Fréttablaðið - 27.10.2010, Síða 28
27. OKTÓBER 2010 MIÐVIKUDAGUR
Lýsingarhönnuðir okkar koma í heimsókn og koma
með hugmyndir hvernig lýsingu væri best háttað á
þínu heimili.
Kynntu þér málið í verslun okkar eða á www.pfaff.is
Grensásvegi 13
108 Reykjavík
Sími 414 0400
Díóður, eða svokallaðir ljós-
tvistar, eru framtíðarljósgjafar
bæði í fyrirtækjum og heima-
húsum að sögn lýsingahönn-
uðar hjá Pfaff á Grensásvegi.
„Margir virðast telja að díóðu-
tæknin, eða ljóstvistatæknin, sé
fjarlæg en svo er alls ekki. Hún
er þegar í dag orðin raunhæfur
kostur bæði á heimilum, í verslun-
um og fyrirtækjum,“ segir Einar
Sveinn Magnússon, lýsingahönn-
uður hjá Pfaff, og er sannfærður
um að díóður séu ljósgjafi fram-
tíðar.
En hvað eru díóður? „Díóður
eru örsmáar (og flóknar) í upp-
byggingu, þær eyða litlu rafmagni,
gefa mikið og fallegt ljós og end-
ast gríðarlega lengi,“ svarar Einar
og bætir við að díóður hitni mjög
lítið. „Það opnar marga nýja mögu-
leika í notkun og hönnun ljósa.“
Einar segir mikla þróun hafa
orðið í díóðum síðustu ár. „Þegar
þær komu fyrst fram var ljósið
frá þeim bláleitt, og margir kann-
ast helst við díóður úr bláleitum
jólaljósaseríum. Í dag fáum við
hins vegar hvíta birtu og fallega
lýsingu með díóðunum og getum
orðið ráðið kelvingráðunni á per-
unni, en kelvin-
gráðan segir
til um lit ljóss-
ins,“ segir hann
og telur raun-
hæft að ætla að
díóður geti í dag
leyst af hólmi
allar halogen-
perur hvort sem
er heima fyrir
eða í fyrirtækj-
um. „Halogen-
peran er nefni-
lega orkufrek og endist stutt,“
segir Einar og tekur dæmi um
orkunotkun díóðuljóssins miðað
við halogenperur.
„Halogenljós í útiljósi endist
kannski í 1.500 til 4.000 klukku-
tíma en díóðupera endist á móti
í 30 til 50 þúsund tíma. Í stað 35
watta venjulegrar peru þarf aðeins
3 wött í díóðuljós,“ segir hann og
tekur jafnframt dæmi um minni
kostnað sem hlýst af notkun díóðu-
ljósa. „Rafmagn fyrir eitt útiljós
með halogenperu kostar 2.600
krónur á ári en aðeins 250 krónur
með díóðunni.“ Þessar staðreyndir
taka viðskiptavinir Pfaff tillit til
að hans sögn enda sé fólki umhug-
að um orkusparnað þessa dagana
og dýrari perur geti verið fljótar
að borga sig upp í orkusparnaði.
Eins og áður sagði hefur til-
koma díóðanna gefið hönnuðum
nýja vídd í ljósa-, ljósakrónu- og
lampahönnun. „Þegar ljósgjafinn
er orðinn svona lítill býður það upp
á skemmtilegri hönnun. Til dæmis
eru til límrenningar sem má til að
mynda setja undir skápa. Þegar
ljósgjafinn minnkar gefur það
til dæmis hönnuðum ýmsa nýja
möguleika sem áður voru útilokað-
ir vegna stærðar gömlu peranna.“
Þeir sem vilja sjá hvernig díóðu-
ljós koma út þurfa ekki annað en
að fara í verslun Pfaff á Grens-
ásvegi 13 en verslunin sjálf er að
stórum hluta lýst upp með díóðu-
ljósum. „Þetta er eina verslunin
enn sem komið er hér á landi sem
er þannig lýst upp enda er þetta jú
framtíðin,“ segir Einar glaðlega.
Verslunin lýst upp með
ljósgjafa framtíðarinnar
Díóður, eða ljóstvistar, eru örsmáar, eyða litlu rafmagni, gefa mikið og fallegt ljós og endast gríðarlega lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Einar Sveinn
Magnús son ljósa-
hönnuður.
Pfaff var að flytja inn nýja borð-
lampa, Mylamp, sem eru dönsk
hönnun sem slegið hefur í gegn.
Lamparnir fást í mörgum gerð-
um, stærðum og
litum og hafa
þeir til dæmis
verið mjög vin-
sælir ti l að
hafa í glugg-
um til að lýsa
upp svartasta
skammdegið.
Svona lampar
geta gerbreytt lýsingu
í hverju herbergi
enda skipta smá-
atriðin öllu máli
þegar kemur að
lýsingu.
Falleg dönsk hönnun