Barnablaðið - 01.02.1945, Page 10

Barnablaðið - 01.02.1945, Page 10
10 BARNABLAÐIÐ Ndoole fagra og magri töframaðurinn. Ndoole hét lítil Negra-stúlka, 12 eða 13 ára gömul. Ndoole þýðir í'alleg, og litla stúlkan var líka verulega falleg. Hún varð barn- fóstra hjá okkur, og enginn var eins laginn og hún að leika við börnin. Hún var glöð og fjörug, næsturn galsafull stundum, og með þessu vann hún alveg hylli barnanna. En stundum varð hún skyndilega alvörugefin. Hugur hennar sveip- aðist svartasta húmi.----Vissulega þjakaði eitthvað þessari litlu barns- sál. Stundum gat hún staðið svona \ ið hlið-stólpann eða húshornið og starað til jarðar, meðan liún kleip og togaði í kjólinn sinn. Þá gat næstum því litið svo út, að sinnis- veiki heí’ði gripið hana. Veslings litla Ndoole! Eitthvað ógurlegt lá henni þungt á hjarta. Hvað gat það eiginlega verið? Gat svona góð og lítil stúlka haft þung- ar byrðar að bera? Foreldrar hennar dóu fyrir mörgum árum. Þá fór hún til föð- urbróður síns, sent fékk hana í arf eftir bróður sinn. Hann seldi hana síðan föðurbróður sínum fyrir 13 geitur, og nú var að því komið að hún skyldi afhent þessum verðandi eiginmanni. Kóngó-stúlkurnar eru nefnilega seldar, meðan þær eru mjög litlar. Oftast eru þær, þegar \ ið fjögra ára aldur seldar, eins og hver önnur verzlunarvara. Líf þeirra er sárasta þjáning og þraut. Einu sinni var ég viðstaddur slíkt heiðingjabrauðkaup, þar sem brúð- urin var leidd fram með bindi fyrir augunum. Hún kveinaði og grét af örvæntingu, tárin streymdu niður kinnar hennar, og gestirnir grétu jafnvel með henni. Þetta heyrði reyndar til hinna venjulegu brúð- kaupa, en þýðingin var í raun og sannleika sú, að frá þessari stundu byrjaði slit liennar og stríð rneð' höggum og slögum, þjáningum og táraflóðum og ólýsanlegum kvöl- um. Vesalings mannverur, hugsaði ég, sem fæddar eru í þessu myrkr- anna landi og lifa verðið án þess að þekkja ljós himinsins. Einn daginn talaði höfðinginn í þorpinu til mín og sagði: — Alla drengina okkar megið þér taka í skólann, en engar stúlkur — mun- ið það! — Hvers vegna mega stúlkurnar ekki mæta í skólanum líka? spurði ég- — Þær eru ekki manneskjur, þær eiga að læra að vinna, því að þegar jieim einn góðan veðurdag verður skilað til manna sinna, verða þær að kunna að vinna hvað sem er. Mönum þykir lítið varið í latar eig- inkonur! Mér var kvöl að heyra orð hans

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.