Barnablaðið - 01.02.1945, Page 1

Barnablaðið - 01.02.1945, Page 1
BARNABLAÐIÐ VIII. ÁRG. Janúar—Febrúar 1945. 1.—2. tölublað. Vökumaður, hvað líður nóttinni? Jesaja 21 :11. I. Vökumaður, veiztu hvað nóttinrú líður? Vökumaður, rís ekki dagur senn? Löng er þeim dvölin, sem dómsins bíður. Dimmt er í heimi. Alltaf syrtir um særða og seka menn. Margt verður breytt, þegar birtir. — TJm brjóstin á jörðinni myrkrið flæðir. Það syrtir — sólinni blæðir. Guðs dýrðlega, milda og máttuga hönd! Veit hlífð fyrir eldsvoða’ um hús vor og lönd. FORSÍÐUMYNDIN sýnir vökumann í kirkju- turni í heimaborg minni. Hann vakir alla nóttina og lítur yfir bæinn og blæs í horn sitt fimmtándu hverja mínútu: Tu-uh — tu-uh, heyrist það. Af- skaplega var eg hræddur, sem krakki heima, þang- að til móðir mín útskýrði leyndardóminn í þessari sérkennilegu músik. — Ystad heitir borgin, syðst í Svíþjóð, beint á móti Þýzkalandi. Líklega einasta borg í heimi, þar sem þessi siður helzt við. N. R. Harðstjórans lögmál var letrað á skjöldinn og lýðnum gefið sem stjórnarskrá. Hver sem neitaði að greiða gjöldin og gjörði uppreisn, var höggvinn, skotinn, bærinn hans brotinn, en börn hans neydd til að plægja og sá blóðuga akra bjargþrota landa .... og svo kom nóttin.

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.