Fréttablaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 26
13. október 2010 MIÐVIKUDAGUR18
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Árið 2010 hefur verið útnefnt ár lungna og verður fyrsti
alþjóðlegi dagur öndunarmælinga haldinn á morgun. „Þetta
er átak sem er stofnað til af alþjóðlegum samtökum lungna-
lækna í Bandaríkjunum, Evrópu og víðar. Yfir 600 viðburð-
ir eru skipulagðir um allan heim en markmiðið er að vekja
athygli á því hversu mikilvægt það er að greina lungnasjúk-
dóma snemma svo að hægt sé að hefja viðeigandi meðferð,“
segir Dóra Lúðvíksdóttir, sérfræðingur í lungna- og ofnæm-
islækningum við Landspítalann. Hún segir það skipta sköp-
um að greina sjúkdóma eins og astma og langvinna lungna-
teppu á byrjunarstigi en að enn sé talsvert um að þessir
sjúkdómar séu vangreindir hér á landi.
„Langvinn lungnateppa er fjórða algengasta dánaror-
sök í heimi, svo það er til mikils að vinna. Í dag eru um
fimm prósent Íslendinga með astma og um átján prósent
fjörutíu ára og eldri með skerta öndun sem getur bent til
langvinnrar lungnateppu, þannig að vandamálið er nokkuð
útbreitt,“ segir Dóra. Á alvarlegri stigum veldur langvinn
lungnateppa fötlun og lífsgæðaskerðingu en ef hún er greind
á fyrri stigum er hægt að grípa inn í með lyfjum, aukinni
hreyfingu og með því að hjálpa fólki að hætta að reykja,
svo dæmi séu nefnd. Dóra segir hreyfingu sérstaklega þýð-
ingarmikla til að bæta öndun og koma í veg fyrir að ástand
sjúklinga versni. „Hún losar slímið í lungunum og kemur
í veg fyrir síðbúnar bakteríusýkingar í kjölfar veirusýk-
inga. Þá er hægt að draga talsvert úr lyfjanotkun með því
að stunda reglubundna hreyfingu.“
Í tilefni af þessum fyrsta alþjóðlega degi öndunarmæl-
inga verður boðið upp á ókeypis öndunarmælingar í húsa-
kynnum SÍBS við Síðumúla 6 í Reykjavík milli klukkan 15
og 17 á morgun. Hjúkrunarfræðingar og læknar verða á
staðnum og veita upplýsingar og ráðgjöf auk þess sem Jón
Gnarr borgarstjóri er væntanlegur í mælingu klukkan 16.
„Öndunarmæling er einföld rannsókn sem er framkvæmd
með svokölluðum fráblástursmæli og er notuð við greiningu
á lungnasjúkdómum. Með henni má meðal annars greina
hvort fólk sem finnur fyrir einkennum frá öndunarfærum er
með astma eða langvinna lungnateppu. Greiningin er einföld
og tekur einungis 10 til 15 mínútur en fráblástursmælar eru
til á öllum heilsugæslustöðvum,“ segir Dóra. Meðal þeirra
sem hvattir eru til að fara í öndunarmælingu er fólk sem
finnur fyrir einkennum frá lungum, þeir sem reykja eða
hafa reykt, fólk sem er með þrálátan hósta og þeir sem finna
fyrir áreynslumæði eða eru með slímuppgang frá lungum.
vera@frettabladid.is
ALÞJÓÐLEGUR DAGUR ÖNDUNARMÆL-
INGA: HALDINN Í FYRSTA SINN Á MORGUN
Mikilvægt að
greina snemma
EINFÖLD MÆLING Dóra hvetur þá sem finna fyrir einkennum frá önd-
unarfærum til að fara í mælingu en fráblástursmælar eru til á öllum
heilsugæslustöðvum.
STEINN STEINARR skáld fæddist þennan dag árið 1908
„Þegar stór tíðindi gerast eiga litlir kallar að þegja.“
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Lilja Ólafsdóttir
Dvalarheimilinu Nausti, Þórshöfn
sem lést 5. október sl., verður jarðsungin frá
Þórshafnarkirkju, laugardaginn 16. október kl. 14.00.
