Barnablaðið - 01.02.1945, Page 7

Barnablaðið - 01.02.1945, Page 7
BARNABLAÐIÐ 7 inn, sem með aldrinum varð al- vörugefinn og hugsandi, hélt áfram starfi föður síns og stundaði net sín og veiðar af mikilli kostgæfni. Vegna iðju sinnar þurfti Mikael stundum að fara til hinnar stóru höfuðborgar, ýmissa erinda. I einni slíkri för átti hann kost á að sjá hvílíkt hyldýpi eymdar og volæðis stundum er á næsta leyti við auð og allsnægtir stórborgarinnar. Þessi dapurlegu kynni hans af París höfðu djúp áhrif á hina viðkvæmu sál drengsins, og hann þráði ekkert lieitar, en að komast sem fyrst heim. En síðustu dagana, sem hann dvaldi í París, komst hann í kynni við fróman og guðhræddan iðnað- armann, sem nýlega hafði kynnst boðskap Lúthers og sannfærst um blekkingar hinnar kaþólsku kenni- setninga. Þessi nýi vinur hans fékk honum í hendur biblíu og ennfrem- ur frásögn um fórnarvilja Jesú Krists, mannkyninu til handa og úm veginn til eilífs lífs. Þetta nýja ljós og sannfæringin um blessun hjálpræðisins fylltu hjarta liins unga manns djúpri gleði og með þennan dásamlega fjársjóð krist- innar trúar, sneri hann heim á leið. Heima í þorjtinu vildi enginn skilja þá hamingju, sem hann hafði orðið aðnjótandi, og strax og afturhvarf hans frá trú feðranna varð kunn, varð hann fyrir aðkasti og ofsóknum, bæði frá prestunum og nágrönnunum. Vissulega olli J^að honum mikilla liarma, en það gat í engu breytt skoðunum hans á hinum liimnesku sannindum, eða rænt hann hinum endurnærandi friði, er hann hafði hlotið. Fólkið í þorjrinu kallaði hann villutrúar- mann og forðaðist hann, eins og væri hann illur andi. Nokkrum árum síðar, var það eitt sumarkvöld, að fiskimennirnir í Mont St. Mikael voru önnum kafnir við að gera að netum sínum, niður við ströndina. Unnu þeir saman í smáhópum, allir nema Mikael, hann vann einn síns liðs. Það var eins og einhver ósýnilegur veggur skildi hann jafnan frá öðr- um. Enginn yrti á hann, en á bak var „villutrúarmaðurinn" hæddur og svívirtur. Mikael lét eins og hann heyrði það ekki, en söng hin- ar löngunarblíðu vísur sínar, um landið handan storms og strauma. Þegar sólin stráði gulli sínu yfir hafið í vestri, héldu fiskimennirnir lieim í þorjrið, þar sem konur og börn tóku fagnandi á móti þeim. Mikael hélt einnig heim á leið. Enginn fagnaði honum. Konurnar gerðu krossmark fyrir sér, þegar hann gekk lijá og börnin kölluðu: „Sjáið trúvillinginn!" Mikael varð harmi lostinn við ókvæðisorð barnanna. En enginn skeytti um jrað. Prestarnir höfðu líka sagt að hann væri yfirgefinn af Guði og eilíflega glataður. Þegar Mikael kom heim til sín, ojmaði

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.