Barnablaðið - 01.02.1979, Blaðsíða 16
GUÐ RIKIR A
Fyrir ævalöngu var fólk Guós í þrældómi í Egyptalandi.
Fólkið baö til Guös um hjálp og hann sendi Móse til aö leiða þaö út úr Egyptalandi. Þú
manst kannski eftir því, aö Jósep fósturfaðir Jesú flýöi meö hann til Egyptalands undan
vonda konunginum Heródesi, sem hugöist granda Jesúbarninu.
Móse sagöi viö Faraó, konung Egyptalands, aö Guö vildi aö hann leyfði fólki sínu aö
yfirgefa landiö. En þaó vildi Faraó ekki gera.
,,Hver er Drottinn aö ég skuli hlýöa honum?“ sagöi hann. Þá sendi Guö 10 kraftaverk og
undurtil aö refsa Faraó fyrir óhlýðni hans, og til aö sýna honum aó Hann — Drottinn — ríkir
yfir öllum hlutum, já líka yfir konungum.
Guö lét öll vötn í Egyptalandi verða aö blóöi. Hann lét milljónir af froskum koma yfir
landiö. Hann breytti dufti jarðarinnar í mýflugur svo aö allt landiö fylltist af mýi. Hann sendi
fjársýki, flugur, kýli, hagl, engisprettur og svarta myrkur yfir landiö. Aö síöustu deyddi Guö
elsta soninn í öllum fjölskyldum í Egyptalandi. Þá vissi Faraó að Guö ræöur yfir öllum
hlutum á himni og jöröu. Hann leyfði lýö Guös — ísraelsmönnum — aö hverfa brott úr
Egyptalandi. Síöan fóru þeir til landsins sem varö heimaland þeirra og viö þekkjum undir
nafninu — ísrael.
Þessi Biblíusaga er í 2. Mósebók, köflunum 5—12.
16