Fréttablaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 36
20 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR BAKÞANKAR Sifjar Sig- mars dóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman 40 ár hjá kallinum! Sáttur við lífið til þessa? Jáá, svona að mestu. Það hefur flestallt gengið upp. Fyrir utan auðvitað draum- inn um að verða atvinnu- maður í Englandi! En þú? Ég átti mér alltaf nokkra drauma. En... Sá allra stærsti rættist aldrei... Draumurinn um að búa í kastala með 30 ljóskum? Já! En svona er lífið, það er ekki alltaf sanngjarnt! Pabbi, segjum sem svo að þú og mamma séuð í Kringlunni... Ókei... Allt í einu kemur hópur af vinum þínum til ykkar! Já... Hvað gerirðu? Lætur eins og þú þekkir hana ekki. Hleypur... Kynnir hana fyrir vinum mínum. Ég nenni þessu ekki ef þú ætlar ekki að taka þessu alvarlega! LAUST Ég vil að þú hagir þér eins og maður á meðan Sigga er hjá okkur. Skilið? Nei. Ég á við að þú átt að vera góður, taka tillit og vera kurteis. Ókei, ég get það. Ég trúi honum. Það sem hann þarf að gera er að vera alveg eins og venjulega, nema alveg öfugt. Er til eitthvað sem kallast mannleg höfuð læsing? LÁRÉTT 2. kk nafn, 6. tveir eins, 8. fiskur, 9. bein, 11. 999, 12. grátur, 14. upp- skafningsháttur, 16. klafi, 17. traust, 18. flinkur, 20. utan, 21. þjappaði. LÓÐRÉTT 1. erindi, 3. leita að, 4. planta, 5. angan, 7. helber, 10. tálknblað, 13. garðshorn, 15. klasi, 16. margsinnis, 19. kyrrð. LAUSN LÁRÉTT: 2. uggi, 6. ee, 8. áll, 9. rif, 11. im, 12. snökt, 14. snobb, 16. ok, 17. trú, 18. fær, 20. án, 21. tróð. LÓÐRÉTT: 1. vers, 3. gá, 4. glitbrá, 5. ilm, 7. einskær, 10. fön, 13. kot, 15. búnt, 16. oft, 19. ró. Þetta er okkar... þeir sögðu einmitt að það væri í kallfæri frá ströndinni. Eða var það kastfæri? Hvað skal gera við forsetann? Vilhjálmur Bretaprins og kærasta hans sáust kaupa frosna pitsu og ofn- franskar í verslun á dögunum. Breskir dálkahöfundar, æstir í fréttir af öðru en niður skurði í ríkisútgjöldum sem einokað hafa umræðuna síðan öxin féll fyrir viku, drógu þá ályktun að kaupin gætu ekki þýtt annað en að konunglegt brúðkaup væri á næsta leiti. Svo óáhugavert virtist sam- bandið orðið að eina rökrétta framhaldið var hjónaband. Af sömu rökfestu veltir slúðurpressan nú fyrir sér dagsetningu og fyrirkomulagi hátíðahaldanna, sem hún segir akkúrat þá upplyftingu sem breskur almenningur þurfi á að halda í því árferði sem nú ríkir. Í fyrsta sinn sá ég tilgang með konungsfjölskyldunni – annan en þann að sjá breska póstinum fyrir vanga- myndum á frímerki. FURÐU lítið hefur mér fundist fara fyrir umræðu um þjóðhöfðingja okkar Íslendinga í slagorðakennd- um orðaflaumi tengdum yfirvof- andi stjórnlagaþingi. Tískuorð á borð við sjálfbærni, kær- leika, gegnsæi, samvinnu og heiðarleika sem sprottin eru úr umhverfi efnahagshrunsins hafa skyggt á umræðuna um megintilgang stjórnarskrárinn- ar; að ákvarða sjálfa stjórn- skipun landsins. Hvernig skal samspili framkvæmdar-, löggjafar- og dómsvalds hagað? Hvernig skal velja full- trúa í embættin? Og síðast en ekki síst: Hvað skal gera við forsetann? ENN hef ég ekki fundið þann frambjóð- anda til stjórnlagaþings sem sett hefur fram ígrundaðar hugmyndir um þennan hlekk stjórnskipunarkeðjunnar sem í dag hefur hvað óljósasta hlutverkinu að gegna. Hvað á forseti Íslands að vera? Áhrifa- laust konungsígildi? Æðsti maður ríkis- stjórnar eins og í forsetaræði Bandaríkj- anna? Eða á ef til vill að leggja embættið niður? PERSÓNULEGA aðhyllist ég síðasta kost- inn. Ég vil breyta Bessastöðum í safn og selja þjóðsagnakenndan vínkjallara húss- ins hæstbjóðendum í verslunum ÁTVR. Sé hins vegar ekki vilji fyrir því er ég með hugmynd að fjórðu leiðinni. Hvernig væri að laga embættið að stöðunni sem það var upphaflega mótað eftir og gera það að embætti konungs? Þingbundin konungs- stjórn eins og í Bretlandi myndi tryggja hinum almenna borgara upplyftingu í gráma hversdagsins í formi konunglegra brúðkaupa, skandala og slúðurs. Það er tími til kominn að Séð og heyrt fái fleira til umfjöllunar en þriðja flokks frægt fólk sem annaðhvort fann ástina, týndi henni eða brenndist á sálinni þegar hún sprakk. Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 90 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.