Barnablaðið - 01.02.1979, Side 9
BARNABLAÐIÐ Á
BARNAÁRI
Eins og þiö væntanlega vitið öll, þá stendur nú yfir
ár barnsins. Viö sem vinnum viö Barnablaöiö hug-
leiddum hvaö viö gætum nú gert til þess aö halda upp
á ár barnsins, svo um munaði! Og hvaö haldiö þiö aö
viö höfum gert?
Viö stækkum Barnablaðið.
Undanfarin ár hafiö þiö fengið Barnablaöiö fjórum
sinnum á ári. En þetta ár ætlum við aö reyna að gera
sex blöð og auðvitað í framtíöinni, ef Guð lofar. Þessi
stækkun gerir aö verkum aö fleira fólk verður aö vinna
viö blaöiö og viö þurfum að kaupa meira af pappír.
Þess vegna mun blaðið kosta meira en áöur. En viö
treystum því aö þiö kunnið vel aö meta þessa stækk-
un.
Þaö væri afskaplega gaman ef viö gætum einnig
fjölgað áskrifendum að Barnablaðinu þetta 'ár. Þú
aettir ef til vill aö benda vinum þínum á aö gerast
áskrifendur aö Barnablaöinu!
Enn eru nokkrir, sem hafa gleymt aö borga áskrift-
argjald blaösins. Innan skamms veröa sendir út gíró-
seðlar, þar sem stendur hve miklu gjaldfallin skuld
nemur. Einnig koma innheimtumennirnir okkar í
heimsókn til þeirra, sem ekki fá gíróseðil. Við biðjum
ykkur um að bregðast nú vel viö og greiða árgjöldin.
Þiö sjáið aö Barnablaðið hefur breyst í útliti. Viö
ætlum í framtíöinni aö leggja meiri áherslu á alls
konar myndefni og verkefni fyrir ykkur aö leysa. Viö
biðjum ykkur að segja okkur hvernig ykkur líst á þaö.
Einnig væri gaman aö fá sent efni, sem þiö hafiö sjálf
gert. Sögur, ritgerðir og teikningar allt sem ykkur
dettur í hug. Skemmtilegt væri að þió segðuð okkur
frá trú ykkar á Guö og hvort einhverjir hafa fengiö
bænasvar! Viö munum svo birta þaö, sem okkurfinnst
best.
Kær kveöja, Guðni.