19. júní


19. júní - 01.10.1994, Page 12

19. júní - 01.10.1994, Page 12
AR tJULSKYLUUNNAR þeir hafa sjálfir kosið sér að eiginkonum, sambýliskonum og mæðrum barna sinna? Það er ekkert sem staðfestir að karl- menn sem beita konur ofbeldi komi úr einhverri sérstakri þjóðfélagsstétt. Þeir koma úr öllum stéttum. Ofbeldissam- bönd eru til í öllum lögum samfélagsins. Þau eru aðeins duldari því ofar sem dregur í samfélagsstiganum. Það sem þessir menn eiga sameigin- legt er að þeir eiga í vandræðum með feður sína. Þeir hafa ekki fengið neitt frá þeim í uppeldinu í formi viðurkenning- ar, athygli eða umhyggju. Oft hafa karl- menn sem beita ofbeldi sjálfir verið beittir ofbeldi sem börn eða verið vitni að ofbeldi föður gegn móður. Hegðun þeirra gagnvart sambýliskonum sínum er að því leyti lærð hegðun og þarf ekki að þýða að þeir séu sjúkir á geði enda koma þessir menn oft prýðilega fyrir, geta verið sjarmerandi og vinsælir út á við. Þeir geta verið í toppstöðum í þjóð- félaginu. Menn sem beita konur sínar ofbeldi eru oft mjög háðir þeim enda hugsa þær oft mjög vel um þá og heimili þeirra. Þar að auki endurreisa þær heimili sem þeir leggja í rúst. Þeir reyna því mikið til að halda þeim kyrrum hjá sér. Ofbeldi gegn konum beinist ekki í öllum tilfell- um að líkama konunnar. Mennirnir geta líka eyðilegt hluti sem tilheyra henni. Oft eru það hlutir sem eru henni kærir, gjafir frá fjölskyldu hennar eða vinum. A sama hátt gera þeir lítið úr ættingjum hennar og tala illa um vinina og reyna að einangra konuna meir og meir og gera hana háðari sér um alla hluti. Þeir geta líka snúið sér að því að kvelja heim- ilisdýrin eða murka úr þeim lífið að konunni og börnunum ásjáandi. Sé ekki gripið í taumana fer grimmdin og óhugnaðurinn oftast vaxandi með tím- anum. Lokastigið getur verið morð. Afneitunin Eitt enn er sameiginlegt flestum karl- mönnum sem beita konur ofbeldi og það er afneitunin. Þeir kannast ekki við að þeir séu ofbeldismenn. Þeir hafi kannski ein- staka sinnum misst stjórn á skapi sínu, en þá hafi það verið algjörlega konunni að kenna. Hún hafi reitt þá til reiði, komið þeim úr jafnvægi, Iátið þá sleppa sér. Stundum skella þeir skuldinni á brenni- vínið, þeir hafi verið fullir og þar með óá- byrgir gerða sinna. Þeir gera lítið úr afleið- ingunum, gleyma, hafa ekkert gert. Það er afar fátítt að þeir líti málið svo alvarlegum augum að þeir leiti sér hjálpar af sjálfsdáðum. Þó er til einn og einn sem það gerir. Þeir menn einir eiga von um að geta breytt hegðun sinni með meðferð, en flestir sitja fastir í sama farinu og fyrir hverja konu sem yfirgefur þá geta þeir fundið nýja til að berja. Afneitun samfélagsins á því að ofbeldi gegn konum á heimilum þeirra sé vanda- mál sem beri að taka á með opinberum aðgerðum er einnig augljós. Hjá lögregl- unni lokast mál sem tengjast heimilisof- beldi oft ofan í skúffum og skilningur lög- reglumanna er takmarkaður á eðli og al- vöru málsins. Það er ekki fyrr en harmleiknum lýkur með morði að Iögregla og dómstólar sem og almenningur taka við sér. Eitt slíkt mál hefur reyndar vakið heimsathygli í sumar og þar á ég við mál bandarísku íþróttahetjunnar og kvik- myndaleikarans J. O. Sinrpsons. I kjölfar þess hefur umræðan um vandamálið margfaldast í Bandaríkjunum og angar hennar teygt sig víðar. Enda er kjarni málsins sá sami hvar sem konu er mis- þyrmt í heiminum og hún barin til óbóta. Þar er karlmaður að verki sem er að sýna henni hver fari með völdin yfir lífi hennar og dauða. Krala iim hcrla löggjöf Reynslan af Kvennaathvarfinu sýnir að ofbeldi innan veggja heimilisins er dulið en umtalsvert vandamál á Islandi. Og það er krafa þeirra sem gerst þekkja til að samfélagið taki á þessu vandamáli með hertri löggjöf og aukinni aðstoð við þol- endur. Það