Kylfingur - 01.05.2006, Qupperneq 24
og það er von okkar að þessar breytingar
geri hana að skemmtilegri og góðri golf-
holu. I brautina voru settir 3 brautar-
bunkerar og 2 flatarbunkerar, einnig
verða vallarmörkin við Litla völlinn færð
elítið innar á 10. brautina.
Einnig verða settar tvær nýjar glompur
á 8. braut ásamt trjágróðri og verður haf-
ist handa við þær framkvæmdir þegar að
framkvæmdum við 10. braut er lokið, 8.
brautin hefur að okkar mati verið líkt og
10. frekar karakterlaus og erum við þess
fullvissir að þessar glompur ásamt trjá-
gróðri muni setja skemmtilegan svip á
holuna.
Eins og fyrr sagði þá hafði veturinn í
vetur verið með ágætasta móti, flatimar
voru spreyjaðar með áburði og gataðar í
febrúar og hefur það aldrei verið gert eins
snemma hér á Korpunni. Þrátt fyrir góðan
vetur þá var aprflmánuður ekki eins góð-
ur og varð þess valdandi að ekki var hægt
að opna Korpuna inn á sumarflatir fyrr en
6. maí. Þessi seinkun á opnun er þó ekki
alslæm og hefur hún gefið okkur vallar-
starfsmönnum tækifæri á að sinna fleiri
verkum en við venjulega gerum fyrir opn-
un.
Nú erum við til að mynda búnir að bera
áburð á allan völlinn sem ætti að gera það
að verkum að völlurinn verður betur í
stakk búinn að taka við þeirra miklu um-
ferð sem er alltaf á honum á vorin. Eg vil
samt biðja kylfinga að ganga vel um völl-
inn sinn, hann er ávallt viðkvæmur á þess-
um tíma og þ.a.l. mjög mikilvægt að
passa vel upp á hann. Það er alltaf mikil-
vægt að gengið sé vel um golfvelli og á
það sérstaklega við á vorin.
Korpan er spiluð alveg gríðarlega mik-
ið og er því fljót að láta á sjá ef ekki er
gengið vel um. Það er mjög mikilvægt að
gert sé við boltaför strax þannig að þau
grói fljótt, flatimar em mjúkar á þessum
árstíma og því meiri líkur á boltaförum.
Einnig er mikilvægt að torfusneplar séu
settir strax í kylfufarið svo að brautimar
haldist góðar. Ef við hjálpumst öll að,
bæði kylfingar og vallarstarfsmenn þá er
ekkert mál að sinna þessum hlutum og
halda golfvellinum góðum, það er hagur
allra.
Það er ætlun mín fyrir sumarið að bæta
upplýsingagjöf til GRinga svo um munar,
þ.e. að þeir séu meðvitaðir um það sem er
í gangi á vellinum hverju sinni. Það em
ýmsar aðgerðir sem við verðum að gera á
golfvellinum hjá okkur sem miða að því
að bæta völlinn, t.d. að sanda flatimar,
djúpskera þær og gata og ýmiss þess hátt-
ar verkefni. Þegar aðgerðir sem þessar eru
á dagskrá hjá okkur þá munu verða setlar
upplýsingar um það inn á grgolf.is, undir
vallaviðhald og verða þær settar inn með
góðum fyrirvara þannig að það ætti ekki
að koma kylfingum á óvart þegar þær
mæta til leiks. Þessar aðgerðir hafa óhjá-
kvæmilega áhrif á spilarana og geta
kylfingar þá gert ráðstafanir með tilliti til
þeirrar vinnu sem á sér stað á vellinum.
Litli-völlurinn mun taka breytingum í
sumar, ástæðan fyrir því er sú að við emm
að missa landið þar sem að 5. flötin og 6.
teigurinn eru. Það gerir það að verkum að
núverandi 5. dettur út og núverandi 6.
styttist um nokkra metra. Byggð verður
ný braut, sem mun verða nr. 8 í röðinni og
verður teigurinn á henni staðsettur á
gömlu skólalóðinni við Korpuskóla og
slegið í átt að Egilshöllinni, brautin mun
verða ca. 80 metra löng.
Það er mín von að kylfingar í Golf-
klúbbi Reykjavflcur eigi eftir að eiga gott
golfsumar og við sem störfum á Korpunni
munum leggja okkur fram við það að hafa
Korpuna ávallt eins góða og hægt er
þannig að kylfingar geti notið þess að
spila golf á góðum velli í fallegu um-
hverfi.
Gleðilegt golfsumar.
Ágúst Jensson,
vallarstjóri á Korpu.
Á
þessari mynd má sjá nýju flatarglompurnar sem byggðar hafa verið á 10. braut.
20 KYLFINGUR