Fréttablaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 4
4 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
SKIPULAGSMÁL Umhverfisráðherra
hafnaði fyrr í mánuðinum hug-
myndum bæjaryfirvalda í Mýrdals-
hreppi um nýja veglínu þjóðvegar 1
um sveitarfélagið. Það er í samræmi
við tillögur Skipulagsstofnunar, sem
gerði athugasemd við að ekki hafi
verið gerð úttekt á umhverfisáhrif-
um fyrirhugaðra framkvæmda.
Í tillögu að aðalskipulagi hrepps-
ins fyrir árin 2009 til 2025 var gert
ráð fyrir að vegurinn yrði færður
sunnar, allt niður að Dyrhólaósi, og
þaðan í gegnum Reynishverfi, með
göngum í gegnum Reynisfjall og
þaðan í gegnum Víkurfjöru upp að
Vík í Mýrdal.
Ráðherra samþykkti aðalskipu-
lagið að öðru leyti, en tók undir
tilmæli Skipulagsstofnunar um
frestun á breytingu vegalínu. Skipu-
lagsstofnun lagði til frestun sökum
formgalla, en í áliti stofnunarinnar
er sett út á að ekki hafi verið upp-
lýst um áhrif vegarins á náttúru og
sam félag. Hins vegar tók ráðherra
einnig tillit til þess að samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneyti ógilti í júní
ákvörðun sveitarstjórnar um tillögu
að veglínu vegna vanhæfis eins af
sveitarstjórnarmönnum sem stóðu
að tillögunni.
Í skýrslu Skipulagsstofnunar
segir að fyrir utan einstaklinga hafi
ýmsar stofnanir og félagasamtök
gert athugasemdir við fyrirhugaða
legu vegarins út frá sjónar miðum
náttúruverndar. Dyrhólaey og Dyr-
hólaósar eru á Náttúruminjaskrá og
segir í mati Umhverfisstofnunar að
vernda eigi votlendið ofan við ósinn,
einkum vegna mikilvægis þess fyrir
fuglalíf á staðnum.
Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri
Mýrdalshrepps, segir í samtali við
Fréttablaðið að þessi ákvörðun ráð-
herra hafi ekki komið á óvart. Hann
bætir því við að mörg rök séu með
því að velja veginum þessa leið, en
meirihluti sveitarstjórnar hafi talið
þennan kost bestan „með tilliti til
umhverfissjónarmiða og landfræði-
legra aðstæðna“.
Ásgeir segir sveitarstjórnina ætla
að halda sínu striki. „Það er vilji
sveitar stjórnar að þessi veglína sé
inni á skipulaginu og það verður
unnið í því áfram.“
Sveitarstjórn tók málið fyrir á
fundi á mánudag, en ákvað að fresta
afgreiðslu skipulagsins. Þeir munu
funda með lögfræðingi Sambands
íslenskra sveitarfélag í dag til að
fara yfir lagalega hlið málsins.
Ekki er þess að vænta að vegurinn
verði færður á næstunni, þar sem
talsmaður Vegagerðarinnar segir
enga vinnu þar í gangi varðandi
breytingar á vegstæðinu. Þeir sjái
ekkert þar sem kalli á breytingu á
næstunni. thorgils@frettabladid.is
2004 2005 2006 2007 2008 2009
50
40
30
20
Heimili í fjárhagsvandræðum 2004 til 2009
Getur ekki mætt
óvæntum útgjöld-
um*
Erfitt að ná
endum saman
* Viðmiðunarupp-
hæð 130 þúsund
krónur árið 2009,
tekur mið af lífs-
kjarannsókn.
Heimild: Hagstofa Íslands
Vík
Dyrhólaós
Reynisfjara
Víkurfjara
Núverandi vegur
Hugmyndir sveitarstjórnar
Tillögur að nýju vegstæði
EFNAHAGSMÁL Um 39 prósent heim-
ila áttu erfitt með að ná endum
saman á síðasta ári og tæplega 30
prósent gátu ekki mætt óvæntum
útgjöldum, samkvæmt lífskjara-
rannsókn Hagstofu Íslands.
Niðurstöður rannsóknarinnar,
sem nær yfir árin 2004 til 2009,
sýna að þrátt fyrir að fjárhags-
vandi heimilanna hafi vaxið síð-
ustu ár var ástandið í sumum til-
vikum erfiðara árið 2004. Þá náðu
ríflega 46 prósent heimila ekki
endum saman og 36 prósent gátu
ekki mætt óvæntum útgjöldum.
Um 7,1 prósent íslenskra heimila
hafði á síðasta ári lent í vanskil-
um með húsnæðislán eða leigu á
síðustu tólf mánuðum. Hlutfallið
hefur aukist á síðustu árum, en það
var 5,7 prósent árið 2006. Færri
lentu í vanskilum með húsnæðis-
lánin í fyrra en árið 2004, þegar
hlutfallið var 9,4 prósent.
Á síðasta ári höfðu 10,3 prósent
heimila lent í vanskilum með lán
önnur en húsnæðislán á síðustu
tólf mánuðum. Það er aukning frá
árinu 2006, þegar hlutfallið var 5,8
prósent, en svipað og það var árið
2004, þegar það var 10,7 prósent.
