Fréttablaðið - 27.10.2010, Side 38
22 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR22
menning@frettabladid.is
Bókmenntir ★★★★
Morgunengill
Árni Þórarinsson
Í Morgunengli Árna Þórarins sonar
má finna flest það sem lesandi
væntir og vonast eftir í íslenskum
krimma árið 2010. Eftirköst
kreppunnar, falleraða milljarða-
mæringa, venjulegt fólk í skulda-
kreppu, reiði og heift sem finnur
sér rangan farveg með skelfi legum
afleiðingum og fleira til.
Sem er gott. En bara vegna þess
að þótt uppskriftin bjóði upp á að
allt endi í fyrirsjáanlegum klisjum
og sleggjudómum og lesandinn sé
jafnvel á stöku stað plataður til að
halda að bókin stefni í þá átt, þá er
stýrt framhjá öllum slíkum skerjum
og þegar upp er staðið er niðurstaða
glæpamálsins óvænt og niðurstöð-
ur þeirrar samfélags skoðunar sem
er fylgifiskur flestra krimma þessa
dagana alls ekki einfaldar.
Í Morgunengli vindur fram
sögum af tveimur glæpamálum,
einu á Akureyri, þar sem Einar
sjálfur gengur fram á póstburðar-
konu nær dauða en lífi eftir árás,
og öðru í Reykjavík sem snertir
fjölskyldu íslensks auðkýfings sem
Einar hefur nýlega tekið viðtal við.
Málin verða raunar fleiri eftir því
sem á söguna líður og reynast sum
hver snerta Einar persónulega –
hann er óvenjulega naskur við að
lenda í miðri hringiðu afbrota og
ofbeldis eins og lesendur eru farnir
að kannast við.
Morgunengill er níunda bók Árna
Allt sem prýða má einn krimma
Þórarinssonar um Einar blaða-
mann. Eins og gerist og gengur er
Einar orðinn eins og gamall kunn-
ingi þeirra lesenda sem hafa fylgt
honum frá upphafi, ýmsir agnú-
ar nuddast smám saman af við
nánari viðkynningu og þeir gall-
ar sem einu sinni fóru í taugarn-
ar á manni verða lítilvægari. Einar
er viðkunnan legasti náungi, í aðra
röndina gangast hann og skapari
hans upp í hefðbundinni týpu rann-
sóknarblaðamannsins í glæpasög-
um, að öðru leyti gera þeir það
alls ekki. Einar í Morgun engli er
minni töffari og þroskaðri persóna
en í fyrstu bókunum. Einkalífið
tekur minna pláss í samræmi við
það. Hann er búinn að koma sínum
málum á hreint að mestu, hættur
að drekka og ræktar sambandið
við dóttur sína Gunnsu. Hann reyn-
ist henni ágætur faðir, enda hefur
hann ágætan skilning á unglingum
og vit á að skipta sér ekki af meira
en góðu hófi gegnir.
Sú spurning læðist óhjákvæmi-
lega að manni hvað þetta jafnvægi
í persónu Einars endist lengi, en
í þessari bók gefur það tækifæri
á tvennu. Annars vegar fá auka-
persónurnar meira rými, örlög
eins samstarfsmanna Einars mynda
gildan og óvæntan þátt í plotti þess-
arar bókar og hins vegar er sjálf
sögufléttan bæði umfangsmikil og
snjöll. Á tímabili fer lesandinn að
örvænta um að hægt sé að hnýta
alla þræðina saman, en það tekst
Einari og Árna í glæsilegum og
hroll vekjandi lokaspretti.
Jón Yngvi Jóhannsson
Niðurstaða: Morgunengill hefur allt
það til að bera sem einkennir góðan
krimma. Árni Þórarinsson hefur örugg
tök á glæpasagnaforminu og tekst að
spinna trúverðuga en margslungna
fléttu um leið og hann varpar ljósi á
samtíma okkar á óvæntan og hroll-
vekjandi hátt.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 27. október
➜ Tónleikar
20.00 Í Sláturhúsinu, Egilsstöðum,
verða tónleikar á vegum NME. Fram
koma hljómsveitirnar Rökkurró og
Sudden Weather Change. Aðgangs-
eyrir er 1000 krónur, frítt fyrir félaga
nemendafélagsins. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.00.
21.00 Þór Breiðfjörð, ásamt hljómsveit,
verður með tónleika á Café Rosenberg
í kvöld. Leikin verða lög af plötu hans
Running Naked og vel valin lög eftir
aðra. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og
standa til 23.30.
➜ Opið hús
Félagsmiðstöðvardagurinn er haldinn
hátíðlegur í dag. Í tilefni þess verður
opið hús í félagsmiðstöðvum Reykjavík-
ur. Nánar um opnunartíma á www.itr.is.
➜ Málþing
16.00 Í dag býður Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur og Félag dönskukenn-
ara til málþings í Norræna húsinu í
tilefni af formlegri opnun nýrrar vefsíðu,
Frasar.net. Málþingið hefst kl. 16.00.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.