Kylfingur - 01.05.2001, Blaðsíða 14
Líkt og síðustu ár þá
hófst starfsemi
kvenna í GR á hinum
vikulegum púttkvöld-
um. Púttkvöldin
hófust um miðjan
janúar og vom haldin
vikulega fram í mars-
lok. Sérstaklega var
gaman að sjá hve
margar nýjar konur
létu sjá sig.
Vetrarstarfseminni
lauk síðan með vorfagnaðinum sem var haldinn í
Grafarholti þann 23. mars. Veislustjóri kvöldsins var
Kristín Magnúsdóttir og stóð hún sig með prýði.
Boðið var upp á glæsilegar veitingar að hætti Harðar
og vegleg skemmtiatriði.
Púttmeistumm vetrarins voru einnig veitt verðlaun,
en þcir vom: 1. sæti Ardís Erlendsdóttir, 2. sæti Ása
Ásgrímsdóttir og í 3. sæti vom jafnar þær Dóra Guð-
leifsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir.
sem ætla að leika
í kvennatímunum
á miðvikudögum
vevða að skrá sigfyvir
**■
kl. 12
þann sama
daa.
Farið verður í vorferðina þann 12.
maí næstkomandi að Hellu. Við von-
umst eftir að sem flestar komi með
okkur í ferðina. Eins og undanfarin
sumur verða fastir rástímar á miðviku-
dögum milli kl. 17 og 18 og verða
þeir til skiptis í Grafarholti og á Korpúlfstöðum.
Konur geta skráð sig í þessa tíma á skrifstofu
klúbbsins frá kl. 9 til 12 á miðvikudögum. Viljum
við svo minna á kvennamótin í sumar hjá GR en
meðal móta eru Art-Hún og ÍBR bikarinn.
Kvennanefnd 2001 er þannig skipuð: Hólmfríður
G. Kristinsdóttir formaður, Ardís Erlendsdóttir, Ása
Ásgrímsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir og Tinna
Kristín Snæland.
Að lokum vonumst við eftir að sumarið verði
sem best svo við getum átt gott golfsumar.
Með golfk\’eðju,
Kvennanefnd GR.
f Fvá
kvenna
x
14 KYLFINGUR