Ólafía B. Matthíasdóttir Þórarinn B. Gunnarsson
Bjarki Friðgeirsson
Matthildur Jóhannsdóttir
Oddný Matthíasdóttir
Ólafur Stefánsson Steinfríður Alfreðsdóttir
Magnea Stefánsdóttir Þorsteinn Sæmundsson
Einar Stefánsson Guðlaug Ragna Jónsdóttir
Jón Stefánsson
Anna Jenny Einarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
Brynhildar Eydal
Hjúkrunarheimilinu Seljahlíð,
Reykjavík.
Anna Inger Eydal Jóhannes Magnússon
Guðfinna Inga Eydal
Matthías Eydal Bergþóra Vilhjálmsdóttir
Margrét Hlíf Eydal Friðrik Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður, stjúpfaðir,
bróðir, mágur og frændi,
Páll Stefánsson
framreiðslumaður, Asparfelli 6,
Reykjavík
verður jarðsunginn frá Stóra-Núpskirkju laugardaginn
16. október kl. 14.00.
Nataly Stefánsson
Tatiana Helgason Haukur Helgason
Amalía Stefánsdóttir Leif Bryde
Guðný Stefánsdóttir
Hafsteinn Stefánsson Sigrún Óla
og frændsystkini.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
Jóhannes Bergþór Long
Kristnibraut 6, Reykjavík
sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 5. október, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 15. október
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á heima-
hlynningu LSH í síma 543 1159.
Berglind Long Gunnar Bergmann Traustason
Íris Long Guðmundur Guðjónsson
Helen Long Jón Ingi Hilmarsson
og barnabörn.
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi
Kristján Friðriksson
húsasmíðameistari,
Strikinu 10, Garðabæ
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstu daginn
8. október. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
í Garðabæ kl. 13.00 föstudaginn 15. október.
Fríða Friðriksdóttir Ellert Jensson
Ólöf S. Friðriksdóttir Sigurður Tryggvason
Örn Friðriksson og systkinabörn
Ástkær sambýliskona mín, móðir
okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Helga M. Kristjánsdóttir
Kóngsbakka 14, Reykjavík
lést á heimili sínu föstudaginn 8. október.
Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 18. október kl. 13.00.
Bjarni Sigmar Kjartansson
Svanfríður Anna Lárusdóttir
Jónas Elí Bjarnason Marina Kelly
Kristín Ýr Bjarnadóttir Brynjar Már Valdimarsson
barnabörn og barnabarnabarn,
systkini, vinir og vandamenn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi
Haukur Guðjónsson
Klapparhlíð 5, Mosfellsbæ
(áður til heimilis Grænuhlíð 11,
Reykjavík)
lést á heimili sínu 11. október. Jarðsett verður frá
Fríkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 15. október
klukkan 13.00.
Hildur Rúna Hauksdóttir
Hrefna Hauksdóttir Mike Draper
Sverrir Gísli Hauksson Kristín Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Lilja Eygló Karlsdóttir
Lækjasmára 2, Kópavogi,
lést 4. október síðastliðinn á Landspítala Háskóla-
sjúkrahúsi. Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði föstudaginn 15. október klukkan 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Stómasamtök Íslands.
Ragna Gísladóttir Bryngeir Vattnes
Karl Gunnar Gíslason María Einarsdóttir
Ólafur Gunnar Gíslason Sigurbjörg Þorleifsdóttir
Jón Gunnar Gíslason Margrét Árnadóttir
Gísli Gíslason Anna Björg Haukdal
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma
Ása Sólveig
Þorsteinsdóttir
Barðastöðum 9, Reykjavík
lést á Krabbameinslækningadeild Landspítalans við
Hringbraut mánudaginn 11. október. Útför fer fram frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 19. október kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Ljósið.
María Guðmundsdóttir Guðmundur Valur Sævarsson
Áslaug Guðmundsdóttir
Guðlaugur Guðmundsson Þórey Birgisdóttir
og barnabörn.