Fréttablaðið - 27.10.2010, Síða 26
27. OKTÓBER 2010 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● lýsing og lampar
Hugmyndaauðgi lampahönnuða virðast lítil takmörk
sett. Vefsíðan freshome.com tók saman yfirlit yfir 40
frumlegustu lampana að þeirra mati og þar kennir svo
sannarlega margra grasa.
Allt öðruvísi lampar
Frumlegur lampi endurunninn úr flösk-
um og töppum.
Stjörnustríðslampi er örugglega
efstur á óskalista einhvers aðdá-
anda Star Wars-myndanna. Hér er
sjálfur Svarthöfði.
Uppáhaldshlutirnir njóta sín vel inni í
ljóskúplinum. Hönnun frá Chen Karlsson
í Stokkhólmi.
Hér er hugmynd frá Transparent House
fyrir handlagna sem ennþá eiga gamlar
segulbandsspólur: Líma þær saman og
setja peru í miðjuna.
Frumlegur lampi, hannaður eins og
handsprengja en sé togað í pinnann
verður engin sprenging, það kvikn-
ar bara ljós.
Þessi lampi er frá hönnunarstofunni Enpieza á Spáni
og heitir Henging.
Þessi krúttlegi kall gæti komið ein-
hverjum til að roðna, en það þarf ekki
mikið til að Hr. P ljómi. Bara kitla hann á
réttum stöðum og hann lýsist upp.
Þessi hefur ekki verið framleiddur
ennþá en er hugarsmíð hönnuðarins
Lasse Klein. Ljósaperan er staðsett
þannig að hún lýsir upp gluggana á
geimskipinu en kastar um leið geisla
niður á kúna. Og lampinn heitir auðvit-
að Brottnumin af geimverum.
Þessi lampi lítur út einsog fata á hvolfi
og úr henni lekur blóð. Ekki nóg með
það heldur virðist lampaskermurinn
svífa í lausu lofti, en er í raun haldið
uppi af „blóðinu“.
Pieke Bergmans sýndi
þennan bronspott sem
sýður upp úr í Mílanó á
dögunum.
Prjónarar og annað handavinnu-
fólk hefur ekki mikið þurft að
spekúlera í réttri vinnulýsingu
meðan sólin hefur verið hátt á
lofti. Nú þegar húmar að og handa-
vinnufólk, sem flest vinnur vinnu
sína á kvöldin, fer að þurfa góða
lýsingu er gott að hafa í huga að
lýsingin varpar ljósi á það sem er
í höndunum en má alls ekki skína
í augu þeirra sem sitja við.
Standlampi, þar sem færa má
ljóshausinn upp og niður til að
mynda, getur þar komið að góðu
gagni og gott er að hafa perurnar
ekki of sterkar. Þá eru venjulegir
skrifborðslampar, sem festa má á
sófaarm, oft gagnlegir. - jma
Lýsing fyrir vetrarprjón
Standlampar henta prjónurum og handavinnufólki oft vel.
Borðstofuborðið er oft einn vin-
sælasti áningarstaður fjölskyld-
unnar í stofunni, enda ætlað
til margvíslegra nota á mörg-
um heimilum. Þannig er borðið
ekki aðeins aðstaða til að matast
á heldur nota margir það til að
vinna við, börnin sinna heima-
lærdómnum, fjölskyldan notar
borðið undir lúdó og púslar.
Þegar borðið er notað til svo
margvíslegra hluta verður að
hafa í huga að ekki dugar venju-
legt borðstofuljós yfir borð-
ið heldur þarf ljósið jafnframt
að duga sem vinnulampi. Oft er
sniðugt að hafa færanlegt vinnu-
ljós innifalið í borðstofuljósinu
og dimmer á ljósið getur komið
að góðum notum. - jma
Margnota borðstofuborð
Rétt lýsing er sérstaklega mikilvæg
þegar borðstofuborðið er jafnframt
notað sem vinnusvæði milli matmáls-
tíma.
Það getur oft verið nokkur list
að lýsa baðherbergið upp svo vel
sé og huga að hverjum krók. Af
þeim nokkru atriðum sem vert er
að hafa í huga má nefna sérstak-
lega gott loftljós en mikilvægt er
að það lýsi þannig að vatn sjáist
til dæmis á gólfinu til að koma í
veg fyrir slys.
Rétt lýsing við spegil skiptir
einnig miklu máli sé hann not-
aður til snyrtingar því lýsing
getur haft heilmikið að segja við
að gefa rétta mynd af litum og
áferð.
Ef þvottavél, þurrkari eða
önnur vinnuaðstaða er á bað-
herberginu þarf svo sérstaklega
að huga að vinnuljósi í kringum
það svæði. - jma
Lýsing á baðherbergi
Góð lýsing skiptir miklu máli í bað-
herberginu.
Kemur út fimmtudaginn 28. október 2010
Sérblað um
Hillur og skápa
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband
Benetikt Freyr • benetiktj@365.is • Sími 512 5411
Lampaskerma reynist stundum erfitt
að þrífa, sérstaklega þar sem þeir vilja
oftast gleymast á venjulegum tiltektar-
dögum.
Þegar rykið hefur sest rækilega á skerm-
inn er tími til kominn að gera eitthvað
málunum. Þá kemur fatarúlla að
góðu gagni. Með henni er
auðvelt að þrífa skerma
sem oft verða eins og
nýir eftir eina
umferð með fata-
rúllunni.
Skermurinn þrifinn