Barnablaðið - 01.06.1955, Qupperneq 12
jn
UUlLSLUZtSL
Níels litli sat við eldhúsborðið
og las í skólabókunum sínum.
Hann átti dálítið erfitt með að
lesa en hann reyndi samt eins vel
og hann gat.
Níels var lítill vexti, fölur og
magur. Hann átti enga mömmu.
Hún var dáin fyrir nokkrum ár-
um. Það var enginn, sem kærði sig
nokkuð um Níels litla. Faðir hans
var drykkjumaður og ráðskonan,
sem hét Malen, gerði bara það
allra nauðsynlegasta, þótt hún
ætti auðvitað að hjálpa Níels.
Aumingja drengurinn. Það var
ekki skemmtilegt líf hjá honum,
en hann gekk í sunnudagaskólann
og það bezta, sem hann þekkti var
að heyra um Jesúm og himininn.
Þegar Níels var búinn að lesa
skólabækurnar sínar, tók hann
fram sunnudagaskólamyndirnar
sínar og byrjaði að læra minnis-
versið fyrir næsta sunnudag. Það
var svona: „Vín og áfenga drykki
skal hann ekki drekka.“ Þetta las
nú Níels aftur og aftur.
Meðan hann var að lesa, hafði
Malen komið inn.
— Sittu ekki þarna yfir Biblí-
unni. Farðu heldur og sæktu við
í staðinn, hreytti hún út úr sér.
Níels var vanur að hlýða, svo að
hann fór samstundis. En á leiðinni
rifjaði hann upp minnisversið, því
að hann vildi alls ekki gleyma því.
„Vín og áfenga drykki skal hann
ekki drekka.“
Úti stóð faðir hans og hjó við i
eldinn.
— Hvaða þvaður er þetta í þér,
strákur? sagði hann ónotalega.
— Það er minnisversið, sem ég
á að læra, svaraði Níels hræddur.
— Því svívirðir þú föður þinn?
Ég fyrirbýð þér að ganga í þennan
sunnudagaskóla, heyi'irðu það.
Niels tók þunga viðarbyrði og
gekk þögull inn. Allt varð svo
dimmt og kalt ef hann fengi ekki
framar að fara í sunnudagaskól-
ann. Hann grét af hryggð.
Föður Níelsar fór að líða illa,
þar sem hann var að höggva við-
inn. Hann sá fyrir sér fölt andlit
Níelsar og aftur og aftur hljómaði
fyrir eyrum hans: „Vín og áfenga
drykki skal hann ekki drekka.“
Nei, þetta gat ekki gengið leng-
ur. Hann fleygði frá sér öxinni og
gekk út í gripahúsin. En hvar sem
hann fór, hljómuðu sömu orðin í
eyrum hans. Hann hugsaði með
sér:
— Ef ég hefði hlýtt þessu, þá
væri margt öðru vísi en það er.
Hann gekk hægt inn í íbúðar-
húsið. Inni í stóra eldhúsinu var
14 BARNABLAÐIÐ