þarf að vera algjörlega skýrt af löggjafans hálfu að ofbeldi gegn kon- um sé refsivert athæfi. Það beri að kæra sem hvern annan glæp og ljúka með refsidómi sem geranda sé gert að afplána. Sömuleiðis þarf að bjóða gerendum upp á meðferð og hvetja þá til þess að leita sér hjálpar. Víða erlendis eru menn dæmdir í meðferð en hin síðari ár hafa karlar einnig myndað nteð sér samtök sem vinna líkt og AA-samtökin, þar sem þeir hittast í hópum og leitast við að ná tökum á ofbeldisáráttu sinni. Hér á landi hafa sálfræðingarnir Heidi Greenfield, Gabriella Sigurðardóttir og Ásþór Ragn- arsson verið með sjálfsstyrkingarhópa fyrir karla. Fjölskyldan og heimilið hafa mikil- vægu hlutverki að gegna í þjóðfélaginu sem griðastaður, skjól og uppeldisstöð hverrar nýrrar kynslóðar. I of mörgum tilfellum breytist heimilið í fangelsi fýrir konuna þar sem henni er haldið niðri með andlegu eða líkamlegu ofbeldi af hálfu sambýlismanns síns. Það ætti að vera eitt af markmiðum þjóðfélagsins á þessu ári fjölskyldunnar sem senn er á enda að leggja eitthvað af mörkum sem stuðlar að því að uppræta ofbeldi á heim- ilunum. PUNKTA- FRÉTTIR Guð hvorki Konur í áströlsku karl né kona biskupakirkjurrní hara beoio ynrmenn kirkjunnar að breyta textanum í bænabók kirkjunnar til þess að guð verði ekki kyngreindur. „Við viljum gera tungumál og myndmál ítarlegra og hlutlausara, og að hvorki sé gefið í skyn að guð sé karl né kona,“ sagði talsmaður kvennanna. Meðal þess sem konurnar vilja breyta er „Fað- irinn, sonurinn og hinn heilagi andi“ sem yrði eftir breytingu „Skaparinn, frelsarinn og náð guðs“. Þá vilja konurnar að vísað verði til guðs sem „hans“ eins sjaldan og kostur sé. Konurnar segja að með því að karlkenna guð, sé lögð höfuðáhersla á karlleg einkenni hans, en horft fram hjá þeim kvenlegu, svo sem að hann sé huggari og uppalandi. flhrif „minipillu" A Kvennadcild Land- spítalans er hafin rann- sókn á því hvaða áhrif nýtt, náttúrulegt lyf til getnaðarvarna hefur á brjóstamjólk kvenna. Rannsóknin er í samvinnu við fjölþjóðlegt lyfja- íyrirtæki og búist er við að niðurstöður liggi fyr- ir næsta vor. Ekki er vitað hvenær minipillan verður sett á markað og þó að rannsóknin sé búin að vera mjög lengi í gangi eru engar formlegar niður- stöður enn fengnar enda tekur upp undir tíu ár að þróa getnaðarvarnalyf að sögn sérfræðinga. Þar eð brjóstagjöf er mun algengari á íslandi en í öðrum löndum, eða um 90 prósent, var ákveðið að þessi hluti rannsóknarinnar færi fram hér á landi og er niðurstaðna beðið með eftir- væntingu þar sem læknar hafa talið að getnaðar- varnapillur minnki mjólkina í brjóstum kvenna. Aklireyri: Tuttugu konur hafa í Konur án laun- ',“ust stundf "ám ‘ « . , Menntasmioiu kvenna a aðrar vmnu a Akureyri Menntasmiðj_ skólabekk an er skóli fyrir konur sem eru án launaðrar vinnu. Menntasmiðjan tók til starfa í ágúst og lauk fyrri áfanga námsins í október en þeim síðari lýkur 16. desember. Alls sóttu 37 konur um að komast að en hámarks- fjöldi er 20. Námið er konum án launaðrar at- vinnu að kostnaðarlausu og konur sem hafa at- vinnuleysisbætur halda sínum bótum meðan á námi stendur. Námið hefur fengist viðurkennt hjá atvinnuleysistryggingasjóði sem stytting á bótalausa biðtímanum fyrir atvinnulausa. Þær konur sem í haust stunduðu nám við Mennta- smiðjuna eru á aldrinum 20 til 55 ára og hafa mismunandi bakgrunn. Námið byggist á reynslu frá lýðháskólum og kvennadagháskólum á Norðurlöndum og nám- skeiðum sem þróuð hafa verið fyrir konur hér á landi. Það voru félagsmála- og menntamálaráðu- neyti, auk Akureyrarbæjar, sem lögðu starfsem- inni til fé fram til áramóta en verið er að vinna að því að fá viðbótarfjármagn. á brjóstamjólk rannsökuð 12

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.