlaskyrtum
Reykja-
hlíð ungbarna-
galli er hluti af
nýju haust- og
vetrarlínu
Farmers Mark-
et. Hann fæst
í stærðum
6-12 og 12-18
mánaða.
!"
#
$
%
&'
( !"#"$$ )
*+ $ $,-
/0
$
!
* 12. .
, $
###'454