Fréttablaðið - 12.01.2011, Síða 46
38 12. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
Bíó Paradís fékk nýverið tíu milljónir króna
úr ríkissjóði á fjárlögum 2011. Þessa dagana
standa yfir viðræður um skyldur kvikmynda-
hússins gagnvart framlagi ríkisins og munu
þær standa yfir næstu eina til tvær vikur.
Í júlí síðastliðnum ákvað Reykjavíkurborg
að veita Bíói Paradís tólf milljónir króna í
rekstrar- og framkvæmdastyrk. Sex milljón-
ir áttu að renna til viðhalds á húsinu og hinar
sex að renna stoðum undir reksturinn fyrstu
mánuðina.
Kvikmyndahúsið tók til starfa í gamla
Regnboganum um miðjan september í fyrra.
Þar er lögð áhersla á listrænar bíómyndir,
klassískar myndir og kvikmyndahátíðir. Sal-
irnir eru fjórir í húsinu og því þarf aðsókn-
in að vera góð til að reksturinn standi undir
sér. Kaffihús er í Bíói Paradís sem hingað til
hefur aðeins verið opið á sama tíma og bíóið.
Stefnan hefur þó verið sett á að með hækk-
andi sól verði það einnig opið á öðrum tímum.
Lovísa Óladóttir, framkvæmdastjóri Bíós
Paradísar, segir að bíóið hafi fengið fín við-
brögð síðan það var sett á laggirnar og að
mikil velvild sé í garð þess. „Starfsemin er í
mjög góðum farvegi og framtíð Bíós Parad-
ísar er björt,“ segir hún og bætir við: „Það er
mikilvægt að fólk sýni áhuga sinn í verki með
því að mæta í bíó.“
Á meðal þess sem Bíó Paradís tók til sýn-
ingar í fyrra voru myndirnar sem voru til-
nefndar til Norrænu kvikmyndaverðlaunanna
og íslensku heimildarmyndirnar Með hang-
andi hendi og Backyard. - fb
„Þetta leggst mjög vel í mig.“ segir
hin 26 ára gamla Hugrún Halldórs-
dóttir, sem hefur störf á frétta-
stofu Stöðvar 2 á næstunni.
Fréttastofan varð fyrir mikilli
blóðtöku á dögunum þegar Guðný
Helga Herbertsdóttir og Sigríð-
ur Mogensen hættu störfum með
skömmu millibili. Verkefnið verð-
ur því ærið fyrir Hugrúnu, sem
hefur starfað sem blaðamaður
á Morgunblaðinu undanfarið og
leggur nú lokahönd á BS-ritgerð í
hagfræði.
Spurð hvort hún hafi ávallt
stefnt að því að starfa í sjónvarpi
segir Hugrún að hún hafi aðeins
prófað netsjónvarpið á Mbl.is.
„Mér fannst það alveg ótrúlega
gaman. Þannig að ég er spennt,“
segir hún.
Hugrún starfaði á menningar-
deild Morgunblaðsins í sumar, en
færði sig yfir í innlendu fréttirnar
í haust. Þá hefur hún einnig skrif-
að inn á Mbl.is.
En ert þú byrjuð að undirbúa þig
með því að horfa á kvikmyndina
Anchorman man aftur?
„Nei, ég verð að kíkja á hana og
Robyn í How I Met Your Mother
og fleiri góða,“ segir Hugrún hress
að lokum.
- afb
LÖGIN VIÐ VINNUNA
FÓLKIÐ Á BAK VIÐ BÍÓ PARADÍS Bíó Paradís fékk nýver-
ið tíu milljónir króna úr ríkissjóði á fjárlögum 2011.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FYLLIR Í SKARÐIÐ Hugrún hefur störf
á fréttastofu Stöðvar 2 á næstunni, en
fréttakonurnar Guðný Helga Herberts-
dóttir og Sigríður Mogensen hættu þar
fyrir skömmu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nýtt andlit í
fréttunum á Stöð 2
Framtíð Bíós Paradísar rædd
Ferðamálaráð Kanaríeyja bauð 100
Íslendingum í lúxusferð til
eyjanna í lok árs 2009.
Verkefnið átti að kynna
það sem eyjurnar
hafa upp á að bjóða
og stuðla þannig að
auknum ferðamanna-
straumi frá Íslandi.
Grínistinn Ari
Eldjárn var á
meðal þeirra
sem fóru í
ferðina á
sínum tíma og
takmark ferðamálaráðsins virðist
hafa náðst; Ari hefur nefnilega
snúið aftur til Kanarí og flatmagar
nú í 20 stiga hita á hvítri strönd …
Fótboltakonan Sif Atladóttir gekk
í það heila á dögunum, en sá
heppni heitir Björn Sigurbjörnsson.
Sif er dóttir fótboltahetj-
unnar Atla Eðvaldssonar
og hefur átt fast sæti í
hinu frábæra A-landsliði
Íslands í fótbolta. Þá varð
hún Íslandsmeistari með
Val 2007 og 2008 en
leikur nú með 1.
