Kylfingur - 01.05.2006, Síða 61
Þorsteinn Sv. Stefánsson
DOMARAHORNIÐ
Að þekkja boltann sinn
Eins og allir kylfingar vita bera þeir sjálf-
ir ábyrgð á að leika réttum bolta (R-12-2).
Þeir bera því ávalt ábyrgð á að geta þekkt
hann, og þess vegna ráðleggur reglan
hverjum kylfingi að auðkenna boltann
sinn.
Ef leikið er röngum bolta gildir regla
15-3 en þar segir að sá sem leikur röngum
bolta í holukeppni tapi holunni en í högg-
leik fær hann tvö högg í víti, og verður að
leiðrétta mistök sín með því að leika rétt-
um bolta eða með því að fara að sam-
kvæmt reglunum. Þó er vítalaust að leika
röngum bolta í torfæru, enda má ekki
lyfta bolta í torfæru til að þekkja hann.
Loks eru högg greidd röngum bolta ekki
talin með, það kostar einungis tvö högg í
víti í höggleik miðað við að mistökin séu
leiðrétt. Leiðrétti leikmaðurinn ekki mis-
tök sín og haldi áfram og slái út af næsta
teig, eða yfirgefi flötina á 18 holu (síðustu
holunni) þá fær hann frávísun (sjá R-15-
3).
Það er því mikilvægt hverjum kylfingi
að vita hverju sinni að hann sé að leika
réttum bolta.
Þetta vita allir. Undirritaður hefur þó oft
tekið eftir því að kylfingar, í venjulegum
leik, gá að hvort boltinn sé þeirra bolti
með því að ganga að honum, velta honum
við eða lyfta honum svolítið upp til að
skoða hvort þetta sé þeirra bolti. Þetta er
slæmur ávani þar sem þama er um að
ræða brot á reglu 12-2 Að þekkja bolta.
Það er raunar einnig brot á reglu 18-2a
en samkvæmt úrskurði 18-2a/14 fær leik-
maðurinn þó ekki tvö vítahögg (eitt sam-
kvœmt reglu 12-2 og annað samkvæmt
reglu 18-2á) heldur einungis eitt vítahögg
samkvæmt reglu 18-2a. Hvað sem því
líður hafa þeir leikmenn sem fara þannig
að, skapað sér eitt vítahögg, í hvert sinn
sem þeir gera þetta svona.
Regla 18-2a kveður á um að þegar bolti
leikmanns er í leik megi leikmaðurinn,
samherji hans eða kylfuberi annars hvors
þeirra, ekki hreyfa boltann eða snerta
hann viljandi (nema með kylfu við mið-
un) né valda því að hann hreyfist umfram
það sem regla leyfir. Utbúnaður þeirra má
heldur ekki valda hreyfingu boltans. Brot
á þessu er eitt vítishögg.
En stöku kylfingur, sem veit þetta biður
meðkeppanda sinn að gera þetta eða með-
keppandinn býðst til að gera það, en það
breytir engu í þessu tilfelli, leikmaðurinn
sleppur ekki við vítið fyrir því (Úrskurð-
ur 18-2all6).
Hins vegar verða leikmenn að fá mögu-
leika til að þekkja bolta sína og þess
vegna er til sérstök regla þar sem réttri að-
ferð til að þekkja boltann er nákvæmlega
lýst. Það er regla 12-2. Þar segir að það sé
vítalaust hverjum leikmanni að lyfta bolta
sínum til að þekkja hann, svo fremi að
hann fari nákvæmlega eftir þessarri reglu.
Hann verður að tilkynna mótherja sín-
um í holukeppni eða skrifara eða með-
keppanda sínum í höggleik að hann ætli
að lyfta boltanum til að þekkja hann. Síð-
an verður hann að gefa mótherjanum/
skrifaranum eða meðkeppandanum tæki-
færi til að koma að og fylgjast með þegar
hann gerir þetta. Eftir þetta skal hann
merkja boltann og lyfta honum. Ef bolt-
inn er skítugur má hann hreinsa hann ein-
ungis svo sem nauðsynlegt er til að þekkja
hann en ekki meir. Að svo búnu verður
hann að leggja boltann aftur. Þetta er hin
rétta aðferð og fara verður nákvæmlega
eftir henni í einu og öllu, annars fær leik-
maðurinn eitt vítahögg (t.d ef hann til-
kynnir ekki ætlun sína eða gefur ekki
mótherjanum/skrifaranum/meðkeppand-
anum tækifæri til að fylgjast með eða ef
hann merkir ekki boltann). Nú getur leik-
maðurinn ekki neytt mótherjann/skrifar-
ann eða meðkeppandann til að koma og
fylgjast með þegar þetta er gert en hann
verður að gefa honum tækifæri til þess.
Eg vil eindregið hvetja kylfinga til að
venja sig á að gera þetta rétt, líka þegar
þeir eru að leika utan keppni, til þess að
þeir skapi sér ekki víti að óþörfu þegar
síst skyldi. Máttur vanans er sterkur.
Venjum okkur á að fara eftir reglunum.
Það er a.m.k hvorki tímafrekt né flókið að
gera þetta rétt.
Gleðilegt sumar.
sjjurt svarað
Nafn? Guðni Haf-
steinsson
Aldur? 35 ára
GR síðan? 2000
Forgjöf? 9,6
Slæsari eða húkkari?
Slæsari - því slæs er
hægt að laga - en
húkkið hlustar ekki
Sullari eða þrípúttari?
Tvípúttari
St. Andrews eða Augusta
National? St. Andrews.
Við Keflvíkingar
eigum vallarmet þar
Erfiðasta höggið í golfi? Næsta högg
Uppáhaldsbraut á völlum GR? 15. í Grafarholti
Uppáhaldsvöllur? Kings Bams
Skemmtilegasti kylfingurinn? Sonur minn - Hafsteinn
Draumahollið? Feðgamir, Colin, Guðni og Helgi
Markmið í golfinu? Að vinna Wartan OPEN fyrir árið 2030
Holl ráð fyrir golfið? Vara sig á Aganefndinni
Ertu í golfklíku og ef svo er, hver er hún? Já - ég er í Félagsskap
íslenskra golfara og Wörtunni B.C.
Ég held með? Keflavík í fótboltanum en Val í körfunni
Að vera í GR er? Ávísun á frábæran félagsskap.
KYLFINCUR 57