Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2011, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 12.01.2011, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 12. janúar 2011 Merkilegt ár í sögu kven-réttinda á Íslandi er nú að baki, en árið 2010 voru 95 ár frá því konur fengu kosningarétt í alþingiskosningum, 35 ár frá fyrsta kvennafrídeginum, 30 ár frá kjöri Vigdísar Finnbogadótt- ur og 20 ár frá stofnun Stígamóta svo nokkrir áfangar séu nefndir. Við undirrituð teljum rétt að líta yfir stöðuna á þessum tímamót- um. Með það í huga lýsum við yfir þungum áhyggjum af brota- lömum innan réttarvörslukerfis- ins hér á landi. Á árunum 2006- 2009 voru rúmlega 70% kærðra nauðgunarmála felld niður hjá embætti ríkissaksóknara. Mun algengara er að kærur vegna nauðgana séu felldar niður en kærur vegna annarra hegningar- lagabrota. Sem dæmi má nefna að árið 2006 voru 40% annarra hegningarlagamála felld niður, en 73% nauðgunarmála. Árið 2008 voru 24% annarra hegning- arlagamála felld niður, en 69% nauðgunarmála. Þessi háa tíðni niðurfellinga á nauðgunarmálum er vísbending um brotalöm í meðferð þeirra. Ýmsar alþjóðlegar stofnanir, svo sem mannréttindanefnd Sam- einuðu þjóðanna, auk nefndar um afnám misréttis gegn konum (CEDAW), hafa lýst yfir áhyggj- um af misræminu hér á landi, milli fjölda kærðra nauðg ana sem berast lögreglu, fjölda ákæra sem gefnar eru út hjá embætti ríkissaksóknara, og að lokum fjölda sakfellinga. Á und- anförnum árum hafa fleiri brota- þolar kært nauðgun en tíðkaðist áður. Þó hafa fleiri kærur ekki leitt til fleiri sakfellinga og er það áhyggjuefni. Nýlega var starfssvið kyn- ferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu útvíkk- að með þeim hætti að rann- sókn ofbeldisbrota var bætt við skyldur hennar. Þessi breyting jók verulega álagið á starfsfólk deildarinnar sem getur ekki lengur helgað sig rannsókn kyn- ferðisbrota. Því er full ástæða til að kanna hvort áðurnefnd útvíkkun hafi haft neikvæð áhrif á rannsókn kynferðisbrota. Á undanförnum mánuðum hafa menn sem gegna lykilstöð- um í opinberri meðferð kynferð- isbrota tjáð sig um málaflokk- inn í fjölmiðlum. Er það annars vegar Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeild- ar lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu, og hins vegar Val- týr Sigurðsson ríkissaksóknari. Ýmis samtök sem gæta hags- muna þolenda kynferðisofbeldis hafa sagt ummæli þeirra trún- aðarbrest sem lýsa fordómum og þekkingarleysi á stöðu brotaþola í þessum málaflokki. Þrátt fyrir þetta höfðu ummæli þeirra ekki varanlegar afleiðingar. Björgvin var tímabundið færður til í starfi vegna ummæla sinna um ölvun og nauðganir, en var settur aftur í stöðu yfirmanns kynferðis- brotadeildarinnar þremur mán- uðum síðar án þess að því fylgdu opinberar skýringar um hvers vegna hann teldist hæfur á ný. Nauðsynlegt er að gera kröfu til faglegra vinnubragða af hálfu fólks í lykilstöðum innan réttar- vörslukerfisins. Þegar það opin- berar viðhorf sem eru til marks um ranghugmyndir eða van- þekkingu, er afleiðingin trún- aðarbrestur við samfélagið sem kerfið á að þjóna. Þá gagnrýni sem hér hefur verið fjallað um, bæði frá alþjóðasamfélaginu og innlend- um aðilum, ber að taka alvar- lega. Óumdeilt þarf að vera að réttarvörslukerfið þjóni hags- munum þeirra sem beittir eru órétti. Við skorum á dómsmálaráð- herra að endurreisa trú almenn- ings á réttarvörslukerfinu með því að lagfæra þær brotalamir sem þar er að finna. Við leggjum til að skipuð verði rannsóknarnefnd, undir forystu óháðs erlends sérfræðings, til að fara ofan í saumana á ferli nauðgunarmála innan réttar- vörslukerfisins. Meta þarf hæfni og forsendur kerfisins til að fást við slíkt ofbeldi. Beina þarf sjónum sérstaklega að misræmi milli fjölda kæra sem berast lög- reglu, fjölda ákæra sem gefnar eru út hjá embætti ríkissaksókn- ara og fjölda endanlegra sakfell- inga. Einnig er ástæða til að gera úttekt á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Efla þarf fræðslu til fagstétta sem starfa að kynferðisbrota- málum og skýrar reglur þurfa að vera um hvernig skuli bregð- ast við í framtíðinni ef trúnaðar- brestur á sér stað. Þörf er á því að leggja viðhorfskannanir fyrir fólk, sem kemur að meðferð kynferðisbrota í starfi sínu, svo hægt sé að bera kennsl á og upp- ræta fordóma. Síðast en ekki síst þarf að vera skýrt hvaða hagsmunir skuli ráða ferðinni. Við teljum mik- ilvægt að hagsmunir fólks sem verður fyrir grófum ofbeld- isbrotum séu í fyrirrúmi svo það sjái tilgang í því að leita til réttarvörslukerfisins. Virðingarfyllst, Andrés Ingi Jónsson Anna Bentína Hermansen Arnar Gíslason Daði Arnar Sigmarsson Edda Jónsdóttir Grétar Rafn Árnason Guðrún Margrét Guðmundsdóttir Gyða Margrét Pétursdóttir Hjálmar G. Sigmarsson Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir Hugrún Hjaltadóttir Karl R. Lilliendahl Katrín Anna Guðmundsdóttir Matthías M. D. Hemstock Ósk Gunnlaugsdóttir Rósa Björk Brynjólfsdóttir Snorri Ásmundsson Víðir Guðmundsson Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Áskorun til dómsmálaráðherra Kynferðisbrot Nítján einstaklingar skora á dómsmálaráðherra Við skorum á dómsmálaráðherra að endurreisa trú almennings á réttar- vörslukerfinu með því að lagfæra þær brotalamir sem þar er að finna. SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Ef þú notar MasterCard kort frá Kreditkorti gætirðu tryggt barninu þínu ógleymanlega upplifun. Tveir krakkar á aldrinum 7-9 ára verða dregnir út og fara ásamt fylgdarmanni á leik í UEFA Champions League og leiða leikmenn inn á völlinn í boði MasterCard, aðalstyrktaraðila UEFA Champions League. Til að taka þátt þarf að nota MasterCard kortið a.m.k. 10 sinnum frá 10. jan.-1. feb. 2011. Dregið vikulega um skemmtilega aukavinninga. UPPLIFUN SEM ALDREI GLEYMIST Barnið þitt gæti fengið að leiða leikmann inn á völlinn í leik í UEFA Champions League Skráðu þig til leiks á www.kreditkort.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.