FC Saarbrücken í
þýsku úrvalsdeild-
inni. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég hlusta mikið á Kings of Leon
og undanfarið hef ég hlustað á
nokkur gömul lög með SS Sól
eins og Kartöflur. Svo er ég að
hlusta dálítið á Rasmus Seback.
Það tók mig fjögur ár að byrja
að hlusta á danska tónlist.“
Arnór Atlason, landsliðsmaður í hand-
bolta.
„Þetta hljómar vel. Ég hafði
reyndar ekki heyrt af þessu.
Maður hætti að fylgjast með
þessu eftir síðasta pilot-tíma-
bil,“ segir Ragnar Bragason leik-
stjóri.
Ævintýri Næturvaktarinnar
í Ameríku virðist síður en svo
lokið. Gamanleikarinn Jack
Black og framleiðslufyrirtæki
hans, Electric Dynamite, hefur
nú tekið þá Georg, Ólaf Ragn-
ar og Daníel að sér. Black og
hans menn ætla að þróa handrit
eftir Næturvaktinni fyrir Saga
Film og bandaríska framleiðslu-
fyrirtækið Reveille sem á endur-
gerðarréttinn í Bandaríkjunum.
Handritshöfundinum Michael Dil-
iberti hefur verið falið að vinna
nýtt handrit upp úr þáttunum
en hann á heiðurinn að handriti
myndarinnar 30 Minutes or Less
sem skartar Jesse Eisenberg úr
Social Network í aðalhlutverki.
Ragnar, sem vinnur nú að nýrri
sjónvarpsþáttaröð fyrir Stöð 2,
segir að það yrði vissulega mikið
fagnaðarefni ef ráðist yrði í gerð
amerísku útgáfunnar af Nætur-
vaktinni. „Þetta er hins vegar allt
svo flókið í Bandaríkjunum, svo
mikið bákn og langar leiðir sem
þarf að fara.“
Eitt og hálft ár er liðið síðan
fréttir bárust af landvinningum
Næturvaktarinnar í Bandaríkj-
unum. Fox-sjónvarpsstöðin keypti
sýningarréttinn að endurgerðinni
og handritshöfundurinn Adam
Barr skrifaði handrit að svoköll-
uðum „prufu-þætti“ eða pilot sem
notaður er til að sjá hvort viðkom-
andi efni hentar fyrir sjónvarp
eða ekki. Og það fór svo að stjórn-
endur Fox ákváðu að ráðast ekki í
gerð prufu-þáttarins.
Jack Black gerði samning við
Reveille í apríl á þessu ári um að
hann kæmi með hugmyndir að
gaman-, raunveruleika- og teikni-
myndaþáttum fyrir sjónvarp og
leikarinn virðist hafa fallið fyrir
íslenska gríninu sem hreif þjóð-
ina með sér á sínum tíma. Ragn-
ar kveðst vera hrifinn af Jack
Black og segir hann ekki ókunn-
ugan Næturvaktar-hópnum. „Við
höfum oft grínast með það í gegn-
um tíðina að ef einhver Holly-
wood-stjarna ætti að leika Pétur
Jóhann þá væri það hann.“
freyrgigja@frettabladid.is
RAGNAR BRAGASON: LÍFI BLÁSIÐ Í ENDURGERÐ ÍSLENSKRA GAMANÞÁTTA
Jack Black tekur við
Næturvaktinni í Hollywood
Rokkarinn Björn Stefánsson úr
hljómsveitinni Mínus og Íris Dögg
Einarsdóttir ljósmyndari eiga von
á sínu öðru barni. Eins
og Fréttablaðið hefur
greint frá gengu
þau í hjónaband á
nýársdag og fengu
nánustu aðstandend-
ur hjónanna þessar
gleðifregnir
á dögunum.
Björn og Íris
eru búsett
í Kaup-
manna-
höfn. Þau
eiga fyrir
dótturina
Sölku.
Popparinn Friðrik Dór virðist hafa
hitt rækilega í mark með sinni
fyrstu plötu, Allt sem þú átt, sem
kom út fyrir síðustu jól.
Hún seldist í um 2.500
eintökum og lög af
henni hafa notið
mikilla vinsælda í
útvarpinu. Sena,
útgáfufyrirtæki
Friðriks Dórs,
mun vera
mjög
ánægt með
árang-
ur síns
manns,
enda ekki
sjálfgefið
að íslenskur
tónlistarmað-
ur selji svona
margar plötur
í fyrstu tilraun.
- hdm, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
STÓRSTJARNA
Jack Black er stórstjarna í bandarískum gam-
anleik en hefur líka reynt fyrir sér í alvarlegum
hlutverkum. Hann lék meðal annars kolbil-
aðan og skuldugan kvikmyndagerðarmann
í King Kong eftir Peter Jackson. Black hefur
verið falið að vinna með amerísku útgáfuna
af Næturvaktinni fyrir framleiðslufyrirtækið
Reveille en Ragnar Bragason leikstýrði þeirri
íslensku.
HEFST Á MORGUN
TRYGGÐU
ÞÉR ÁSKRIFT