Kylfingur - 01.05.2006, Blaðsíða 81

Kylfingur - 01.05.2006, Blaðsíða 81
19,3 mkr. en tekjuafgangur tímabilsins nam 4,5 mkr. samanborið við 11 mkr. árið áður. Framsetning efnahagsreiknings er eins og áður og er tilgangurinn að draga fram peningalega stöðu en hún var neikvæð um 43,7 mkr samanborið við tæpar 9 mkr. neikvæða fjárhæð árið áður. Bankalán að fjárhæð 42,5 mkr. er að mestu leyti vegna framkvæmda á Grafar- kotsvelli en eins og áður hefur komið fram í skýrslu fonnanns er vilyrði fyrir framlagi frá Reykjavíkurborg sem hefur ekki verið fært í bækur GR. Hreint veltufé frá rekstri nam 16,5 mkr. samanborið við 20,5 mkr. árið áður en handbært fé frá rekstri nam 28 mkr. samanborið við 18 mkr. árið áður. Fjár- festingarhreyfmgar námu 40 mkr. og fjár- inögnunarhreyfingar 12 mkr. Breyting á handbæru fé nam 602 þús. kr. og nam handbært fé í lok starfsársins 2,8 mkr. samanborið við 2,2 mkr. árið áður. Stefán benti á samanburð áætlunar og rekstrar vegna ársins 2005 væri birtur með ársreikningnum. 3. Umræður um skýrslu formanns og ársreilaiing. Aður en umræður um skýrslu for- manns og ársreikning hófust fékk Ellert B. Schram forseti íþróttasambands ís- lands, ISÍ, orðið. Hann veitt GR gæðavið- urkenningu ISI vegna batna- og unglinga- starfs félagsins og um leið réttinn til að kalla sig Fyrimryndafélag ÍSÍ. Ellert tal- aði um mikilvægi þess að golfklúbbar eins og GR gengu öðrum lengra í forvarn- arstefnu sinni þar sem nálægðin við sölu og neyslu áfengis og tóbaks væri meiri en í öðmm íjrróttum. Ellert lirósaði stjóm GR og starfsfólki þess fyrir vel unnin störf í þágu barna- og unglingastarfs og óskaði GR-ingum öllum til hamingju með þessa gæðaviðurkenningu. Formaður þakkaði hlý orð í okkar garð. Engar umræður urðu um skýrslu stjómar og ársreikninginn og var hann samþykktur samhljóða. 4. og 5. Umræður og atkvæða- greiðsla franikoniimia tiliagna skv. 19. gr. ef einhverjar eru og af- greiðsla tillagna til lagabreytinga. Engar tillögur 6. Ákveðið árgjald og önnur gjöld iyrir næsta starfsár. Stefán Svavarsson fór yfir áætlun næsta árs. Þar er gert ráð fyrir tekjuaf- gangi að fjárhæð 20 mkr. Tillaga er að ár- gjald fyrir árið 2006 verði 58.000 kr. fyr- ir karlmenn og 48.000 kr. fýrir konur. Enginn tók til máls og vom tillögur sam- þykktar samhljóða. 7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn. Uppstillingamefnd lagði fram tillögu og fór Karl Jóhannsson yfir tillögur nefndarinnar. Omar Arason gefur ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Tillaga nefndarinnar er að Gestur Jónsson verði formaður og Jón Pétur Jónsson, Stefán Gunnarsson og Helga Harðardóttir verði kosin til tveggja ára en Bjöm Víglunds- son, Stefán Svavarsson og Viggó Viggós- son voru kosnir til tveggja ára á síðasta aðalfundi. í varastjóm er tillaga um Bemhard Bogason, Magnús Oddsson og Rakel Kristjánsdóttir Tillagan samþykkt samhljóða. 8. Kosning tveggja endurskoðcnda og eins til vara. Árni Tómasson, Jens Sörensen og Guðmundur Fnmannsson til vara. Tillagan samþykkt samhljóða. 