19. júní - 19.06.1958, Qupperneq 42
Frá erlenduzn vettvangi.
Þing alþjóðasambandsins í Aþenu.
Alþjóðakvenréttindasambandið — International
Alliance of Women — heldur 18. þing sitt í Aþenu
25. ág. til 4. sept. n.k.
Kjörorð þingsins verður: I gær, í dag, á morgun
— eða með öðrum orðum: Hvað hefur áunnizt,
hvað erum við að starfa og hverju ætlum við að
hrinda í framkvæmd. K.R.F.I. á rétt á að senda
12 fulltrúa á þennan fund, og verður að tilkynna
þátttöku fyrir 1. júlí.
Á undan fundinum verður haldið 14 daga nám-
skeið í sambandi við starfsskrá UNESCO um betra
samband og samvinnu þjóða í milli.
Allir einstaklingar í I.A.W. eiga rétt til þátt-
töku á þinginu. Árgjaldið er eitt pund (kr. 45.70),
og félagar fá blað félagsins ókeypis. Nánari upp-
lýsingar eru veittar á skrifstofu K.R.F.I., Skálholts-
stig 7, Reykjavík, í síma 18156 eða hjá formanni
félagsins í síma 12398.
Á seinasta fundi sambandsins, sem haldinn var
á Ceylon 1955, var minnzt 50 ára afmælis sam-
bandsins. Þar voru 2 fulltrúar frá íslandi, og hef-
ur verið sagt frá þeim fundi í blaði Kvenréttinda-
félags Islands: 19. júní.
Norræn samvinna.
Á fundi norrænu kvenréttindafélaganna, sem
haldinn var í Ábo í Finnlandi 1956, var samþykkt
að kjósa tvær konur frá hverju landi til að gera
tillögur um sameiginlegt átak á öllum Norður-
löndum um að ryðja burtu hindrunum, sem leggja
hömlur á þátttöku kvenna í atvinnulífinu, t. d. sam-
sköttuninni og launamisréttinu. Enn fremur að
gera tillögur um bætt atvinnuskilyrði og hjálpar-
gögn, er geri konum auðveldara að gegna tvöföld-
um skyldustörfum: gagnvart heimilinu og þjóð-
félaginu.
I nefnd þessari eru af Islands hálfu Rannveig
Þorsteinsdóttir hdl. og Sigríður J. Magnússon, for-
maður K.R.F.I. Fyrirhugað er, að nefndin komi
saman til að ganga frá tillögum sínum í júnímán-
uði n.k.
Sjóðsstofnun innan vébanda I.A.W.
Á síðastliðnu ári átti Margery Corbett Ashby
75 ára afmæli, en hún var formaður I.A.W. 25 ár
og eina núlifandi konan, sem var á stofnfundi fé-
lagsins fyrir 53ur árum. Dr. Hanna Rydh, sem
einnig hefur verið formaður I.A.W., átti frum-
kvæði að því, að alþjóðafélagið heiðraði hana með
sjóðstofnun til styrktar kvenréttindafélögum, sem
ættu erfitt uppdráttar, t. d. í Asíu og Afríku, þar
sem kvenréttindahreyfingin er enn ung og lítils
megandi.
Stakk Dr. Rydh m. a. upp á því, að konur, sem
áhuga hafa á þeim málefnum, sem kvenréttinda-
hreyfingin berst fyrir, minntust sjóðsins á afmæli
sínu eða vina sinna. Hefir þegar safnazt allálitleg
f járupphæð. Allar gjafir, stórar og smáar, eru þegn-
ar með þökkum, og veitir formaður K.R.F.l. þeim
fúslega viðtöku.
S. J. M.
Ævimizuningabók
Menningar- og minnincyarsjóðs
kvenna.
Annað bindi af Æviminningabók Menningar-
og minningarsjóðs er nú komið í prentun, og því
nauðsynlegt, að þeir, sem ætla sér að koma ævi-
minningum í þetta bindi, sendi þær, sem allra
fyrst, á skrifstofu sjóðsins að Skálholtsstíg 7.
Gjaldkeri sjóðsins, Svafa Þórleifsdóttir, er þar til
viðtals alla fimmtudaga kl. 16—18, en sími skrif-
stofunnar er: 18156.
Oftast rignir á fyrstu frostnæturnar, ekki seinna
en á þriðja degi.
*
Ef dimmir skuggar eru í vel fögru járni, veit
það á rigningu, en sé það bjart, þá veit það á gott
veður.
*
Afgreiðsla blaðsins er að Skálholtsstíg 7, og þar
eru gamlir árgangar seldir vægu verði.
1 9. JtJNl
40