Fréttablaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2010 Pressukaffi er fljótlegt að laga og hægt að fá kaffibaunirnar sér- malaðar fyrir pressukönnur. Gott er að loka kaffipokanum með þéttri klemmu, til að kaffið haldi bragðgæðum og geyma hann í kæli. Fyrir þá sem eru fyrir sterkara er gott að grípa til espressokönnunnar og auðvelt að hita mjólk í potti og þeyta hana þykka og mjúka með litlum hand- þeytara í latté og cappuccino. Mörgum finnst þó gamli uppáhell- ingurinn alltaf bestur og sjálfsagt að hella upp á með gamla laginu gegnum trekt, beint ofan í hita- könnuna eða brúsann. - rat Hellt upp á tíu dropa Rjúkandi gott kaffi gleður margan enda venjan að bjóða gestum upp á tíu dropa. Mæliskeið með klemmu Byggt og búið, 1.582 krónur. Hitabrúsi Duka Kringlunni, 7.900 krónur. Espresso- kanna Te og kaffi, 5.935 krónur. Pressu- kanna 3 bollar Te og kaffi, 4.325 krónur. Handgerður brjóstsykur með íslenska fánanum. Te og kaffi, 490 krónur. Gestum er gjarnan boðið upp á rjúkandi kaffibolla. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY Samanbrjótanleg kaffitrekt Búsáhöld, 2.495 krónur. Mjólkur- þeytari Búsáhöld, 495 krónur. Hvernig best er að geyma kaffi- baunirnar eða malaða kaffið eftir að pokinn hefur verið opn- aður er spurning sem brennur oft á kaffidrykkjufólki. Geymsla á kaffi, möluðu eða baunum, er af kaffisérfræðing- um sögð skipta miklu máli eftir að pokinn hefur verið opnaður. Þar er mikilvægt að koma í veg fyrir samband kaff- is við eftirtalin fyrirbæri; raka, loft, hita og ljós. Einfaldasta leið- in til að halda kaffinu fersku er yfirleitt að kaupa frek- ar minni poka en stærri af kaffi. Krukka með loftþéttu loki, helst úr keramík, þykir ágætis staður til að hella kaffinu í eftir að pok- inn hefur verið opnaður. Þá þarf að passa að krukkan standi ekki þar sem sól nær til. Sumir mæla með því að stinga kaffinu í frystikistu meðan aðrir segja að kaffið verði aldrei jafngott eftir að það frýs. - jma Kaffi í keramík Ekki eru allir á eitt sáttir hvort best sé að geyma kaffi- baunir í frysti. Froðukaffi, betur þekkt sem capp- uccino, er ítalskur kaffidrykkur með freyddri mjólk, borinn fram í 180-200 ml bolla og samanstend- ur af 1/3 kaffi, 1/3 heitri mjólk og 1/3 mjólkurfroðu. Sagt er að jafn- vægið verði að vera fullkomið milli þessara þátta svo drykkurinn heppnist sem best. Cappuccino hefur náð vinsæld- um um allan heim og er víðast hvar drukkinn á hvaða tíma dags, nema reyndar á Ítalíu þar sem enginn snertir það eftir hádegis- bil. Menn fylgja yfirleitt fyrrgreindri reglu um gerð cappuccino en sumir virða hana þó að vettugi. Sá siður hefur til dæmis verið tek- inn upp í Bandaríkjunum og eins sums staðar í Evrópu að afgreiða cappuccino með einu, tveimur eða þremur skotum af kaffi. Klass- íska útgáfan er jafnan borin fram hérlendis. Heimild: wikipedia.org Galdurinn á bak við góðan cappuccino ÁKVEÐNAR REGLUR ERU YFIRLEITT HAFÐAR AÐ LEIÐARLJÓSI VIÐ GERÐ CAPPUCCINO. SUMS STAÐAR ERU ÞÆR ÞÓ FULLKOMLEGA VIRTAR AÐ VETTUGI. Kaffisérfræðingar hafa sínar meiningar um hvernig eigi að geyma kaffi til að það bragðist sem best. Kaffitími er alþjóðlegt fyrirbæri sem fólk í hverskonar verslun, þjónustu og iðnaði nýtir sér til að taka stutta hvíld frá störfum og hlaða rafhlöðurnar. Talið er að allt frá 1951 hafi kaffitími verið skráður í kjarasamninga. Kaffitíminn er í dag nánast heilög stund, líka utan vinnutíma. Angan af kaffi kemur bragðlauk- unum af stað og ilmurinn segir til um ríkt bragðið af BKI kaffi. Helltu upp á gott BKI kaffi. BKI Classic Njóttu lausnar frá amstri hversdagsins með góðu BKI kaffi. Finndu hvernig þú hressist með rjúkandi bolla af BKI kaffi. Nýttu tækifærið. Gefðu þér smá hvíld. Fáðu þér BKI kaffi. Njóttu kaffiilmsins, hitans og bragðsins og taktu svo daginn með trompi. Það er kominn tími fyrir BKI kaffi. Taktu þér kaffitíma núna Fangaðu kaffitímann með BKI kaffi Það er kaffitími núna Kauptu BKI fyrir kaffitímann Sérvaldar baunir frá þekktustu kaffisvæðum heimsins tryggja hið mjúka bragð, lokkandi ilminn og fersklegt eftirbragðið. BKI Extra Snöggristað við háan hita. Þannig næst fram ríkara kaffibragð við fyrsta sopa en léttur og mjúkur keimur fylgir á eftir. Kíktu á bki.is Kauptu gott kaff i í dag á góðu verði Einnig til 250 gr á ennþá betra ver ði á meðan birgðir endast

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.