Barnablaðið - 01.02.1979, Page 13

Barnablaðið - 01.02.1979, Page 13
trinum Svo er þaö íkorninn. Það eru til margar tegundir íkorna, sumir hafast viö í trjám og aðrir á jörðu niðri. Þegar vetur gengur í garð, klæðist íkorninn tveim eyrnatreflum. Ekki þarf hann að bera kvíðboga yfir því, að hann týni þessu skjólklæði sínu, eins og stundum vill henda ykkur börnin góð í útiverunni. Því að þessi „kuldatrefill" íkornans eru þykkir eyraskúfar, eða brúskar með löngum, dökkum hárum, sem vaxa á eyrnabroddum hans þegar hausta tekur. Þetta er þá skjólklæðnaðurinn, sem Guð hefur gefið þessum dýrum til að verjast vetrarkuldanum. Jesús hugsar um Báru Bára er veik. Hún er búin að vera veik í nokkra daga. Nú líður henni betur og hún er orðin svöng. En maturinn er búinn úr ísskágnum og ennþá er hún ekki nógu frísk til að fara út í búð. Fæturnir geta ekki borið hana, þegar hún fer fram úr rúminu. Hún er hrygg, vegna þess að enginn hugsar um hana. Hún biður Jesúm um hjálp. Eftir dálitla stund hringir dyrabjallan. Bára fer fram og opnar. Þarna stendur þá ein vinkona hennar og spyr, hvort hana vanti ekki eitthvað úr búðinni. Jú, ég held nú það, segir Bára. Þegar þessi góða vinkona kemur aftur heim með matinn gefur hún Báru fallegt blóm. Bára er mjög glöð. Hún þakkar Jesú fyrir að senda þessa góðu vinkonu, til þess að hjálpa henni. Jesús hugsar um hana. þ. Gullý. I 13

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.