Fréttablaðið - 22.11.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 22.11.2010, Blaðsíða 34
18 22. nóvember 2010 MÁNUDAGUR BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. stórra herbergja, 6. rykkorn, 8. starfsgrein, 9. heldur brott, 11. ónefndur, 12. rithöfundur, 14. upp- skafningsháttur, 16. berist til, 17. þrí, 18. for, 20. stefna, 21. slabb. LÓÐRÉTT 1. slitrótt tal, 3. frá, 4. jarðbrú, 5. tál, 7. starfræksla, 10. hafið, 13. hlé, 15. kroppa, 16. hryggur, 19. guð. LAUSN LÁRÉTT: 2. sala, 6. ar, 8. fag, 9. fer, 11. nn, 12. skáld, 14. snobb, 16. bt, 17. trí, 18. aur, 20. út, 21. krap. LÓÐRÉTT: 1. tafs, 3. af, 4. landbrú, 5. agn, 7. rekstur, 10. rán, 13. lot, 15. bíta, 16. bak, 19. ra. Nei maður! Ekki aftur! Koma svo... ein enn! No pain... no gain! Hárrétt! Lóðin eru vinir þínir! þú ert góður þarna! Ekki núna pabbi! Sérðu ekki að ég er að vinna? Hvað er það versta sem þú hefur gert og mamma og pabbi vita ekki af? Lofarðu að segja ekki? Þú þekkir mig! Sko... Reyndu að tala í hljóðnemann, takk. Nói hefði átt að ganga í stígvélum Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. FRÁ SÓMA ER KOMINN NÝTT FYRIR JÓL IN Hamborgarahryggur og kartöflusalat Dönsk lifrakæfa, sveppir og beikonJólasíldarsalat FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI HALLDÓR BALDURSSON Meiri Vísir. Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku. m.visir.is Fáðu Vísi í símannog iPad! Gjafmildi hlýtur að vera eitt fallegasta orð í íslenskri tungu og við Íslendingar getum svo sannarlega verið gjafmildir. Við seilumst ofan í vasa okkar þegar seldir eru björgunarsveitarkallar eða SÁÁ-álfar. Ekki erum við síður gjafmild þegar kemur að fólki á erlendum flóða- eða jarðaskjálfta- svæðum. Söfnunarátök eiga undurvel við okkur. Við vöðum í þau eins og hverja aðra frystihústörn. Upphæðirnar hafa oft komið á óvart, sér í lagi sé litið til þess að við álítum sem svo að við höfum það sjálf verst allra þjóða. En að gefa veitir styrk. Okkur finnst við skipta máli og vera einhvers megnug. ÉG ER nýkomin heim frá Úganda, litlu ríki í Austur-Afríku. Í norðurhluta landsins geisaði stríð í tvo áratugi sem lauk ekki fyrr en í hittifyrra. Ferðina fór ég með Barnaheillum, hjálparsamtökum sem hafa styrkt skólastarf á þessu svæði. Menntun er lykillinn að betri fram- tíð og þarna þarf að kenna margt annað en algebru og gríska goða- fræði. Hreinlæti og ræktun jarðar- innar vegur þyngra. Fólk þurfti að dvelja í flóttamannabúðum meðan á stríðinu stóð og varð að reiða sig á matargjafir. AFLEIÐINGIN varð sú að heil kynslóð óx upp sem kann ekki að búa. Þekkingin hefur glatast. Þegar fólkið sneri til baka í þorpin sín varð líka til annað vandamál. Meðalævi íbúa Úganda er aðeins 50 ár og sums staðar man enginn hver átti hvaða land eða hver bjó hvar. Hvergi er hægt að fletta því upp. Það er því ekki sjálf- gefið að fólk geti tekið þráðinn upp að nýju og hafið búskap á landi forfeðranna. Til að framfleyta sér bregða menn á það ráð að fara til höfuðborgarinnar Kampala þar sem ekkert bíður nema gatan. Svona eru áhrif langvarandi stríðs, ófyrirsjáanleg og ömur- leg. Þá eru vitaskuld ótalin öll þau mannslíf sem fóru í súginn og börnin sem var rænt af uppreisnarmönnum. Sum fórust, önnur eru enn í haldi. ÉG HITTI fyrrverandi barnahermann sem hafði verið rænt 14 ára gömlum en er nú orðinn 17 ára. Hann dvelur á hjálparstofnun sem reynir nú að hafa uppi á fjölskyldu hans og veita honum menntun svo hann geti einn daginn framfleytt sér sjálfur. Þessi þung- búni drengur gat ekki skrifað nafnið sitt fyrir mig. Á blaðinu stendur óregluleg þyrp- ing samhljóða sem mynda engan veginn nafnið hans. Ástandið í Norður-Úganda verð- ur ekki leyst með söfnunarátaki eins og við Íslendingar erum svo gefnir fyrir. Þetta er langtímaverkefni. Ég hvet ykkur til að snúa ykkur til Barnaheilla og skrá ykkur fyrir dálítilli upphæð. Þúsund krónur á mánuði gera kraftaverk þarna suður frá. Þetta snýst ekki um auðlegð – aðeins gjafmildi. Gjafmildi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.