Fréttablaðið - 27.10.2010, Side 46
30 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Besti bitinn í bænum er
Sushibarinn á Laugaveginum.
Sushibarinn er svona spari-
staður sem ég fer á þegar ég er
komin með leið á hamborgurum
og frönskum. Þú færð alveg
geggjað sushi þar!“
Fanndís Friðriksdóttir, knattspyrnukona í
Breiðabliki.
„Þetta er svona „Einar valsar inn í
mynd – Einar valsar út úr mynd“-
atriði,“ segir Einar Aðalsteinsson
leikari.
Hann tekur þátt í umsvifamik-
illi hópdanssenu í stórmyndinni
Sherlock Holmes 2 í leikstjórn Guy
Ritchie, fyrrverandi eiginmanns
Madonnu. Tökurnar fara fram í
hinu sögufræga Elstree-mynd-
veri í Hertford-skíri en þar voru
meðal annars Stjörnustríðsmyndir
George Lucas gerðar. Meðal
þeirra sem taka þátt í umræddri
töku eru Hollywood-stjörnurnar
Robert Downey Jr. og Jude Law
auk Stephens Fry.
Einar sagði í samtali við Frétta-
blaðið að þetta væri mjög stór sena
en um er að ræða stórt teiti þar sem
gestirnir stíga þaulæfðan og frek-
ar trylltan vals. „Robert Downey á
að dansa eitthvað með okkur en ég
átta mig nú ekki alveg á samheng-
inu enda ekki búinn að lesa hand-
ritið.“ Einar segist verða í mjög
flottum búningi, smart kjól fötum
með yfirvaraskegg sem hann
fékk sérstaklega hannað fyrir sig.
Og hann kveðst ákaflega heppinn
með dansfélaga. „Ég kann alveg
eitthvað að dansa en hún er sko
atvinnudansari, er bæði menntuð
leikkona og dansari.“ Að sögn Ein-
ars er umfangið gríðarlega mikið
fyrir tökurnar sem hefjast á föstu-
daginn og það var ekkert hlaupið
að því að fá hlutverkið, þótt lítið
sé. „Kennarinn minn í leiklistar-
skólanum í London benti á mig
en svo þurfti ég senda ferilsskrá,
mynd og myndband. Maður þurfti
að fara í gegnum allt ferlið enda
voru þau að leita að mjög ákveðnu
útliti.“ Einar upplýsir jafnframt að
launin séu mjög góð. „Þetta er vel
borgað starf miðað við ábyrgð.“
Einar hefur haft í nægu að snú-
ast frá því að hann útskrifaðist
úr leiklistarskólanum Lamda í
London. Hann setti upp leikverkið
Vakt á sviðslistahátíðinni artFart
í sumar og mun leika stórt hlut-
verk í sjónvarpsþáttaröðinni Tíma
nornarinnar eftir Friðrik Þór Frið-
riksson sem byggir á samnefndri
bók Árna Þórarinssonar. Leikar-
inn ungi viðurkennir hins vegar að
hugur hans sé aðallega við tökurn-
ar í Englandi, enda ekki á hverjum
degi sem manni gefst tækifæri til
að vera á sama tökustað og Robert
Downey eða Jude Law.
freyrgigja@frettabladid.is
EINAR AÐALSTEINSSON: VEL BORGAÐ STARF MIÐAÐ VIÐ ÁBYRGÐ
Stígur vals í Sherlock Holmes
HEPPINN Einar Aðalsteinsson mun stíga vals í stórri hópsenu fyrir kvikmyndina
Sherlock Holmes 2 ásamt þeim Robert Downey Jr., Jude Law og Stephen Fry.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Við erum náttúrlega orðnir frek-
ar þekktir,“ segir Jóhannes Þor-
kelsson en hann og tvíburabróð-
ir hans, Steinn, þykja nauðalíkir
söngvaranum Justin Bieber. Tíma-
ritið Monitor fjallaði um tvíburana
fyrr í vetur og síðan þá hafa strák-
arnir haft í nógu að snúast í félags-
lífi Verzlunarskólans, en þeir hófu
nám við skólann nú í haust.