9. Önnur inái Gestur Jónsson tók til máls og þakkaði traustið. Sveinn Snorrason var gerður að heið- ursfélaga klúbbsins. Gestur fór yfir störf Sveins en hann hefur verið í Golfklúbbi Reykjavíkur síðan 1953 og var stjómar- maður 1956 til 1961. Hann var forseti Golfsambands íslands frá 1962 til 1969. Þá var hann fyrsti forseti Landssambands eldri kylfinga (LEK) árið 1985. Sveinn hefur tekið að sér fjölda trúnaðarstarfa fyrir bæði GR sem og golfíþróttina á Is- landi. Gestur afhenti Sveini skjal þessu til staðfestingar. Sveinn tók til máls og þakkaði fyrir sýndan heiður. Afhending Háttvísibikar sem var gjöf frá GSÍ á 70 ára afmæli klúbbsins. Hann er veittur ár hvert þeim kylfíngi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í af- reksunglingum sínum. Sá sem hlýtur hátt- vísibikarinn þarf: að hafa mikinn íþrótta- anda, að gefast aldrei upp, að sýna miklar framfarir, að vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Afreksnefnd gerði að tillögu sinni til stjómar, sem einróma samþykkti hana, að verðugur handhafi háttvísibikar sé Hanna Lilja Sigurðardóttir. Gestur fór yfir afrek hennar en hún átti frábært ár og er mjög vel að þessum titli komin enda góð fyrirmynd fyrir aðra unglinga bæði innan vallar sem utan. Ragnar Hall fór yfir skipulag og starfs- hætti golfklúbbsins til kynningar en með honum störfuðu í nefndinni Ami Tómas- son, Friðbjöm Traustason, Kristín Guð- mundsdóttir og Kolbeinn Kristinsson. Til- lögur nefndarinnar voru settar inn á netið til kynningar. Skipurit fylgir nú með fund- argögnum. Tillögur em að skilið verði á milli íþrótta- og afreksstarfs klúbbsins annars vegar og starfseminnar að öðru leyti hins vegar. Velvild Reykjavíkur er meðal annars bundinn góðu bama- og unglingastarfi. En tillögur þessar verða væntanlega til samþykktar á næsta aðal- fundi. Emil Hilmarsson bað um orðið og lýsti ánægju með greinargerð Ragnars Hall. Einnig spurðist hann fyrir afhverju laun og launatengd gjöld hækkuðu 47% á milli ára en þessi liður hækkaði líka um 27% í fyrra. Bað framkvæmdastjóra að skýra þessa hækkun. Margeir benti á að hlutfall milli launa og annars kostnaður væri það sama í ár og ámm áður. Stöðugildum fjölgaði á milli ára og vinnuframlag var aukið. Haraldur Heimisson og Bjarni Hannesson voru ráðnir og var mikill fengur af þeim. Við það bættust 2 heilsársmenn á Básum og almenn hækkun launa. Hannes Ríkharðsson hafði áhyggjur af stígnum sem fer í gegnum Grafarholts- völlinn. Gestur taldi að náðst hefði að leiða þetta til lykta með farsælum hætti og skipulag hans frábær lausn. Ljóst að klúbburinn verður að lifa í sátt og sam- lyndi við umhverfið. Telur að hættan vegna stígsins sé hverfandi. Einnig spurði Hannes hvort ákveðnar fasteignir í nágrenni klúbbsins hefðu far- ið í umhverfismat. Gestur svaraði því neitandi og benti jafnframt á að í framtíð- inni muni byggingum í kringum völlinn fjölga. Bjöm H. Bjömsson spurðist fyrir um hvaða breytingar á Korpu væm fyrirhug- aðar og þar með talið á 1. braut. Gestur upplýsti að gert væri ráð fyrir 200 íbúða byggð á því svæði en á móti fengi klúbb- urinn jafngott land á móti og litli völlur- inn yrði afmarkaður með varanlegum landamörkum. Síðast en ekki síst fær GR samning til næstu 50 ára. Jón B. Stefánsson spurði hvað yrði um gamla æfingarsvæðið í Grafarholti. Gest- ur upplýsti að engin ákvörðun hefur verið tekin en möguleiki væri að setja upp æf- ingarsvæði með eigin bolta eða „útungun- arstöð fyrir gras á golfvöllinn“. Jón B. spurði einnig hvort taka ætti á KYLFINCUR 77
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Kylfingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.