Kylfingur - 01.05.2001, Side 7

Kylfingur - 01.05.2001, Side 7
nýtt klúbbhús við völlinn, í Tyrklandi voru síðari níu holumar á Kemer vellin- um gerðar árið 1996 þannig að það er Ijóst að John Nolan kann best við sig þeg- ar eitthvað er að gerast í kringum hann. John segir gaman að hitta „gamla“ kunningja á ný. „Það er fullt af fólki sem kernur til mín núna sem ég þekki frá fyrri tíð. Eg segi nú til gamans að ég sé svo mikill bisnessmaður að ég hafi komið fyr- ir nokkmm ámm til að kenna þeim og nú sé ég kominn til að leiðrétta vit- leysuna sem ég kenndi fólkinu þá. En það er mjög gaman að hitta allt þetta fólk á ný. Um daginn var ég að kenna manni á besta aldri, sem ég kannaðist aðeins við frá því í gamla daga. Strákurinn hans var í næsta bás að slá og pabbinn segir við guttann: „Heyrðu þú þekkir ekki Nolan, er það?“ Strákurinn horfir á pabba sinn og hélt nú það. „Hann kenndi mér þegar ég var sex ára!“ Kom í heimsókn í sumar Það var eiginlega hálfgerð tilviljun að ég kom aftur hingað. Samningur minn í Tyrklandi var mnninn út og María dóttir mín hafði samband og stakk upp á því að ég kæmi í heim- sókn og það varð úr enda hafði ég ekki komið til Islands síðan 1994. Þegar ég kom sagði hún mér að margir klúbbar hefðu frétt að ég væri að koma og að það væri búið að bóka mig hingað og þangað um landið. Ég taldi að það yrði í lagi að kenna einn og einn dag, en þá sagði hún mér að það væri meira en einn og einn dagur. Nema hvað, við ákváðum að slá til og Julie, konan mín kom með mér og við ferðuðumst víða um land og skoðuðum það og ég hitti marga gamla kunningja. Við fómm til Sauðárkróks, Vestmannaeyja og víðar og þetta var mjög skemmtilegt. Ég vissi að Joe var að hætta hjá GR og Guðmundur S. vinur minn spurði hvort ég hefði ekki áhuga á að koma aftur. Ég var svo sem alveg til í það enda líkaði mér vel hér þegar ég var héma og það varð úr að ég sótti um starfið eins og margir aðr- ir. Síðan var hringt í mig og ég kom hing- að til viðtals og var ráðinn og hér er ég.“ Er ekki hundleiðinlegt að vera inni við golfkennsluna? „Nei, nei. Tímabilið hér er styttra en víðast þannig að maður er meira inni við, en það hefur líka sína kosti því það er best fyrir byrjendur að hefja ferilinn inni. Þá geta menn einbeitt sér að sveiflunni en em ekki of uppteknir af landslaginu eða veðrinu. Það hafa orðið miklar framfarir varðandi æfingar kylfinga og við verðum að fylgjast vel með því, eins og til dæmis í sambandi við tölvuvæðingu kennslunn- ar. Við verðum að koma upp betri inni að- stöðu en við höfum í dag og það verður gert. Eins held ég að það sé gott fyrir kylfinga að æfa í raun minna en betur. Það er nóg að slá í net í korter á dag í stað þess að standa klukkutímunum saman og og það bendir til aukins áhuga á íþrótt- inni. Ég hef líka látið mér detta í hug að ef árgjaldið væri hækkað um 2-3.000 krónur þá væri grundvöllur fyrir því að hafa kennara allan veturinn og þá gætu klúbbmeðlimir komið að slá hvenær sem þeir vilja og kennaramir gengju á milli og lagfærðu og leiðbeindu. Þetta myndi ekki kosta neitt fyrir meðlimi klúbbsins nema auðvitað hærra árgjald. Ég held að þetta Áður en lagt er af stað. F.v. Magnús Jónsson, John Nolan, Ólafur Tómasson, og Konráð Bjarnason. lemja í net án þess að hugsa hvað menn em að gera. Örlítið hærra gjald - miklu meiri þjónusta Ég held að það yrði mjög gaman fyrir kylfinga ef við gætum lengt tímabilið með því að bæta inniaðstöðuna. Ég er ekki að tala um höll með æfingasvæði heldur em til tölvur þar sem fólk getur séð nákvæmlega hvernig sveiflan er og lagað hana út frá því. Það hefur verið mjög mik- ið að gera hjá mér síðan ég kom í janúar I ðstoðari f Nolans 1 sumai Derríck Moore sem er GR-ingum að góðu kunnur. Hann kennirí Grafai gæti verið góð aðferð til að lengja tímabil- ið því það er fullt af fólki sem vill vera undir leiðsögn kennara allt árið. Ég er líka viss um að með aukinni tækni mun fólk hafa meira gaman af að slá inni, enda er það mjög góð leið til að halda sér við og breyta og lagfæra því það er alltaf hægt að laga einhver smáatriði í sveiflunni. Auðvitað er gaman að spila golf úti á velli, en til að menn geti það þurfa þeir fyrst að læra það. Það er með spila- mennskuna eins og æfingamar, það er ekki nóg að fara út á völl og lemja og lemja. Það þarf að hugsa og skipuleggja leik sinn.“ Þegar Nolan kom til landsins í janúar hafði hann samband við fjölmörg fyrir- tæki og stofnanir og bauð þeim þjónustu sína. Það skilaði sér heldur betur því „það hefur verið brjálað að gera og margir hóp- ar koma frá fyrirtækjum,“ segir Nolan og segist hafa miklu meira en nóg að gera - en þannig vill hann líka hafa hlutina. Þurfum fleiri einfalda velli „Ég gæti best trúað því að ég sé með um fimmtánhundruð nýja kylfinga á æf- ingum. Það er auðvitað allt of mikið því klúbburinn getur ekki tekið við svo mörg- KYLFINGUR 7

x

Kylfingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.