Fréttablaðið - 12.01.2011, Síða 10
10 12. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
TEKNAR Í TÖLU FULLORÐINNA Tvítugar
japanskar stúlkur skemmta sér í
rússíbana í Tókýó í tilefni aldursins, því
tvítugar teljast þær fullorðnar í Japan.
NORDICPHOTOS/AFP
Öll fargjöld miðast við fl ug báðar leiðir, skattar og gjöld innifalin. Verð miðast við 14 desember 2010 og framboð er takmarkað af lægstu fargjöldum.
Ferðatímabil er 12 febrúar til 30 september 2011.
fl ysas.is
Ávallt með SAS
Engin dulin gjöld
23 kg farangur án endurgjalds
Frí vefi nnritun
EuroBonus punktar
25% barnaafsláttur
Reykjavík frá
Ósló kr. 26,700
Kaupmannahöfn kr. 37,400
Stokkhólmur kr. 39,800
OFURTILBOÐ TIL SKANDINAVÍU.
Bókið fyrir 17 janúar.
Reykjavík frá
Kristiansand kr. 36,500
Stafangur kr. 36,500
Þrándheimur kr. 40,100
VIÐSKIPTI Íbúðalánasjóður keypti 723 íbúðir
á nýliðnu ári og átti 1.070 íbúðir um áramót-
in. Þetta er þrjátíu íbúðum minna en áætl-
anir sjóðsins gerðu ráð fyrir. Þetta er rétt
rúmlega þrefalt fleiri íbúðir en sjóðurinn
átti í lok árs 2009 en þá átti hann 347 íbúðir.
Ásta H. Bragadóttir, fráfarandi aðstoð-
arframkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir
niðurstöðuna nokkurn veginn á áætlun.
Hún gerir ráð fyrir að aðgerðir stjórnvalda
um lausn á skuldavanda heimilanna muni
skila sér í því að sjóðurinn eignist færri
íbúðir á þessu ári en í fyrra. Þá er búist
við að fyrirhugað kaupleigukerfi valdi því
að íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs fækki á
árinu.
Gert er ráð fyrir að Íbúðalánasjóður eigi
882 íbúðir um næstu áramót. „Við höfum
ekki formlega endurskoðað þær áætlanir,“
segir Ásta.
Staða sjóðsins var slæm skömmu fyrir
áramótin. Eigið fé hans nam 10,1 milljarði
króna í lok árs 2009 og stóð eiginfjárhlut-
fallið þá í 3,0 prósentum. Um mitt síðasta
ár var eigið féð komið í 8,4 milljarða og
stóð eiginfjárhlutfallið í 2,1 prósenti. Það á
lögum samkvæmt að vera 5,0 prósent.
Alþingi samþykkti fyrir mánuði að bæta
eiginfjárstöðu sjóðsins og veita til hans 33
milljarða króna. Upphæðin færist í árs-
reikning fyrir nýliðið ár. Vinna við gerð
reikningsins stendur nú yfir. - jab
HÚS Í BYGGINGU Íbúðalánasjóður eignaðist 723 íbúðir
á nýliðnu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Búist er við því að aðgerðir stjórnvalda leiði til þess að Íbúðalánasjóður eignist færri íbúðir á árinu:
Íbúðalánasjóður átti 1.070 íbúðir um áramótin
LÖGREGLUMÁL Nítján ökumenn
voru teknir fyrir vímuakstur á
höfuðborgarsvæðinu um helg-
ina. Fjórtán voru teknir fyrir
ölvunarakstur og fimm ökumenn
voru undir áhrifum fíkniefna við
stýrið.
Hinir ölvuðu voru tólf karl-
menn á aldrinum 20 til 50 ára og
tvær konur, 19 og 39 ára. Tveir
þessara ökumanna höfðu þegar
verið sviptir ökuleyfi og tveir til
viðbótar hafa aldrei öðlast öku-
réttindi.
Þeir sem óku undir áhrifum
fíkniefna voru fjórir karlmenn á
aldrinum 19 til 27 ára og ein kona
um fertugt. - jss
Óku drukkin og dópuð:
Nítján teknir
við vímuakstur
VIÐSKIPTI Vogunarsjóðurinn Bor-
eas Capital hagnaðist um rúmar
26 milljónir króna árið 2009.
Þetta er talsverður samdráttur á
milli ára en árið 2008 nam hagn-
aðurinn 102,3 milljónum. Eigend-
ur fengu nær allan hagnaðinn í
arð í fyrra, 96 milljónir króna.
Boreas Capital var stofnaður
um mitt ár 2007. Eigendur hafa
í gegnum tíðina tengst Björgólfi
Thor Björgólfssyni og fjárfest-
ingarbankanum Straumi. Þá fór
Ragnar Þórisson, einn eigenda
hans, með formanni Framsókn-
arflokksins til Noregs í október
2009 til viðræðna við þarlenda
þingmenn um allt að 2.000 millj-
arða króna lánafyrirgreiðslu. - jab
Samdráttur hjá vogunarsjóði:
Fá hundrað
milljónir í arð
SJÁVARÚTVEGUR Loðnuvinnsla er
hafin að nýju á Vopnafirði eftir
að Lundey NS kom þangað með
um 680 tonn af loðnu í fyrrakvöld.
Magnús Róbertsson, vinnslustjóri
hjá HB Granda, segir að loðnan nú
sé heldur smærri en sú sem barst
til vinnslu fyrir áramótin en það
muni ekki miklu. Góður hluti afl-
ans henti til frystingar en það sem
flokkist frá fari til bræðslu.
Greint er frá þessu á vefsíðu
HB Granda. Þar segir að nú sé
vika liðin frá því að Lundey NS
fór til loðnuleitar í samræmi við
áætlun Hafrannsóknastofnun-
ar þar að lútandi og hófst leitin á
Vestfjarðamiðum. Arnþór Hjör-
leifsson skipstjóri segir aðstæður
til leitar hafa verið hinar verstu.
Bræla á miðunum:
Loðnuvinnsla
hafin að nýju
Friðarstillir laminn
Ein líkamsárárás var kærð til lög-
reglunnar í Vestmannaeyjum eftir
skemmtanahald helgarinnar. Karl-
maður sló konu í andlitið þannig að
það brotnaði upp úr tönn og fylling
í annarri losnaði. Hafði konan verið
að stilla til friðar og endaði það með
þessum afleiðingum.
LÖGREGLUFRÉTTIR