Fréttablaðið - 29.01.2011, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 29. janúar 2011 3
Í smiðjunni verður unnið á óvenju-
legan hátt með leir.
Leir í öðru
og nýju ljósi
Leirsmiðja ætluð fjölskyldum
verður haldin í Ásmundar-
safni í dag.
Myndlistarmaðurinn Haraldur
Jónsson stjórnar leirsmiðju
í Ásmundarsafni í dag, sem
ætluð er fjölskyldum og er hún
ókeypis og öllum opin.
Leir hefur komið við sögu í
listsköpun Haraldar; síðast á
sýningunni Ný aðföng 2006-
2010 á Kjarvalsstöðum þar sem
gaf að líta verk hans Blindnur,
leirform með lukt augu. Undir
leiðsögn Haraldar gefst þátt-
takendum í smiðjunni að vinna
með leir á óvenjulegan hátt.
Þess má geta að smiðjan er
sett upp í tengslum við tvær
sýningar í Ásmundarsafni,
Svefnljós, innsetningu Ráð-
hildar Ingadóttur í Kúlunni
og Hugsað í formum, sem
sýnir endurgerða vinnustofu
Ásmundar Sveinssonar.
Leirsmiðjan hefst í dag
klukkan 14.00.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
Hamraborgin í Hofi á Akureyri
mun á morgun óma af söng-
leikjatónlist í flutningi Alex-
öndru Chernyshovu, Michaels
Jóns Clarke og Risto Laur.
„Við Alexandra ætlum að skemmta
okkur konunglega og vonandi sjá
margir sér fært að koma í Hof og
skemmta sér með okkur,“ segir
Michael Jón þegar hann er spurð-
ur út í tónleikana í Hofi klukkan
fimm á morgun með Alexöndru
Chernyshovu. Þau ætla að flytja
sönglög og dúetta úr helstu róm-
antísku söngleikjunum frá síðustu
öld, frá Oklahoma til Óperudraugs-
ins.
„Auðvitað erum við hálf galin
að fara út í svona stórfyrirtæki en
þar er jafnt á komið með okkur,“
segir Michael Jón. „Svo fáum við
einn orkubolta til viðbótar í liðið
með okkur, Risto Laur sem lenti
nýlega á Akureyri beint frá Eist-
landi. Hann er ekki bara píanóleik-
ari, heldur heil hljómsveit.“
Michael Jón er þekktur fyrir
flutning á söngleikjatónlist en
Alexandra segir það nýja reynslu
fyrir sig. „Ég hef meira verið í
óperutónlistinni fram að þessu en
finnst þetta mjög spennandi,“ segir
hún og tekur fram að þau Michael
Jón hafi sungið saman áður og þá
í óperu.
Söngfuglarnir eru að koma
frá því að skemmta heimilisfólki
Dvalarheimilisins Hlíðar þegar í
þá næst. Alexandra býr á Hofsósi
og hefur lagt á sig stíf ferðalög á
æfingar síðustu vikur, stundum í
misjöfnu veðri og erfiðri færð. „Ég
keyri bara rólega ef eitthvað er að
veðri en þegar svona stórviðburð-
ur er í aðsigi stoppar mig ekkert,“
segir hún. - gun
Rómantíkin á ferð
„Auðvitað erum við hálf galin að fara út í svona stórfyrirtæki en þar er jafnt á komið
með okkur,“ segir Michael Jón, hér með Alexöndru og undirleikaranum Risto Laur.
Laugavegi 63 • s: 551 4422
laxdal.is
MÖGNUÐ ÚTSALA
ALLT AÐ 60%
AFSLÁTTUR!
Á klassískum og
vönduðum kven-
fatnaði frá þekktum
framleiðendum
Síung í 70 ár