19. júní


19. júní - 19.06.1958, Page 32

19. júní - 19.06.1958, Page 32
Stuttur þáttur ú r hnattferð. JJ i m Hin ósnertanlega. Brautarstöðin í Nýju Delhi árla morguns 19. janúar. Tötrum vafðir burðarmenn með vefjarhetti stafla ferðakistum okkar á höfuð sér og skunda til lestarinnar. Tveir fulltrúar menntamálaráðu- neytisins í Nýju Delhi fylgja Halldóri Laxness og konu hans til lestarinnar. Sá þriðji, Suresh Awasthi, á að vera fylgdarmaður á ferðalaginu. Eftir erilsama daga í höfuðborg Indlands hefst nú nýr þáttur í heimboði indversku stjórnarinnar til skáldsins, ferð til Agra og Benares. Milli Nýju Delhi og Agra eru 124 mílur. Lestin þýtur yfir sléttlendið. Veðrið er fagurt, sólskin, og hitinn er notalegur. Mangótrjálundir eru á víð og dreif. Fuglalífið er fjölbreytt. Hvergi sést fólk við akur- yrkju né jarðabætur. Mér verður hugsað til Kína, þar sem vinnandi fólk hvarf aldrei úr augsýn úr lestinni og landið var einn samfelldur akur. Ind- land er víða þurrt og uppblásið. Vatnið er dýr- mætt og af skornum skammti, að minnsta kosti um vetrarmánuðina, þegar ekki rignir. Ég hef heyrt, að sjaldan þurfi að bora lengra en um það bil 70 fet eftir vatni. En landið er fátækt og víða sömu vinnuaðferðir og fyrir mörg hundruð árum. Uppspretturnar nægja sjaldnast, og sumir verða að ganga langar leiðir til vatnsbólanna. Oft sjást konur á gangi á vegunum með vatnsker á höfði. t Agra er ein fegursta bygging veraldar, Taj Mahal, byggð úr hvítum marmara, og hefur hún verið kölluð „draumsýn í marmara". Ég svipast um með eftirvæntingu á brautarstöðinni. Þar mæt- ir auganu sama sýn og á flestum öðrum brautar- stöðvum, sem ég fór um í Indlandi. Hópar ber- fættra fátæklinga, sveipaðir í óhreint lín, sem upp- haflega var hvítt, sitja með krosslagða fætur á stétt- unum og horfa rólegu augnaráði á komufólk. — Gamalmenni, betlarar, ungar konur með börn á brjósti. Sumir hafa hreiðrað um sig og lagzt til hvíldar. Yfir þessu fólki hvilir óvanalega mikil rósemi og virðuleiki. Stundum var ég að velta fyrir mér, eftir hverju allur þessi sægur á brautarstöðv- unum væri að bíða daga og nætur. Einhver sagði, að það væri svo lágt sett í mannfélaginu, að það fengi ekki tekið frá fyrir sig pláss með lestunum og biði þolinmótt eftir, að rúm yrði fyrir það — einhvern tíma. Sennilega hefur allt þetta fólk verið „ósnertanlegt“. Hinir ósnertanlegu eru lægsta stigið í stéttakerfinu (casta). Skiptir þetta fólk tug- um þúsunda, sem greinast í stéttir, sem lítil sam- skipti hafa sín á milli. Við fæðingu kemst fólk í sömu stétt (casta) og feður þeirra og getur aldrei yfirgefið þá stétt. Hvaða störf það stundar, hverj- um það giftist, hvað það etur og hvernig útför þess er háttað, fer eftir stétt þess. Æðsta stéttin eru brahmínar. Þeir leggja aðallega stund á heim- speki, trúarbrögð og stjórnmál. Hindúar fóru með hina ósnertanlegu eins og þræla, sem hefðu ekki 19. JtJNl 30

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.