19. júní


19. júní - 01.10.1994, Page 10

19. júní - 01.10.1994, Page 10
Al< tj(JLSKYLUUJSINAK í fyrri tölublöðum 19. júní á pessu ári hefur verið fjallað um málefni fjölskyldunnar í tilefni fjölskylduárs Sameinuðu pjóð- anna. Fyrsta greinin grundvall- aðist á rannsókn dr. Sigrúnar Júlíusdóttur á bjargráða íslensk- um fjölskyldum. Önnur grein byggði á viðtali við séra Þorvald Karl Helgason um Fjölskyldu- pjónustu kirkjunnar. í pessu tölublaði verður fjallað um of- beldi innan fjölskyldunnar sem fyrst og fremst er ofbeldi gegn konum, en börn verða einnig fyrir barðinu á pvíýmist beint eða óbeint. Ofbeldi á heimilunt - kvennakúgun Amannfjöldaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin var í Kairó síðsumars, snérist umræðan að verulegu leyti um rétt eða rétt- leysi kvenna til þess að ráða yfir eigin líkama og stjórna barneignum með hjálp getnaðarvarna og fóstureyðingum. Andstaðan gegn þessum rétti lcvenna er hvað hörðust í löndum strangtrúaðra múslima og innan kaþólsku kirkjunnar. Hvergi er karla- veldið skýrara og kúgun kvenna jafn augljós. I grein eftir Evu Hernback, sem birtist í sænska blaðinu Dagens nyheter skömmu eft- ir ráðstefnuna, lýsir hún því hvernig þessi ráðstefna breyttist í tímamótasamkomu þegar fulltrúarnir hættu að ræða tölur um ískyggi- lega mannfjöldaþróun í heiminum en snéru sér að daglegu lífi kvenna. Því „það eru kon- ur sem fæða börn, ekki þjóðir“, eins og kona frá hinu fjölmenna, fátæka og barnmarga ríki Bangladesh orðaði það. Og öll bannorðin sem snerta bitran veruleika kúgaðra kvenna um víða veröld, eins og þunganir unglingsstúlkna, (ólög- Steinunn Jóhannesdóttir legar) fóstureyðingar, umskurður stúlku- barna, kynlífsfræðsla, takmörkun barn- eigna, ofbeldi á heimilum, ábyrgð karla á óvelkomnum börnum ekki síður en kvenna o.s.frv. allt þetta var tekið til um- ræðu að þessu sinni og ekki stungið undir stól. Mannfjöldaráðstefnan breyttist að verulegu leyti í ráðstefnu um réttindi kvenna. Og Eva lýsir því hvernig hempu- klæddir karlmenn á fundunum og karl- menn með túrbani á höfði þumbuðust við og kröfðust að fá að ráða þeim reglum og skilyrðum sem eiga að gilda um kynlíf og barneignir í heiminum, þótt helmingur þeirra lifi munklífi og hafi aldrei verið við kvenmann kenndir, né haft afskipti af börnum. Aframhaldandi fullt vald yfir lífs- skilyrðum kvenna var þeirra krafa. En klerkaveldið varð að gefa eftir fyrir þunganum í kröfum kvenna í löndum þeirra, þunga sem kom neðan frá, auk þess sem konur áttu sér marga góða málsvara a ráðstefnunni með Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra Noregs í broddi fylkingar. 10

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.