19. júní


19. júní - 19.06.1967, Síða 41

19. júní - 19.06.1967, Síða 41
Sigurbjörg Lárusdóttir, Guðbjörg Brynjólfsdóttir, Guðrún Heiðberg, Kristín Sigurðardóttir, Valgerður Gisladóttir. Alþjóðafélagið hélt stjórnar- og formannafund í Aþenu í byrjun sept. s. 1., en enginn fulltrúi fór héðan. Næsti alþjóðafundur verður haldinn í London 1.—10. ágúst í sumar. Aðalumræðuefni hans verð- ur um mannréttindin. Aðildarfélög geta sent allt að 12 fulltrúa á fund- inn. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu félagsins, Hallveigarstöðum við Túngötu. Tillögur og ályktanir: Sent bréf til Mæðrastyrktarnefndar um lausn á mæðraheimilismálinu. I^ýst fylgi með ábendingum barnaverndarnefnd- ar um útivist bama. Sent Alþingi meðmæli með frumvarpi um fá- vitastofnanir. Sent Alþingi áskorun vegna hinna tiðu slysa á dráttarvélum og tillö’gur til úrbóta. Sent borgarstjórn Reykjavikur og stjórn Sumar- gjafar mótmæli gegn breyttum lokunartíma barna- heimila. Send tilmæli til fullti’úaráðs stjórnmálaflokk- anna hér í Reykjavilc um að konur séu í öruggum sætum á framboðslistum. Send umsögn um frumvarp: um aðstoð ríkisins við rekstur almennra barnaheimila og fóstruskóla, samkvæmt beiðni menntamálanefndar neðri deild- ar Alþingis. Fundur Kvenréttindafélags íslands, haldinn 21. marz 1967, fagnar því, að síðasta áfanga laganna mn launajöfnuð karla og kvenna var náð 1. janúar 1967. Fundurinn telur tímabært, að framkvæmt verði mat á þeim störfum, á hinum almenna vinnumark- aði, sem eingöngu konur vinna. Fundurinn lýsir eindi-egnum stuðningi sinum við þá réttmætu kröfu talsímakvenna, að þær verði hækkaðar úr 7. í 9. launaflokk, þar sem ýmsir aðrir og betur launaðir starfshópar hjá landssímanum hafa fengið tveggja launaflokka hækkun, svo sem talsímakonur við útlönd, sem hækkuðu úr 9. í 11. launaflokk. Lára Sigurbjörnsdóltir. Tillögur frá fulltrúaráösfundi Kvenrettindafélags Islands 1966 Áttundi fulltrúaráðsfundur Kvenréttindafélags Islands um réttindi barnsins, haldinn 4. og 5. iúní 1966, telur að upp- vaxandi kynslóð eigi rétt á því að þjóðfélagið búi henni eins mikið öryggi og hollt umhverfi og auðið er og lætur því eftirfarandi álit í ljósi. FUNDURINN TELUR: 1. að það sé skylda byggjenda og eigenda fjölbýlishúsa að láta útbúa á lóðum húsanna leikvelli fyrir börnin, sem í húsunum búa og ætti það að vera skilyrði fyrir byggarleyfi, 2. að öll börn í borgum, bæjum og þorpum eigi allt fram að skólaaldri rétt á því öryggi, sem gæzluleikvellir, leik- skólar og dagheimili veita. Fundurinn telur, að þann rétt eigi börnin jafnt, þótt mæður þeirra vinni ekki utan heimilis, 3. að nauðsynlegt sé að vinnustaðir starfræki dagheimili fyrir börn starfsliðsins, 4. að starfrækt verði við barnaskólana dagvistarheimili, einkum fyrir þau börn, hverra foreldrar koma ekki heim frá vinnu fyrr en eftir skólatíma og þau börn, sem búa við þröng húsakynni. 1 dagvistarheimilinu gætu börnin átt at- hvarf við nám og ieiki og þar æltu þau kost á að fá mat, 5. að þar sem skólaferðalög barna og unglinga fara mjög i vöxt, jafnt til útlanda sem innanlands, þurfi eftirlit með þeim að aukast og einkum beri að gæta þess, að leiðsögu- menn séu reglusamir og stjórnsamir. Einnig að kostað verði kapps um að ferðakostnaði sé jafnan stillt í hóf, 6. að starfrækja eigi æskulýðs- og tómstundalieimili í hverju skólahverfi Reykjavíkurborgar, svo og i bæjum og þorpum úti um land. 1 þvi sambandi vill fundurinn benda á félagsheimilin, 7. að stuðla beri að því að fólk sérhæfi sig í æskulýðs- leiðtoga-starfi og væri æskilegt að Kennaraskóli Islands eða Háskóli Islands komi á fót námskeiðum i þessum tilgangi. FUNDURINN TELUR ÞVl: 1. að auka þurfi eftrilit með uppeldi og heilsufari barna á bernskuskeiði, m. a. með því að koma á skipulagsbundnu eftirlili frá þvi ungbarnavernd sleppir og þar til heilsugæzla í barnaskólum hefst, 2. að veita beri einstæðum mæðrum alla þá félagslegu að- stoð, sem gerir þeim kleift að annast börn sin utan vinnu- tíma, t. d. með því að fjölga dagvöggustofum, dagheimilum og setja á stofn mæðraheimili, 3. að setja þurfi fleiri „systkinaheimili" á stofn, til þess að börn þurfi aldrei að vera til langframa á dvalaivöggu stofum og vistheimilum, enda verði að því unnið, að ung- börnum, sem ráðstafa þarf, verði innan eins árs aldurs komið fyrir á „systkinaheimili", í fóstur eða ættleiðingu eftir atvikum, 4. að heimuvistarskóla og skólaheimili, sem jafnframt væru vinnuskólar á sumrin, þurfi að setja á stofn fyrir börn, sem vanrækja skólanám. 19. JÚNÍ 39

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.