Fréttablaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 30
 13. október 2010 MIÐVIKUDAGUR menning@frettabladid.is Tónlist ★★★ Rigoletto eftir Verdi Íslenska óperan Leikstjórn: Stefán Baldursson Hljómsveitarstjórn: Daníel Bjarnason Rigoletto var frumsýnd í Íslensku óperunni á laugardagskvöldið. Þar í aðalhlutverki er kroppinbakurinn Rigoletto, sem er eins konar hirð- fífl. Sérgrein hans er að gera grín að óvinum vinnuveitanda síns. Það er hinn kvensami hertogi af Mantua. Einn af þessum óvinum er greifinn Monterone. Hertoginn hefur sví- virt dóttur hans og Monterone er ekki ánægður. Þegar hann kemur til að skammast gerir Rigoletto gys að honum. Þá verður greifinn brjál- aður og leggur bölvun á hann. Það er til marks um fremur flata leikstjórn Stefáns Baldurssonar að þessi lykilatburður var hálf-ómerki- legur, a.m.k. á frumsýningunni. Bergþór Pálsson var í hlutverki Monterone. Þótt hann sé flottur söngvari er hann ekki með sérlega kraftmikla rödd. Leikstjórinn hefði átt að útfæra bölvunina betur. Ekki bara láta Bergþór syngja. Hann hefði átt að gefa honum meira vægi. Láta söngvarann leggja ríkulegri áherslu á bölvunina með leik og lát- bragði. Bergþór er frábær leikari, en hér fékk hann ekki að njóta sín. Upphafssenan var líka skringi- leg. Hún var einhvers konar útrás- arpartí – ef hægt er að nota það orð. Auðugur gestgjafi og nóg af fáklæddum konum. Erótískir til- burðir kvennanna voru tilgerðarleg- ir og klisjukenndir. Dansarnir bein- línis hallærislegir. Kannski áttu þeir að vera það, en þeir hefðu þá mátt vera fyndnari. Og hertoginn, gest- gjafinn sem var leikinn af Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni, var svo rogginn, svo fullur af gorgeir, að það missti marks. Jóhann Friðgeir er enginn sérstakur leikari, en hefði ekki verið hægt að leikstýra honum betur? Jóhann Friðgeir er þó eftirtektar- verður söngvari. Hlutverkið er heldur hátt fyrir rödd hans en hann veldur því nokkuð vel. Hæðin gerði það helst að verkum að mýkri hlið- ar söngsins komu ekki sérlega vel fram. Jóhann þurfti of mikið að einbeita sér að tæknilegum hliðum söngsins. Það vantaði glæsileikann og áreynsluleysið. Meiri kraftur var í söng Ólafs Kjartans Sigurðarsonar, sem var í hlutverki Rigolettos. Og leikurinn var framúrskarandi. Sambandið við dóttur hans var ekta. Hefndarþorst- inn, þegar hún var flekuð af hertog- anum, kom beint frá hjartanu. Ólaf- ur Kjartan hefur sterka nærveru, burtséð frá allri leikstjórn. Söngur- inn var samt dálítið einhæfur, full- mikið í efsta gírnum. Meiri undir- alda, fleiri litir og andstæður hefðu gert túlkunina áhrifameiri. Stjarna sýningarinnar var Þóra Einarsdóttur í hlutverki dóttur Rigolettos. Hjá henni fór allt saman, trúverðugur leikur og margbrotinn, forkunnarfagur söngur. Frammi- staða hennar var einstök. Aðrir söngvarar í minni hlut- verkum stóðu sig ágætlega. Jóhann Smári Sævarsson var notalega subbulegur sem leigumorðingi. Systir hans, sem Sesselja Kristj- ánsdóttir lék, var glyðruleg á rétt- an hátt. Ágúst Ólafsson í hlutverki kokkálaðs eiginmanns var frábær. Aðrir voru líka góðir. Og kórinn var flottur. Daníel Bjarnason stjórnaði tón- listinni. Hljómsveitin var pottþétt, með sitt á hreinu. Og ákjósanlegt jafnvægi var á milli söngvaranna. Styrkleikahlutföllin á milli söngv- ara og hljómsveitar voru þó ekki alltaf rétt. Maður hefði viljað fyllri hljómsveitarhljóm og veikari söng hér og þar. Sérstaklega í byrjun. En dramað í hljómsveitarröddinni skil- aði sér almennt prýðilega. Lítið er hægt að segja um bún- inga Filippíu Elísdóttur og leik- mynd Þórunnar S. Þorgrímsdóttur. Hvort tveggja var látlaust; fátt sem gladdi augað. Maður dáðist ekki að neinu. En það virkaði. Lýsing Páls Ragnarssonar var líka smekkleg, og rétta andrúmsloftið var a.m.k. alltaf til staðar. Í það heila er Rigoletto ágæt sýn- ing, þrátt fyrir þá annmarka sem hér hafa verið tíundaðir. Sumt var jú hallærislegt og skaut skökku við. Það vandist samt undarlega vel, meira og meira eftir því sem á leið. Og það var auðfundið að söngvar- arnir skemmtu sér konunglega í hlutverkum sínum. Þessi smitandi sönggleði skipti máli. Hún á ekki lít- inn þátt í því að sýningin fær hér þrjár stjörnur. Jónas Sen Niðurstaða: Á margan hátt góð upp- færsla á Rigoletto. Tónlistarflutningur- inn var yfirleitt vandaður. Leikstjórnin hefði mátt vera meira spennandi. Sumir söngvararnir voru frábærir, aðrir síðri. Bölvunin í óperunni LJ Ó SM YN D /G ÍS LI E G IL L H R A FN SS O N Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. SENDU SMS EST ELV Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! FULLT AF AUKAVINNINGUM TÖLVULEIKIR • DVD MYNDIR GOS OG MARGT FLEIRA! 10. HVER VINNUR! VILTU VINNA EINTAK! KOMIN Á DVD!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.