Fréttablaðið - 27.10.2010, Blaðsíða 12
12 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
UPPLÝSINGATÆKNI Ísland er meðal
þeirra fimm landa heims þar sem
nærri 100 prósent heimila hafa
háhraðatengingu við internetið. Hin
löndin eru Hong Kong, Suður-Kórea,
Lúxemborg og Malta.
Þetta er meðal þess sem lesa má
út úr nýrri könnun Saïd-viðskipta-
háskólans við Oxford-háskóla í Bret-
landi á þróun í gæðum nettenginga
í heiminum. Könnunin er árviss og
hefur verið gerð frá því árið 2008.
Metin er útbreiðsla nettenginga,
aðgengi að þeim, hraði á niður-
hleðslu og upphali, auk fleiri þátta
og löndum gefin einkunn út frá sam-
spili þeirra.
Ef tekið er meðaltal allra land-
anna sem könnunin náði til, en hún
er gerð í 72 þjóðríkjum og 239 borg-
um, þá kemur í ljós að 49 prósent
heimila hefur aðgang að háhraða-
nettenginu. Í fyrra var sú tala 47
prósent og 40 prósent árið 2008.
Þá hafa orðið framfarir hvað gæði
tenginga varðar, en það er metið svo
að þau hafi aukist um nærri fjórð-
ung, 24 prósent, á milli ára og um
48 prósent frá 2008.
Meðalhraði niðurhals í heiminum
var þannig 5.920 Kbps (kílóbit á sek-
úndu) í ár, miðað við 4.882 Kbps í
fyrra og 3.271 Kbps árið 2008. Sama
þróun hefur svo verið hvað upp-
hleðsluhraða varðar, en hann hefur
farið úr 794 Kbps 2008 í 1.345 Kbps
2009 og í 1.777 Kbps á þessu ári.
Biðtími á netinu (e. latency, tím-
inn sem það tekur að hefja gagna-
sendingu frá því beiðni um það er
send) hefur hins vegar aukist lít-
illega, í 142 millisekúndur úr 140
millísekúndum í fyrra. Staðan er
hins vegar um fjórðungi betri en
árið 2008, þegar biðtíminn var 189
millísekúndur. Millisekúnda er einn
þúsundasti úr sekúndu.
Til samanburðar má benda á að í
Suður-Kóreu er meðalhraði niður-
hals 33,5 megabit á sekúndu (Mbps),
upphalið 17,3 Mbps og biðtími 47
millísekúndur.
Ísland er meðal þeirra fjórtán
landa sem sögð eru reiðubúin til
að taka við „tækni morgundags-
ins“, en þar er vísað til hluta á borð
við háskerpusjónvarp á netinu og
hágæða myndsamskiptatækni. Allra
helstu kosta sem netið og nútíma-
samskipti hafa upp á að bjóða njóta
hins vegar 48 lönd, samkvæmt könn-
uninni.
Rúmur helmingur landanna hefur
svo brúað „stafrænu gjána“, en það
lýsir sér í því að minnkandi munur
er á gæðum nettenginga í stærstu
borgum landa og dreifðari byggðum
þeirra. Mestur er munur á tenging-
um í borgum og sveitum í Lettlandi,
en minnstur í Japan, þar sem teng-
ingar eru jafnvel heldur betri í sveit-
um en borgum. olikr@frettabladid.is
TENGDASTA LAND Í HEIMI Suður-Kórea heldur fyrsta sæti í samanburði á gæðum
og útbreiðslu nettenginga í löndum heims. Hér má sjá grunnskólabörn í sýningarsal
suður-kóreska fyrirtækisins Samsung. NORDICPHOTOS/AFP
Ísland í fjórða
sæti yfir gæði
nettenginga
Gæði nettenginga heimsins hafa aukist um 24 pró-
sent milli ára. Þetta kemur fram í þriðju könnun
Saïd-viðskiptaháskólans í Oxford á gæðum háhraða-
tenginga. 48 lönd njóta allra netgæða sem völ er á.
