Barnablaðið - 01.02.1945, Blaðsíða 16

Barnablaðið - 01.02.1945, Blaðsíða 16
16 BARNABLAÐIÐ Mánudag. Orðskviðunum 10 : 10 —22. Munnur liins réttláta manns. Þriðjudag. Sama 11 : 1 — 15. Auð- mjúkur er hinn vitri. Miðvikudag. Sama 11 : 18—31. Réttlátir grænka. Eimmtudag. Sama 12 : 1 — 12. Sá elskar þekkingu sem elskar hirt- ingu. Föstudag. Sama 13 : 13—25. Lítils- virð þú ekki orð Guðs. Laugardag. Sama 13 : 1 — 12. Það logar á lampa hins réttláta. Sunnudag. Orðskviðunum 14 : 12 16 (Sunnudagaskólatexti). Minningavers: „Lífsins vegur ligg- ur upp á við fyrir hinn hyggna, til þess að hann lendi ekki niður í Helju“. Orðskviðirnir 15 : 24. Þetta er aðeins fyrirmynd í því, hvernig á að nota Guðs orð til gagns og leiðbeiningar í hversdags- lífinu og í Sunnudagaskólanum. Blaðið er prentað í Prentverki Odds Björnssonar, Akureyri. Vetrarþrautir. (Úr Biblíunni til fróðleiks). 1. Hvaða menn voru ásýndum sem ljón og fráir sem skógargeitur? 2. Hver át upp bók og varð illt í maganum? 3. Hver fékk skó af selskinni (í íslenzku Biblíunni: sækýrskinni)? 4. Hvaða hegningu fékk maður, sem vann á hvíldardeginum, eftir gamla sáttmálanum? 5. Hvar var fyrsti grafreitur Bibl- íunnar? 6. Hver lét kasta börnum í Ijóna- gryfju? 7. Hvaða piltur var drepinn af sólar-liita? 8. Hver vann sjö ár fyrir konu, og fannst þó tíminn stuttur? 9. í h\’aða söngflokki voru 288 manns? 10. í hvaða Biblíubréfi er skóla- meistari nefndur? BARNABLAÐIÐ. Ritstjóri: Nils Ramselius. Ritstjórn og afgreiðsla: Hafnarstræti 77, 3. hæð, Akureyri. Sími 163. Árgangurinn er um 90 bls. (9 eint.). Árgjald kr. 3.50. Lausasölu kr. 0.75 aura eintakið.

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.