Kylfingur - 01.05.2001, Blaðsíða 35
Glæsilegur búningur GR
Viktor Sturlaugsson, formaður öldunganefndar skartar hér
hinum glæsilega CR-búningi. Fyrir tveimur árum var fyrst
kynntur þessi nýi GR-búningur sem samanstendur af Lacoste
peysu i hæsta gæðaflokki, rúllukragabol og pólóbol.
Búningurinn fæst í golfverslunum GR
að Korpúlfsstöðum og í Grafarholti. Settið kostar aðeins
kr. 14.000. GR ingar eru hvattir til þess að fara að fordæmi
Viktors og vera snyrtilega klæddir á vellinum.
Hér má sjá Hannes Marinó Ellertsson, vallarstarfsmann á Korpu benda á fótspor
sem myndast hafa í 2.flötinni á Korpunni. Slík spor myndast þegar gengið er á
flötunum í frosti. Svona brunasár geta haft mjög slœmar afleiðingar, og grasið
hreinlega drepist. Félagar eru minntir á að ganga ekki inná flatirnar yfir vetar-
timann. Þœr eru ekki afgirtar að ástœðulausu. Nokkur brögð hafa verið að þvi að
menn hafi leikið inn á sumarflatirnar í vetur. Það getur skemmt flatirnar mikið,
og þýðir eingöngu að hœgt verður að opna þœr seinna á vorin.
kvenna árið 2000
Frábær árangur GR
Ragnhildur Sigurðardóttir og Herborg Amarsdóttir unnu
öll stigamót GSI á síðastliðnu ári, að undanskildu
Landsmótinu, sem fram fór á Akureyri. Þar náðu þær ekki
að sýna sitt rétta andlit. Þá var bætt um betur helgina eftir,
í sveitakeppni GSI. Leikið var á ágætum velli Keilis-
manna í Hafnarfirði, en þar hreint út sagt völtuðu þær yfir
alla sína andstæðinga. Ragnhildur náði þeim merka
árangri að leika aldrei lengra en að 14. teig, en hún hafði
sigrað alla andstæðinga sína er þangað var komið.
Herborg skellti meðal annars nýkrýndum íslandsmeist-
ara, Kristínu Elsu Erlendsdóttur GK, með löngu pútti á
19. holu í æsispennandi leik. Lið GR sigraði lið GKj í
úrslitaleik, 2-1. Þetta er annað áiið í röð sem lið GR sigrar
í sveitakeppni kvenna. I sveitinni voru auk Ragnhildar og
Herborgar, þær Kristín Rós Kristjánsdóttir, Katla
Kristjánsdóttir, Lára Hannesdóttir og Sólveig Ágústsdótt-
ir. Liðsstjóri var enginn annar en hinn eitilharði Stefán
Gunnarsson og rná segja að Irann hafi endurvakið
mulningsvélina í þessari sterku sveit GR.
KYLFINGUR 35