Kylfingur - 01.05.2006, Blaðsíða 83
því þegar að félagar mættu ekki í prýðis-
tíma en það væri ansi algengt. Honum var
svarað að reynt væri að fylgjast með
þessu en erfitt væri við að eiga.
Olafur Jónsson þakkaði fráfarandi
stjórn fyrir frábæra stjórn og fagleg
vinnubrögð.
Flóki Pálsson spurði hvort stígurinn á
milli 4. og 8. flatar orsakaði meiri hættu
en hann var upplýstur um að blint högg
yrði af 9. teig.
Hann spurðist fyrir um breytingar á
Koipunni í 27 holur og hvort Korpan yrði
áfram keppnisvöllur. Margeir svaraði því
játandi að hún yrði áfram frábær keppnis-
völlur. Margeir fór yfir fyrirhugaða breyt-
ingu á vellinum.
Steinar Skarphéðinsson spurðist fyrir
um hvort hægt væri að breyta legu þeim
hluta vallarins á Korpunni sem lægi með-
fram sjónum, þannig að hægt væri að
enda nær klúbbhúsinu. Gestur svaraði að
engin leið væri að breyta þessu vegna
legu vallarsins og þess lands sem klúbb-
urinn hefði til umráða.
Sveinn Snorri þakkaði fyrir Básana.
Hann spurðist fyrir um hvort fyrirhugað
væri að bæta inniaðstöðu fyrir stutta spil-
ið og púttin. Gestur sagði að aðstaðan
væri fátækleg á Korpunni og ekki væri
gert ráð fyrir að bæta úr henni alveg á
næstunni. Hefur þó komið til tals en eng-
ar ákvarðanir teknar þar um.
Öm Ingólfsson spurðist fyrir um golf-
bfla. Golfbflar væru margir og þeim færi
fjölgandi. Hann taldi að ekki væri nægj-
anlega skýrar línur og reglur um hvar þeir
mættu fara. Setja þyrfti upp merki og leið-
beiningar. Margeir upplýsti að unnið væri
að stefnu um vallarumhirðu (course poli-
cy) sem stefnt væri að leggja fyrir vallar-
nefndina. Slíkar leiðbeiningar kæmu fram
þar.
Hannes Ríkharðsson spurðist fyrir um
hvort auka ætti skógrækt við völlinn sér-
staklega hekk í kringum teiga. Gestur
taldi að fara ætti varlega í þessum efnum,
halda einkennum vallarins óbreyttum og
vemda holtið.
Reynir Ragnarsson saknaði þess að
engar umræður hefðu orðið um tillögur
urn skipulag og starfshætti golfklúbbsins
sem var kynnt fyrr um kvöldið. Hann
vildi minna á að klúbburinn væri íþrótta-
félag og taldi að þessi tillaga ýtti stoðum
undir það. Hann hafði áhyggjur að gert
væri ráð fyrir lækkun í áætlun á liðnum
bama- og unglingastarfi sem honum þótti
miður. Þakkaði svo fyrir góðan fund.
Gestur upplýsti að árið sem væri að líða
væri óvenjulegt hvað varðar bama- og
unglingastarf og umfang þess. Óvenju-
lega miklum fjármunum, sem söfnuðust á
herrakvöldi, var ráðstafað til utanlands-
farar og voru þátttakendur um 30.
Karl þakkaði starfsmönnum á Korp-
unni fyrir vel unnin störf en benti á að það
vantaði kaffiaðstöðu á vetuma.
Fundarstjóri benti á að nauðsynlegt
væri að halda sérstakan fund til að kynna
tillögur um skipulag og starfshætti golf-
klúbbsins. Gestur tók undh þessi orð.
Gestur þakkaði fundarstjóra fyrir frá-
bæra fundarstjóm og góðan fund.
Hjörleifur Kvaran sleit fundinum kl.
23.10.
Atice Cooper i Crrafarhotti
Þungarokkarinn Alice Coopeji' lék golf á (irafarholtsvellinuin í fyrrasumar ásaint hljóinsveit sinni,
Cooper, sem er á samningi hjá Callaway fékk Golfverslun Nevada Bob til að skipuleggja fvrirsig
golfið. F.v.: Rvan Roxie, Alice Cooper, Hans Henttinen frá Nevada Bob, Haukur Örn Birgisson,
Chuck Garric og Dainon Johnson.
KYLFINGUR 79