Efstu 10 sætin í háhraðanettengingum í heiminum
Stig Land 2010 2009 2008
157 Suður-Kórea 1 1 1
118 Hong Kong 2 3 2
116 Japan 3 7 4
115 Ísland 4 4 8
111 Sviss 5 5 6
111 Lúxemborg 5 5 9
111 Singapúr 5 2 3
108 Malta 6 10 19
107 Holland 7 6 5
106 SAF* 8 12 19
106 Katar 8 2 11
104 Svíþjóð 9 8 9
103 Danmörk 10 9 7
* Sameinuðu arabísku furstadæmin
Fjárhagsleg
endurskipulagning
fyrirtækja
Haustráðstefna KPMG
28. október / Grand Hótel
KPMG blæs til haustráðstefnu þar sem fjallað
verður um fjárhagslega endurskipulagningu
fyrirtækja og er leitað í þekkingar- og
reynslubrunn nokkurra áhugaverðra fyrirlesara.
Ráðstefnan byrjar með hádegisverði
klukkan tólf og dagskráin hefst formlega
klukkan eitt. Ráðstefnugjald er 7.500 kr.
Skráning fer fram á www.kpmg.is
Dagskrá
Fjármálakreppan og aðlögun
íslensks efnahagslífs
Már Guðmundsson,
Seðlabankastjóri
Fjárhagsleg endurskipulagning
– hvernig mætast sjónarmið
fyrirtækja og kröfuhafa
Michael Dance, sérfræðingur í
fjárhagslegri endurskipulagningu
Lífið eftir endurskipulagningu
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips
Reynslusaga af flóknu
endurskipulagningarferli
H. Ágúst Jóhannesson, KPMG
Eru enn til staðar hindranir í endur-
skipulagningu og viðreisn fyrirtækja?
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs Íslands
Pallborðsumræður
Stjórnandi: Halla Tómasdóttir,
stjórnarformaður Auðar Capital
Ráðstefnustjóri
Auður Ósk Þórisdóttir, KPMG
VIÐSKIPTI Póst- og fjarskiptastofnun
(PFS) vekur á því athygli í síðustu
ákvörðun sinni að enn sé nokkuð af
lausum tíðnum fyrir FM útvarps-
sendingar á höfuðborgarsvæðinu.
„En erfitt er að gefa út tæmandi
lista yfir hvaða tíðnir það eru þar
sem það ræðst meðal annars af
staðsetningu sendis og sendistyrk,“
segir á vef stofnunarinnar.
Ábendingin fylgir ákvörðun PFS
um að úthluta á ný útvarpsstöðinni
Kananum tíðniheimildinni FM
100,5.
Í ákvörðun PFS segir að lagt hafi
verið mat á staðsetningu sendis út
frá truflanahættu, sendistyrk og
mögulegri geislunarhættu, sér-
staklega þar sem sendistaðurinn
sé á einu af útivistar svæðum höfuð-
borgarsvæðisins, í Bláfjöllum.
„PFS hefur í hyggju að veita leyf-
ið til ÚÍ1 ehf. [rekstrarfélags Kan-
ans] tímabundið í eitt ár gegn því
skilyrði að sendirinn verði færð-
ur frá núverandi stað á nýjan stað
sem talinn er í öruggri fjarlægð frá
vinnusvæði starfsmanna í Bláfjöll-
um og umferð skíðafólks en einnig
lengra frá öðrum fjarskiptavirkj-
um á svæðinu,“ segir í ákvörðun
PFS. Hagsmunaaðilar fá frest til
fimmta næsta mánaðar vilji þeir
gera athugasemdir við ráðstöfun
tíðniheimildarinnar. - óká
AFMÆLISTERTA Útvarpsstöðin Kaninn
hélt upp á ársafmæli sitt í haust.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Útvarpsstöðin Kaninn fær ársframlengingu á tíðniheimildinni FM 100,5:
Athygli vakin á lausum tíðnum
LEIRKERASMIÐUR Í HYDERABAD
Indverskur leirkerasmiður framleiðir
olíuskálar fyrir ljósahátíðina Diwali,
sem verður haldin 5. nóvember.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hafði afskipti af
fólki víða um borgina um nýliðna
helgi vegna fíkniefnamála.
Hass og amfetamín fundust í
bíl í miðborginni. Ökumaðurinn,
karlmaður á þrítugsaldri, reynd-
ist jafnframt þegar hafa verið
sviptur ökuleyfi. Fíkniefni fund-
ust einnig í húsi í Háaleitishverfi
og játaði húsráðandi, piltur um
tvítugt, sök sína í málinu.
Þá stöðvaði lögreglan líka
tvær kannabisræktanir í tveimur
óskyldum málum í Breiðholti. - jss
Fíkniefnamál víða um borg:
Hass, ræktanir
og amfetamín