Það ætlaði því allt um koll að
keyra á samskiptasíðunni Face-
book þegar Jóhannes skráði sig í
samband við unga Verzlómær fyrir
tæpum mánuði. Sú heppna heit-
ir Birgitta Líf Björnsdóttir og er
tveimur árum eldri en Jóhannes.
„Það þykir frekar óvenjulegt að
stelpa sé með yngri strák,“ segir
Jóhannes, en bætir því við að þau
hafi fengið góð viðbrögð frá lang-
flestum. „Ég er samt ekki með bíl-
próf, svo Birgitta sér bara um að
keyra okkur,“ segir Jóhannes.
Birgitta Líf ætti ekki heldur að
vera óvön athyglinni, en hún er
dóttir Dísu og Bjössa í World Class.
En hvað með bróðurinn? „Steinn er
ennþá á lausu, en ég held að hann
sé eitthvað að slá sér upp,“ segir
Jóhannes að lokum. - ka
Annar Bieber-tvíburinn genginn út
STJÖRNUPAR Birgitta Líf og Jóhannes hafa verið saman í tæpan mánuð. Hér eru þau
ásamt hinum Bieber-tvíburanum, Steini, sem er þeim á hægri hönd. Steinn er enn á
lausu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það var komið samþykki fyrir hrekknum
og við vorum náttúrlega líka búin að taka út
nöfnin til að koma í veg fyrir að fólkið þekkt-
ist,“ segir Svali, útvarpsmaður á FM957.
Hann tekur jafnframt fram að þessir síma-
hrekkir séu ekki í beinni útsendingu heldur
teknir upp.
Miklar umræður sköpuðust á netinu um það
hvort það hefði verið rétt af útvarpsstöðinni
FM 957 að útvarpa símahrekk á mánudags-
morgun í útvarpsþættinum Svali og félagar.
Hrekkurinn gekk út á það að ung stúlka fékk
FM í lið með sér til að hrekkja móður sína.
Hrekkurinn gekk út á að karlmaður hringdi í
mömmuna og sagðist vera frá Félagsþjónust-
unni. Hann tilkynnti henni síðan að dóttir-
in ætti von á barni og hvort það væri rétt að
mamman hefði bannað stúlkunni að vera á
getnaðarvarnarpillunni. Mamman sagði já en
efaðist um að þetta væri rétti vettvangurinn
til að ræða slík mál. Í kjölfarið kom dóttir-
in í símann og sagði þetta vera mömmunni að
kenna, hún hefði ekki viljað leyfa sér að vera
á pillunni. Og þá kom svarið sem fékk ansi
marga hlustendur til að grípa andann á lofti;
mamman vildi að dóttirin notaði aðrar getn-
aðarvarnir þar sem hún hefði verið gjörn á að
fá kynsjúkdóma. Eins og gefur að skilja lauk
hrekknum þarna enda hafði hann snúist ræki-
lega í höndunum á þeim sem vildi hrekkja.
Svali segist ekki alveg skilja þessi hörðu
viðbrögð við þessum hrekk. Mun grófari
hrekkjum hafi verið útvarpað í þættinum.
„Sjálfum fannst mér hann aðallega vand-
ræðalegur, ég sökk alveg ofan í sætið.“
- fgg
Símahrekkur á FM957 vekur hörð viðbrögð
GAGNRÝNDUR Útvarpsþátturinn Svali og félagar er
harðlega gagnrýndur fyrir símahrekk. Svali sjálfur segir
þau hafa útvarpað mun grófari hrekkjum. Þessi hafi
fyrst og fremst verið vandræðalegur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Robert
Downey
þurfti að sitja
180 daga inni fyrir að rjúfa
skilorð í desember 1997.
HEIMILD: IMDB.COM
180
Ástrós
Með ferska sýn
á nýja stjórnarskrá
stjórnmálafræðingur
Framboð til stjórnlagaþings
Gunnlaugsdóttir
astrosg.is„Ég borga þessa auglýsingu úr eigin vasa“.
Ástrós G
FJÖRUG SEM
ALDREI FYRR!
LEST’A NA STR A X!
Ný bók um
óborganlega
prinsessu
og æðisleg
ævintýr.
HARMAGEDDON
ALLA VIRKA DAGA
KL. 15 – 17:30