Kylfingur - 01.05.2001, Blaðsíða 16
kvæmd skapar mikið rask sem kallar á
heilmikinn frágang fyrir vorið. Við þessu
er hins vegar ekkert að gera nema að bíta
á jaxlinn og nota síðan tækifærið og
snyrta allt svæðið sem ræsið fer um.
Að öðru leyti eru ekki fyrirhugaðar
framkvæmdir á Grafarholtsvellinum aðr-
ar en þær sem miða að því að fegra og
snyrta völlinn.
Framkvæmdir við
Korpúlfsstaðavöllinn:
Legu 1. brautar vallarins hefur verið
breytt og svo voru gerðar umtalsverðar
breytingar á 18. brautinni. Þar var tjöm-
um lokað, svæði tyrfð og umhverfi flatar-
innar breytt mikið.
Þá var gengið frá svæðinu í kringum
innganginn í klúbbhúsið og nánasta um-
hverfið snyrt og tyrft. Byggð var ný pútt-
flöt við aðalinnganginn á Korpunni og
verður hún tilbúin til notkunar næsta sum-
ar. Þá var æfingasvæðið stækkað um 10
bása.
í vallamefnd vom Ómar Kristjánsson,
Peter Salrnon og Viktor Sturlaugsson.
Vélakaup
Keyptar voru vélar fyrir um 8 mkr. Vísa
í sundurliðun reikninga sbr. reikninga.
Mér skilst á framkvæmdastjóranum okk-
ar að við séum orðnir sæmilega settir í
þessum efnum eftir mikla aukningu og
endumýjun á síðustu árum.
Afrek
Klúbbmeistari karla varð Kristinn
Amason og klúbbmeistari kvenna varð
Ragnhildur Sigurðardóttir.
Ragnhildur vann einnig það afrek að
verða stigahæsti kylfingur landsins í
kvennaflokki sem og Islandsmeistari í
holukeppni kvenna.
Sigurvegarar í GR-Open urðu Guð-
mundur Hauksson og Haraldur Þórðar-
son.
Sveit GR varð Islandsmeistari í
kvennaflokki á Landsmótinu sem haldið
var hjá Keili í ágúst. Karlasveit GR hafn-
aði í þriðja sæti.
Kvennasveitina skipuðu:
Herborg Arnarsdóttir
Katla Kristjánsdóttir
Kristín Rós Kristjánsdóttir
Lára Hannesdóttir
Ragnhildur Sigurðardóttir
Sólveig Agústsdóttir
Liðsstjóri var Stefán Gunnarsson
Magnús Ingi Magnússon varð íslands-
meistari drengja 14-15 ára.
Kristín Rós Kristjánsdóttir varð ís-
landsmeistari telpna 14-15 ára.
Theodór Guðmundsson varð Öldunga-
meistari 55 ára með for&jöf.
Kylfingar okkar unnu mörg önnur afrek
sem vert væri að geta um. Til þess að
stytta mál mitt mun ég láta hér við sitja í
upptalningunni.
Skýrslur nefnda
Kvennanefnd:
Púttkvöld kvenna hófust í janúar og
vom haldin vikulega á Korpunni. Vetrar-
starfinu lauk með vorfagnaði í Grafar-
holti. í byrjun maí var farin vorferðin á
Hellu og haustferð var farin í september á
Akranes. I sumar voru fastir kvennatím-
ar á miðvikudögum til skiptis í Grafar-
holtinu og á Korpunni.
í kvennanefnd voru Hólmfríður Krist-
insdóttir, Kristín Ragnarsdóttir, Hanna
Garðarsdóttir og Asa Asgrímsdóttir.
Unglinganefnd
Undir unglinganefndina falla félags-
menn sem eru 18 ára og yngri. f þessum
hópi em nú 239 eða tæplega sjötti hluti fé-
lagsmanna. Strákar eru 221 en stelpur 18.
Það er alvörumál og mikið umhugsunar-
efni hve illa okkur hefur tekist að fá ung-
ar stelpur inn í golfið. Haldnar vom reglu-
legar æflngar í sumar tvisvar í viku fyrir
yngri hópana en einu sinni í viku fyrir 16-
18 ára hópinn en yfir veturinn var ein
inniæfing í viku fyrir alla aldurshópa.
í unglinganefnd vom Peter Salmon,
Birgir Þorgilsson og Herborg Amars-
dóttir.
Öldunganefnd
Öldunganefndin stóð fyrir mótaröð, alls
átta mótum, sem haldin vom til skiptis í
Grafarholti og á Korpunni. Keppt var í
einum flokki kvenna og þremur flokkum
karla. Alls tóku 129 kylfingar þátt í mót-
unum þar af 25 konur. Leika þurfti minnst
5 hringi til þess að vera gjaldgengur til
verðlauna.
Öldunganefnd valdi lið til keppni fyrir
GR í sveitakeppni öldunga sem haldið var
á velli GKG í lok ágúst. A-sveit kvenna
varð þar í öðm sæti í keppni án forgjafar.
í lok september var haldið uppskeru-
kvöld öldunga hér í Grafarholtinu þar sem
mál sumarsins voru gerð upp og mér
skilst að það hafi mátt heyra glauminn
langt niður í bæ.
I öldunganefnd voru Viktor Sturlaugs-
son, Sigurður Dagsson og Þórólfur Frið-
geirsson.
Kappleikjanefnd
A vegum kappleikjanefndar vom hald-
in um 40 mót af öllum hugsanlegum
stærðum og gerðum. Veðurguðumir vom
hliðhollir kappleikjahaldi þetta árið enda
var þátttaka í mótum meiri en nokkm
sinni fyrr hjá GR og munu um 4300
skráningar hafa verið í keppnir hjá
Meistaramót GR 2001
Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur verður leikið í
farin ár. Meistaramótið verður haldið dagana 18.-21.
Grafarholtsvöllur
18. júlí 2. fl. k., 3. fl. k., 4. fl. k.,
öldungafl. 55-64
19. júlí 2. fl. k., 3. fl. k., 4. fl. k.,
öldungafl. 55-64, öldfl. 65
20. og 21. júlí Snýst þetta við, þeir flokkar sem leika
Korpúlfsstöðum og svo öfugt.
báðum völlum klúbbsins eins og verið hefur undan-
úlí.
Korpúlfsstaðavöllur
mfl. k., mfl. kv., 1. fl.k., 1. fl. kv. 2. fl. kv. 3. fl. kv.,
telpur, drengir, stúlkur, piltar
mfl. k., mfl. kv., 1 fl. k., 1 fl. kv., 2. fl. kv. 3. fl. kv.,
telpur, drengir, stúlkur, piltar
Grafarholt tvo fyrstu dagana leika tvo síðari á
16 KYLFINGUR