Kylfingur - 01.05.2006, Blaðsíða 11
Afhverju varð
golfið fyrir valinu?
Ég bjó í Grafarholtinu, við hliðina á vellinum í töluverðan
tíma, án þess í rauninni að vita af honum. Ég man eftir mér
fjögurra ára í göngutúr með mömmu, allt í einu vorum við
komnar á grænar grundir innan um móa og mela. Ég man
að ég spurði mömmu hvað þetta væri, mér fannst þetta allt
saman afar skrýtið, hún sagði mér að hérna spilaði fólk golf.
Golf hvað er það sagði ég, mamma hafði ekki skýr svör.
Sjö árum síðar var mér boðið að gerast kylfusveinn á Evrópu-
meistaramóti unglinga í Grafarholti fyrir góðan pening.© Ég dró
fyrir danskan strák sem ég man ekki hvað hét en hann var ekki
glaðlyndur. Peter Salmon var kylfusveinn í sama holli og ég.
Hann var voðalega góður við mig og sá til þess að ég fremdi ekki
nein afglöp í starfi.©
Ég man að mér fannst boltamir hrikalega flottir, háglansandi
Slazenger-boltar með svörtum ketti og innpakkaðir í bréf.
Arið 1982 var ég stundum að skottast í kringum stóra bróður
sem hafði fengið vinnu í golfversluninni. Sólveig Þorsteinsdóttir
Islandsmeistari kvenna tók eftir mér enda stelpur álíka sjaldséð-
ar á golfvellinum og hvítir hrafnar í þá daga. Hún var að leita sér
að kylfusveini fyrir meistaramót klúbbsins, ég varð náttúrlega
upp með mér og tók að mér starfið. Sólveig landaði titlinum eft-
ir harða baráttu við Steinunni Sæmundsdóttur og Asgerði Sverr-
isdóttur og ég fékk forláta Golden goose pútter að launum.
Ég byrjaði svo ekki að æfa fyrr en haustið eftir, en sumarið
1983 fékk ég vinnu á æfingasvæðinu við að tína bolta (engar
boltatínsluvélar í þá daga).
Ég keypti mér hálft Mc Gregor sett hjá John Nolan og byrjaði
að æfa í júlí.
Ég tók þátt í septembermóti drengja og lenti í 3. sæti með for-
gjöf. Eftir það gerðist ég ólæknandi golfsjúklingur.
Fyrirmynd í lífinu?
Mamma mín var ótrúleg manneskja og ég er ennþá að reyna
að átta mig á því hvað ég afrekaði í fyri i lífum til að verðskulda
hana. Hún var mín stoð og stytta í öllu. Þegar ég eignaðist stelp-
umar mínar gerði hún mér kleyft að sinna golfinu sem landsliðs-
KYLFINGUR 7