Kylfingur - 01.05.2006, Side 13

Kylfingur - 01.05.2006, Side 13
Mér fannst það yndisleg tilfinning að spila bráðabana um fs- landsmeistaratitilinn enda í fyrsta skipti sem ég lendi í þeirri að- stöðu. Góður maður ráðlagði mér einhvemtímann að reikna alltaf með því að andstæðingurinn næði sínu besta höggi. Ég var því búin að undirbúa mig fyrir áframhaldandi umspil þegar Ólöf María missti púttið sitt. Auðvitað hefði ég heldur viljað vinna sannfærandi með því að setja niður mitt 5 metra pútt, en það spyr enginn að því eftir á hvemig maður vann eða tapaði, sig- urinn var að minnsta kosti mjög sætur.© Setur þú þér alltaf markmið fyrir hvert sumar? Efsvo er hver eru þau fyrir komandi sumar? Ég set mér alltaf forgjafarmarkmið, núna er ég með forgjöf- ina +1,7. Markmiðið þetta árið er að komast niður fyrir +2,0. Forgjöfin er í mínum höndum, enginn annar stjómar henni. Mér finnst ekki gott að setja mér markmið um að vinna hitt eða þetta. Þar liggja of margir óvissuþættir, ég veit til dæmis ekkert hvernig hinir munu spila. Auðvitað langar mig alltaf til að vinna. Ef ég næ markmiðunum mínum og þau skila mér á efsta pall þá er ég þokkalega sátt við sjálfa mig. Nái ég að spila mitt besta golf, en hinir gera betur þá eiga þeir skilið að vinna. Markmið geta líka verið af öðrum toga, þ.e.a.s. ekki endi- lega árangurstengd. Ég ætla mér t.d. að leggjast yfir púttstrok- una mína og ná að yfirvinna gamla drauga í stuttu púttunum. Markmiðið mitt er t.d. að lækka púttmeðaltalið mitt umtalsvert þannig og með því að æfa 70 metrana og inn að holu meira en ég hef nokkru sinni gert. Þú hefur haslað þér völl sem eirm af vinsæiustu golf- kennurum landsins, hvernig er að kenna fólki þessa íþrótt? Golfkennslan er afskaplega gefandi starf. Flestir sem koma í kennslu eru að kafna úr áhuga og vilja ólmir bæta leikinn sinn. Þegar svo breytingarnar fara að skila árangri upplifa bæði kenn- arinn og nemandinn mikla gleði. Þessi jákvæða sameiginlega upplifun er það skemmtilegasta við golfkennsluna að mínu mati. Allir vinimir sem ég hef eignast og allt það góða fólk sem Hildur Kristin tveggja ára, amma Kristin og mamma með Lilju á fyrsta ári. Golfararnir mínir. KYLFINCUR 9

x

Kylfingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.