- bj
Fjárhagsvandi heimilanna hefur aukist á undanförnum árum en hefur ekki náð því sem var árið 2004:
Tæp 40% heimila ná vart endum saman
Pr
ós
en
t
Pr
ós
en
t
Ráðherra þverneitar
færslu hringvegarins
Umhverfisráðherra hefur hafnað hugmynd um að færa hringveginn um Mýr-
dal niður að Dyrhólaósi. Sveitarstjórn vill göng í gegnum Reynisfjall. Ekkert
umhverfismat gert og vanhæfi sveitarstjórnarfulltrúa ógilti ákvörðun.
VÍK Í MÝRDAL Skipulagið sem lagt var fram fól í sér að hringvegurinn til Víkur færi í
gegnum jarðgöng í Reynisfjalli. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SVÍÞJÓÐ Sænska lögreglan telur
líklegast að byssumaðurinn
í Malmö, sem talinn er bera
ábyrgð á 19 skotárásum þar
undan farið ár, noti reiðhjól til að
komast burt af vettvangi.
Hann sé því löngu farinn
þegar lögregla komi á staðinn.
Að minnsta kosti þykir ljóst að
maður inn þekki vel til í borginni.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi lögreglunnar, sem sænsk-
ir fjölmiðlar skýrðu frá í gær.
Hundruð lögreglumanna vinna
nú að því að upplýsa málið, sem
hefur skotið íbúum borgarinnar
skelk í bringu. - gb
Byssumaðurinn í Malmö:
Kemst líklega
burt á reiðhjóli
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
10°
9°
12°
10°
12°
10°
10°
25°
15°
19°
21°
32°
9°
14°
16°
8°
Á MORGUN
5-10 m/s.
FÖSTUDAGUR
Vaxandi A-átt.
4
4
6
4
3
8
1
1
2
-2
2
9
15
13
10
6
10
7
8
6
8
7
2
2
5
4
3 1 0
2
3
1
SLYDDA EÐA
RIGNING norðan-
og austanlands
í dag en annars
verður úrkomu-
lítið og bjartviðri
suðvestanlands. Á
morgun dregur úr
vindi og úrkomu
en má búast við
stöku slydduéljum
norðan- og austan-
lands. Það kólnar
síðan í veðri á
föstudag með vax-
andi austanátt.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
SVÍÞJÓÐ Rauðgræna bandalagið,
sem er bandalag stjórnarand-
stöðuflokkanna þriggja í Svíþjóð,
hefur klofnað. Fulltrúar bæði
Sósíaldemókrata og Umhverfis-
flokksins hafa staðfest það í við-
tölum við sænska fjölmiðla.
Mona Sahlin, leiðtogi Sósíal-
demókrata, segir hlé verða á
nánu samstarfi flokkanna. Þó
mun samráð verða haft áfram
um ýmis helstu málefni, en reglu-
legir samráðsfundir eru úr sög-
unni í bili.
Ríkisstjórn hægriflokkanna,
sem komst í minnihluta á þingi
eftir kosningar í haust, þarf á
stuðningi Umhverfisflokksins að
halda, en hyggst einnig leita til
Sósíaldemókrata þegar þörf kref-
ur. - gb
Stjórnarandstaðan í Svíþjóð:
Klofningur í
rauðgrænum
RAUÐGRÆNIR LEIÐTOGAR Peter Eriks-
son, fulltrúi Græningja, Mona Sahlin,
leiðtogi Sósíaldemókrata, og Lars Ohly,
leiðtogi Vinstriflokksins. NORDICPHOTOS/AFP
Bátur til Raufarhafnar
Útgerðarfélagið Stekkjavík á Raufar-
höfn fékk á dögunum afhentan nýjan
Cleopatra-bát frá Bátasmiðjunni Trefj-
um í Hafnarfirði. Að útgerðinni standa
bræðurnir Ragnar og Hólmgrímur
Jóhannssynir. Báturinn heitir Nanna
Ósk II ÞH-133.
SJÁVARÚTVEGSMÁL
FILIPPSEYJAR Talið er að ríflega
630 þúsund börn og fullorðnir
hafi orðið fyrir skaða af völdum
fellibyljar sem gekk yfir norður-
hluta Filippseyja fyrr í vikunni.
Fulltrúar Barnaheilla – Save the
Children – eru nú að hefja dreif-
ingu á neyðar varningi til barna
og fjölskyldna þeirra. Í tilkynn-
ingu kemur fram að þúsundir
fjölskyldna hafi þurft að yfirgefa
heimili sín og margar muni ekki
geta snúið til baka.
Samtökin, sem hafa starfað á
Filippseyjum í um 30 ár, munu
dreifa mat og nauðsynlegum hús-
búnaði. - bj
Bregðast við eftir fellibyl:
Um 630 þúsund
urðu fyrir skaða
Dæmdir fyrir kannabis
Tveir karlmenn um þrítugt hafa verið
dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands
fyrir kannabisræktun og þjófnað.
Annar hlaut tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi og 100 þúsund króna
sekt. Hinn var dæmdur til að greiða
hundrað þúsund í sekt.
DÓMSMÁL
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 26.10.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,129
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
111,49 112,03
177,06 177,92
155,50 156,38
20,850 20,972
19,191 19,305
16,745 16,843
1,3734 1,3814
175,42 176,46
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR