Fréttablaðið - 27.10.2010, Page 24
27. OKTÓBER 2010 MIÐVIKUDAGUR
Með notkun orkusparandi
ljósgjafa geta sparast töluverð-
ar fjárupphæðir. Jón Ólafsson
& Co kynnir orkusparandi
úrræði.
Þegar kemur að því að skipta
út hefðbundnum glóperum
eru möguleikar almennings
sífellt að aukast. Auk hefðbund-
inna spar pera eru einnig í boði
svokallaðar halógen sparperur
(Halogen ECO) og á næstu árum
munu LED perur ryðja sér til
rúms á markaðnum. Að auki er
hægt að fá orkusparandi útgáfur
af hefðbundnum halogen perum.
En valið er ekki alltaf einfalt. Í
boði eru margs konar tegundir af
perum, frá mörgum framleiðend-
um og af mjög misjöfnum gæðum.
Margumtöluð tilskipun EU varð-
andi „bann við glóperum“ er ein-
mitt ætluð, að hluta til, til að taka
á þessu vandamáli.
Tilskipun EU snýst þó um
miklu meira en bann við ákveðn-
um tegundum glópera. Tilskipun-
in snýst almennt um notkun og
innleiðingu á orkunýtnari orku-
gjöfum og einnig er þess kraf-
ist að innihald skaðlegra efna í
þessum vörum sé undir ákveðnu
marki, að viðeigandi förgunar-
ferli sé til staðar og að merkingar
á pakkningum uppfylli ákveðnar
kröfur. Þetta er gert til að upp-
lýsa neytendur um að varan eigi
að uppfylla ákveðnar kröfur um
gæði og merkingar. Til dæmis
má einungis merkja ljósaperur í
orkunýtniflokki A (Energy Class
A) sem sparperur.
Tilskipun EU hefur ekki verið
innleidd á Íslandi. Því er hætt
við að Ísland verði að „losunar-
haug“ fyrir lélegar og óvandaðar
vörur, sem innihalda mikið magn
hættulegra efna og eru af vafa-
sömum gæðum. Þetta hefur
meðal annars gerst í Noregi þar
sem tilskipunin hefur ekki verið
innleidd.
Um tuttugu prósent af allri
rafmagnsnotkun heimila eru til-
komin vegna lýsingar og í ljósi
síhækkandi raforkuverðs er ljóst
að með notkun orkusparandi ljós-
gjafa er mögulegt að spara tölu-
verðar upphæðir. Raforka á Ís-
landi er heldur ekki óþrjótandi.
Með því að velja orkusparandi
ljósaperur minnkar orkuþörfin og
þá má annaðhvort draga úr raf-
orkuframleiðslu eða nota þá raf-
orku í önnur verkefni og vinnslu.
Einnig er nauðsynlegt að huga
að orkusparnaði í fyrirtækjum
og stofnunum og oft á tíðum eru
orkusparandi valkostir í boði
fyrir þær perur sem þegar eru
í notkun. Þegar um mikið magn
af perum er að ræða er ljóst að
hægt er að ná fram töluverðum
sparnaði með því að huga betur
að þessum málum. Margt smátt
gerir eitt stórt.
Margt smátt gerir eitt stórt
Með því að velja orkusparandi ljósaperur minnkar orkuþörf og talsverðar fjárupphæðir sparast. Jón Ólafsson & Co, Krókhálsi 3.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Allt að
30 %
orkuspa
rnaður
0 %
orkuspa
rnaður
Allt að
80 %
orkuspa
rnaður
Allt að
80 %
orkuspa
rnaður